Morgunblaðið - 02.06.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Börn og fullorðnir streymdu í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn um helgina og var röð út úr dyr-
um sem var búin að endast meira og minna allan
daginn þegar blaðamaður náði tali af Ásdísi
Stefánsdóttur, vaktstjóra í miðasölunni, seinni
partinn í gær, en 400 manns mega vera í garð-
inum samtímis.
Ásdís bjóst við því að enn meira yrði að gera í
dag, þar sem leiktækin verða opnuð í dag.
Loka þurfti garðinum tímabundið vegna
samkomubanns en hann var opnaður aftur
síðastliðinn fimmtudag.
Morgunblaðið/Íris
Röð út úr dyrum í Húsdýragarðinum um helgina
Forsætisráðherra segir að það sé
ekki vilji ríkisstjórnarinnar að fyrir-
tæki ráðist í uppsagnir í stað þess að
nýta sér hlutabótaleiðina áfram. Það
sé þó í sumum tilvikum óhjákvæmi-
legt. Framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins segir að í nýsam-
þykktum lögum á Alþingi felist ekki
hvati fyrir fyrirtæki til að ráðast í
uppsagnir, enda sé forsendan nánast
algert tekjufall.
Lauslega er gert ráð fyrir að 27
milljarðar fari úr ríkissjóði til fyrir-
tækja í formi stuðnings við greiðslu
launa á uppsagnarfresti og að sam-
tals verði útgjöld vegna hlutabóta-
leiðarinnar 34 milljarðar. Þessi tvö
úrræði voru lögfest í nýrri mynd á
Alþingi á föstudagskvöld, þar sem
skilyrði fyrir hlutabótaleiðinni voru
hert. Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra segir ný lög ekki munu fela
í sér hreina viðbót við ríkisútgjöldin,
heldur gerð í von um að forða gjald-
þrotum. Ríkið hefði orðið ábyrgt fyr-
ir launum hluta þeirra sem hefðu
ella ekki fengið laun frá gjaldþrota
vinnuveitendum.
Til þess að fá aðstoð við greiðslu
launa í uppsagnarfresti er gerð
krafa um 75% tekjufall vegna kór-
ónuveirufaraldursins. Katrín segir
að fyrirtæki í slíkri stöðu hafi óhjá-
kvæmilega þurft að ráðast í upp-
sagnir, eins og hafi sést á mörgum
uppsögnum sem hafi þegar verið
gripið til óháð úrræðunum sem
standa til boða.
Við afgreiðslu frumvarpsins var
gagnrýnt, meðal annars af stjórnar-
liðum, að þrengd skilyrði í hluta-
bótaleið, sem voru margboðuð en
lögfest á föstudag, myndu ýta fyrir-
tækjum sem væru að nýta sér það
úrræði yfir í að segja fólki upp og
þiggja stuðning við það. Katrín segir
að það hafi ekki verið vilji stjórn-
arinnar að færa fyrirtæki á milli
leiða: „Við erum að vonast til að
þetta leiði til þess að fyrirtæki, sem
eru ekki beintengd þeim aflabresti í
ferðaþjónustu en hafa orðið fyrir
öðrum bresti, geti nýtt sér áfram
hlutabótaleiðina og komið sér þann-
ig út úr ástandinu en að önnur geti
nýtt uppsagnarleiðina og fengið þá
aðstoð við að fara í fjárhagslega
endurskipulagningu. Eðli máls sam-
kvæmt vitum við að ekki allir lifa
þetta af,“ segir Katrín.
Hvetji ekki til uppsagna
Spurður hvort þrengd skilyrði í
hlutabótaleið muni leiða til þess að
fleiri fari í uppsagnir segir Halldór
Benjamín Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri SA: „Það er útilokað
fyrir okkur að fullyrða slíkt á þessari
stundu, en það er ljóst að þegar
hlutabótaleiðin var kynnt til stöð-
unnar gerðu margir ráð fyrir að
höggið sem fylgdi veirunni yrði
skammvinnt. Nú er ljóst að svo er
ekki og að mörgum þeirra sem áður
voru á hlutabótaleiðum verður sagt
upp. Það endurspeglar það að flestir
eru sammála um að efnahagslægðin
nú sé dýpri og langvinnari en upp-
haflega var gert ráð fyrir. Mér þykir
því líklegt að atvinnuleysi muni
aukast, en ég tel ekki að það felist
hvati til þess í þessari leið.“
Halldór segir lykilatriði að hér sé
aðeins um að ræða stuðning við
greiðslu á launum á uppsagnarfresti.
