Ægir - 2020, Qupperneq 29
29
Fiskvinnsla
„Með þessu samstarfi verður gjör-
breyting fyrir okkur hvað sölumálin
varðar enda Marel með þétt og öflugt
net um 700 sölumanna um allan heim.
Nú í fyrsta áfanga samstarfsins virkjum
við um 80 þeirra í sölustarfi á Curio vél-
búnaði sem augljóslega verður mikil
bylting, samanborið við 3-4 starfsmenn
sem áður önnuðust sölustarfið hjá okkur.
Við hófum um áramótin vinnu við að
samhæfa sölustarfið og höfðum náð vel
á veg í þeirri vinnu þegar Covid-19 far-
aldurinn braust út en reynum eftir því
sem hægt er í gegnum fjarsamskipti að
halda vinnunni áfram. En í mínum huga
er alveg ljóst að á sölusviðinu sem öðr-
um erum við að fá aðgang að miklum
þekkingarbrunni sem Marel hefur byggt
upp á mörgum árum og byggir mikið á
enda afar söludrifið fyrirtæki,“ segir El-
liði.
Margar nýjungar í farvatninu
Curio ehf. var stofnað árið 2008 og hefur
síðan verið ötult í þróun í fiskvinnslu-
vélum líkt og Nýsköpunarverðlaun Ís-
lands 2019 eru til vitnis um. Elliði segir
að margar nýjungar séu í farvatninu,
vöruþróun sem muni halda áfram af full-
um krafti næstu vikur og mánuði.
„Meðal þessara verkefna eru tvær
nýjar flökunarvélar sem bera númerin
3011 og 4011. Þar erum við í báðum til-
fellum að framleiða vélar sem eru full-
komlega samhæfðar við Innova hugbún-
aðarkerfið hjá Marel. Sú fyrrnefnda er
mekanísk vél en 4011 verður tölvustýrð
vél sem bæði ræður við flökun á bleika
fiskinum og hvítfiski.
Annað þróunarverkefni hjá okkur er
vélbúnaðarlína fyrir vinnsluskip, þ.e.
hausari, roðdráttarvél og flökunarvél en
hingað til höfum við einbeitt okkur að
framleiðslu á vélum fyrir landvinnslurn-
ar. Því fylgja talsverðar áskoranir að
þróa vélar fyrir sjóvinnsluna, vélarnar
eru í krefjandi umhverfi og undir miklu
álagi, þær þurfa að taka eins lítið rými
og hægt er og þannig má áfram telja.
Þessi lína hefur þegar verið prófuð í
skipi hjá Royal Greenland og styttist í að
hún verði fullhönnuð,“ segir Elliði og
bætir við að í þróun hjá Curio séu einnig
flökunarvél og hausari fyrir smáan hvít-
fisk á borð við lýsu, allt niður í 360
gramma stærð. „Þessar vélar eru fyrst
og fremst fyrir erlendan markað þó hjá
einstaka viðskiptavinum hér heima
kunni þær að nýtast,“ segir hann.
Loks er að nefna nýja roðflettivél sem
er í þróun og hefur þá sérhæfingu að
hreinsa fitulagið af fiskinum jafnframt
roðflettingunni. „Þetta er búnaður sem
við höfum oft verið spurðir um og hent-
ar t.d. þeim sem eru að framleiða fisk
fyrir t.d. sushi. Það er því mikið að ger-
ast á þróunarsviðinu hjá okkur enda
munu hjólin snúast áfram í fiskiðnaðin-
um þó ástandið verði með öðrum hætti
nú til skamms tíma,“ segir Elliði.
■ Undirritun samninga um kaup Marel á helmingshlut í Curio í október síðastliðnum. Í fremri röð frá vinstri: Sólveig Jó-
hannesdóttir, Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri Curio og Árni Sigurðsson. Í aftari röð frá vinstri: Þórarinn V. Þórarins-
son, Hulda Snorradóttir, Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, Sigurður Ólason og Linda Jónsdóttir.
■ Curio hefur framleitt hausara, flökunarvélar og roðflettivélar frá stofnun
fyrirtækisins árið 2008.