Ægir

Árgangur

Ægir - 2020, Síða 14

Ægir - 2020, Síða 14
14 Hátt í 12.000 tonn af ferskri lifur falla til við þorskveiðar hér á landi á ári. Úr hluta þess magns eru framleiddar um 45 milljónir lifrardósa á ári. Lang- leiðina í 13 milljónir þeirra fara í gegnum niðursuðuverksmiðjuna Ægi sjávarfang í Grindavík og stefnt á um 20 milljónir á ári til framtíðar. Þegar litið var í heimsókn þar var vinnsla í fullum gangi en yfir hávertíðina er unnið í 10 tíma á dag. Ný pökkunar- lína hefur verið tekin í notkun og leysir hún sex manns af hólmi við erf- ið og lýjandi störf. Aukinn slagkraftur með Thai Union í hluthafahópnum „Við erum hér á fullri ferð í Grindavík og komnir með öfluga fjárfesta inn í fyrir- tækið en þar er um að ræða Thai Union sem byggði upp starfsemi sína á niður- Lagmetisfyrirtækið Ægir sjávarfang ehf. í Grindavík Stefnan að fram- leiða 20 milljónir dósa á ári „niðursuðan á bjarta framtíð,“ segir Guðmundur P. Davíðsson, stjórnarformaður Thai Union er alþjóðleg risasam- steypa í niðursuðu, sem keypti nýlega helmingshlut í Ægi sjávar- fangi ehf. Thai Union Thai Union er eitt af stærstu sjávarafurðafyrirtækjum heims. Meðal fyrirtækja innan Thai Union fyrirtækjasamstæðunnar eru þekktir framleiðendur eins og King Oscar, Chicken of the Sea, John West, Petit Navire, Parmentier og Mareblu. Thai Union er með 47 þúsund starfsmenn víða um heim og er meðal annars stærsti framleiðandi niðursoðins túnfisks en fimmta hver dós af niðursoðnum túnfiski sem seld er í heiminum er frá Thai Union. Hagnaður af rekstri Thai Union á síðasta ári var um 80 milljarðar íslenskra króna. ■ Lifrin kemur ísuð í körum til Grindavíkur og er unnin eins fersk og unnt er. Hún fer í gegnum tromlu sem hreinsar af henni himnuna og hringorm undir vökulu gæðaeftirliti fyrir niðursuðu.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.