„Engu að síður þurfa fyrirtækin að
greiða út launin og eignast svo kröfu
um endurgreiðslu í kjölfarið. Fyrir-
tækin sem geta gert þetta geta nýtt
þessa leið en fyrirtæki sem standa
frammi fyrir algerri sjóðþurrð geta
ekki einu sinni nýtt þessa leið,“ segir
Halldór. snorrim@mbl.is
Uppsagnir óhjákvæmilegar
Forsætisráðherra vonar að þrengd skilyrði í hlutabótaleið verði ekki til þess að fleiri ráðist í upp-
sagnir í staðinn Framkvæmdastjóri SA telur nýsamþykkt frumvörp ekki hvetja til uppsagna
Katrín
Jakobsdóttir
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Töluverð umferð var inn til Reykjavíkur í gær og þyngd-
ist eftir því sem leið á daginn. Að sögn lögreglu gekk hún
þó smurt fyrir sig og kom ekkert teljandi upp á. Um er
að ræða fyrstu ferðahelgi í langan tíma, enda fyrsta
langa helgi eftir að helstu takmörkunum vegna kórónu-
veirufaraldursins var létt.
Landsmenn flykktust að nokkru marki norður í land,
þar sem spáð var bestu veðri. Á tjaldstæðinu á Húsavík
voru hjólhýsin allsráðandi en minna um tjöld. Þegar um-
ferðin fór að þyngjast norður í land á föstudaginn sagði
lögregluþjónn á Norðurlandi vestra við mbl.is að merkja
mætti mjög aukinn fjölda húsvagna í eftirdragi en síð-
ustu helgar. Ferðasumarið væri byrjað. Þó að veðrið
færi ekki eins blíðum höndum um fólk í Reykjavík
brugðu sumir sér þó í bíltúr, jafnvel um göngugötur í
miðbænum. Þar þurfti lögreglan að skerast í leikinn og
beina mönnum á aðrar brautir.
Hiti átti að fara yfir 20 stig um helgina en það brást.
Hann náði mest 19,2 stigum, bæði á Húsavík og á
Raufarhöfn. Í dag er spáð vestlægri átt og litlum vindi á
landinu. Það verða stöku skúrir víða en þó yfirleitt létt-
skýjað austantil. Í vikunni er rigningar von og bætir
nokkuð í vonda veðrið með vikunni. Á föstudaginn er
spáð hvassri norðanátt og verður hvassast austast, 13-18
m/s. snorrim@mbl.is
Engin óhöpp í umferðinni
Fyrsta ferðahelgin Hiti
náði næstum því 20 stigum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umferð Mikill fjöldi Reykvíkinga brá sér af bæ um
helgina, eigi allfáir norður, þar sem spáð var bestu veðri.
73 ára karl-
maður lést í Laxá
í Aðaldal á
sunnudagskvöld
og fannst þar
laust eftir klukk-
an þrjú aðfara-
nótt mánudags.
Maðurinn hét
Árni Björn
Jónasson, en
hans hafði verið
leitað þegar hann skilaði sér ekki
til baka úr veiði.
Dánarorsök er ókunn en Árni
lætur eftir sig eiginkonu sína, Guð-
rúnu Ragnarsdóttur framhalds-
skólakennara, þrjú börn og sex
barnabörn.
Karlmaður á áttræð-
isaldri lést í Laxá
Árni Björn
Jónasson
Eldri karlmaður lést við sundiðkun
í Sundhöllinni á Selfossi skömmu
fyrir hádegi í gær, að því er fram
kemur í Facebook-færslu lögregl-
unnar á Suðurlandi. Sjúkralið og
lögregla fóru á vettvang en endur-
lífgun bar ekki árangur.
Slysið varð á ellefta tímanum í
gærmorgun og voru allir sund-
laugargestir beðnir um að yfirgefa
laugina, sem var lokuð á meðan
vettvangsrannsókn stóð yfir.
Fyrst var maðurinn sagður hafa
slasast alvarlega en síðar greindi
lögreglan frá andláti hans.
Eldri maður lést í
Sundhöll Selfoss