Ægir - 2020, Blaðsíða 18
18
Fiskvinnsla
Fisktækniskóli Íslands vinnur nú að
undirbúningi námsbrautar í vinnslu-
vélatækni þar sem nemendur koma til
með að öðlast þekkingu á tæknibúnaði
sem hefur verið að ryðja sér rúms í
fiskvinnslunni á undanförnum árum.
Skólinn hefur um nokkurra ára skeið
verið með námsbraut í fisktækni í
samstarfi við Marel þar sem áhersla
er lögð á kennslu á vélbúnað fyrir-
tækisins en með nýju brautinni, sem
áformað er að verði hleypt af stokk-
unum í haust, gefst nemendum kostur
á að sérhæfa sig einnig í þekkingu á
vélbúnaði frá öðrum íslenskum tækni-
framleiðendum á fiskiðnaðarsviðinu.
Tæknin knýr á dyr
„Við erum á þröskuldi fjórðu iðnbylting-
arinnar og þeirrar sjálvirknivæðingar
sem henni fylgir. Í okkar námsframboði
þurfum við að horfa til þeirrar þróunar.
Við höfum verið í góðu og árangursríku
samstarfi við Marel á undanförnum ár-
um og erum til að mynda núna að vinna
með fyrirtækinu í verkefni í Víetnam.
Við höfum líka verið í samstarfi við Brim
og annast tvö námskeið fyrir fyrirtækið
þar sem fjallað er um vinnu við nýjustu
tækin í flökun, roðflettingu og hausun,“
segir Ásdís V. Pálsdóttir, verkefnastjóri
Fisktækniskóla Íslands um aðdraganda
þess að til er að verða vísir að náms-
brautinni í vinnsluvélatækni.
Eykur valmöguleikana í
framhaldsnáminu
„Hugmyndin er sú að í náminu í vinnslu-
vélatækni verði fjallað um alla tækni-
þætti nútíma fiskvinnslu, t.d. vélbúnað í
hausun, roðflettingu, flökun, vatns-
skurði, myndgreiningu, róbótatækni og
þannig mætti áfram telja. Þessa dagana
erum við að vinna námsefnið og annað
sem að námsbrautinni snýr og vonumst
til að geta farið af stað í haust. Hugsun-
in er sú að þetta verði nám ofan á
grunnnám okkar í fisktækni en þar er
áhersla lögð á hráefnið sjálft. Fisktæknin
er tveggja ára nám og við höfum síðan
verið með eins árs framhaldsnám þar
sem nemendur hafa getað valið um t.d.
gæðastjórnun eða Marel fisktæknina en
vinnslutækninámið verður þá nýr val-
kostur,“ segir Ásdís.
Tæknin heillar unga fólkið
Ásdís segir að hraðinn í tækniþróun fisk-
vinnslunnar hafi verið áberandi mikill
síðustu fimm árin og áhugi sé bæði hjá
vinnslunum og tæknifyrirtækjunum á
því að til verði námsbraut þar sem fisk-
vinnslustarfsmenn geti sótt sér aukna
þekkingu á daglegri vinnu með tækja-
búnaðinn.
„Það vilja allir að starfsmenn í vinnsl-
unum kunni á tækin og tólin og geti sem
best nýtt möguleika þeirra. Tæknin er að
skila okkur aukinni nýtingu, auknum
gæðum afurða og þannig mætti áfram
telja. Meiri þekking starfsmanna á
tækninni er því allra hagur. En svo má
ekki horfa framhjá því að með aukinni
tækni í fiskvinnslunni hefur áhugi ungs
fólks á greininni aukist. Fjórða iðnbylt-
ingin er tækifæri fyrir ungt og menntað
fólk. Við erum á spennandi tímapunkti
fyrir fiskvinnsluna,“ segir Ásdís.
Fisktækniskólinn undirbýr
námsbraut í vinnsluvélatækni
■ Ásdís V. Pálsdóttir, verkefnastjóri
hjá Fisktækniskóla Íslands.
■ Nemendur í Marel-fisktækni hjá Fisktækniskólanum fræðast um virkni FleXicut skurðarvélarinnar frá Marel í nýrri
fiskvinnslu G.Run ehf. í Grundarfirði. „Tæknin er að skila okkur aukinni nýtingu, auknum gæðum afurða og þannig mætti
áfram telja. Meiri þekking starfsmanna á tækninni er því allra hagur,“ segir Ásdís.