Ægir

Árgangur

Ægir - 2020, Blaðsíða 27

Ægir - 2020, Blaðsíða 27
27 getu og betri gagnasöfnun eru eigendur Búlandstinds betur í stakk búnir að bregðast hratt við ef óveður eða slys ber að og geta komið í veg fyrir að laxinn skemmist og verðmæti tapist. Búlandstindur ehf. var stofnað árið 2015 í núverandi mynd og er í eigu Ós- ness ehf. á Djúpavogi, Fiskeldis Aust- fjarða ehf. og Laxa fiskeldis ehf. Öllum laxi frá fyrirtækjunum þremur verður pakkað í nýju vinnslunni hjá Búlands- tindi. „Til að anna núverandi og væntu framtíðarmagni er nauðsynlegt að fara í þessa stækkun og uppfærslu á búnaði,“ segir Elís Grétarsson, framkvæmdastjóri Búlandstinds. „Með þessu er Búlandstindur að fjár- festa í flottustu og bestu tækni sem völ er á og mun bæta alla meðferð á fiski, allt utanumhald, pökkun, rekjanleika og sölu. Þetta er tímamóta fjárfesting í vinnslubúnaði fyrir laxaiðnað á Íslandi og í fremstu röð á heimsvísu.“ Tímamótaskref í laxavinnslu á Íslandi Marel notar nú í síauknum mæli sýndar- veruleika í vöruþróunarferli sínu til að auka hraða og hagkvæmni uppsetningar og einnig til að kynna lausnir sínar fyrir viðskiptavinum. Stjórnendur Búlands- tinds fengu að kynnast því þegar þeim bauðst að upplifa framtíðar vinnslu sína í tölvuhermi. Þessi aðferð veitir stjórn- endum fyrr í ferlinu dýpri skilning á samspili véla, starfsmanna og rýmis sem styrkir ákvarðanatöku í fjárfestingum sem fylgja þurfa vexti fyrirtækja til næstu ára. „Við erum mjög ánægð með að taka þátt í þessu spennandi verkefni og vinna að þessari uppbyggingu með Búlands- tindi,“ segir Þórarinn Kristjánsson, sölu- stjóri Marel Fish. „Þetta er tímamóta samningur sem mun þróa og efla vinnslu á laxaafurðum til framtíðar. Laxaiðnaðurinn er kominn til að vera á Íslandi. Það skiptir því miklu máli að byggja upp eins góða inn- viði og völ er á til að tryggja að sem mest verðmæti fáist út úr hverjum fiski og að afkastagetan sé það góð að komi til válegra veðra sé hægt að taka mikið magn í gegnum vinnslurnar til að forð- ast skaða.“ ■ Það nýjasta í vinnslulausnum og upplýsingakerfi frá Marel verður í nýja laxavinnslukerfinu hjá Búlandstindi ehf. Kerfið verður sett upp í haust. Fiskvinnsla

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.