Morgunblaðið - 02.06.2020, Page 14

Morgunblaðið - 02.06.2020, Page 14
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Tímamótaskref verður stigiðí aðgerðum gegn kenni-töluflakki og misnotkun áhlutafélagaforminu verði frumvarp Áslaugar Örnu Sigur- björnsdóttur dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um gjald- þrotaskipti samþykkt fyrir sumar- leyfi þingmanna. Góðar líkur eru taldar á að svo verði, en verkalýðs- hreyfingin hefur um árabil barist fyrir því að komið verði böndum á kennitöluflakkið. ASÍ og Samtök at- vinnulífsins náðu samstöðu um þetta mál árið 2017 og hafa staðið saman að tillögum um aðgerðir til að stöðva kennitöluflakk í atvinnurekstri. Þau skila nú sameiginlegri umsögn til allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarpið. Róttækasta breytingin sem stendur til að lögfesta felst í því að heimilt verði að úrskurða þann sem ekki telst hæfur til að stýra hluta- félagi vegna skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátta við stjórnun félags í atvinnurekstrarbann sem að megin- reglu vari í þrjú ár. Þetta mun hafa í för með sér að mati ASÍ og SA að „unnt verður að stöðva kennitölu- flakkara og aðra vanhæfa ein- staklinga frá því að halda áfram að valda samfélaginu tjóni með skjót- virkum hætti.“ Skuggastjórnendur í bann „Við höfum lagt áherslu á að þetta frumvarp verði afgreitt með þriðja aðgerðapakka ríkisstjórnar- innar og höfum bent á að það skipti mjög miklu máli núna þegar við sjáum fram á endurskipulagn- ingu og mikið rót í atvinnulífinu að við verðum komin með einhver vopn í hendurnar til þess að takast á við kennitöluflakkið. Það er einmitt við svona aðstæður sem hættan á kennitöluflakki verður hvað mest,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðar- framkvæmdastjóri og deildarstjóri félagsmáladeildar ASÍ. Að hans sögn er þetta fyrsta alvarlega tilraunin sem ráðist er í til að takast á við kennitöluflakk frá árinu 1984. ASÍ hefur verið með málið á dagskrá samfleytt frá 2011 og lét árið 2013 gera mikla úttekt á samfélagslegu tjóni af kennitölu- flakki hér á landi. Þar kom m.a. fram að ætla mætti að árlega töpuðu sam- félagslegir sjóðir fjárhæðum sem svara til reksturs Landspítalans á heilu ári. Í ljós kom að sá aðili sem hafði flakkað mest með kennitölur í rekstri hafði á sjö ára tímabili komið að gjaldþroti 29 fyrirtækja. Þeim sem sæta munu atvinnu- rekstrarbanni verður óheimilt að stjórna félagi sem rekið er með tak- markaðri ábyrgð og á bannið líka að ná til svonefndra skuggastjórnenda, þ.e.a.s. þeirra sem starfa í raun sem stjórnarmenn eða framkvæmda- stjórar félags án þess að vera form- lega skráðir sem slíkir. Halldór segir að ASÍ og SA hafi verið með aðrar hugmyndir um að- gerðir, en niðurstaðan liggi nú fyrir í frumvarpi sem ágæt sátt sé um. Fyrst og fremst sé byggt á marg- reyndri löggjöf Dana, Svía og Norð- manna. Athygli vekur að Ríkisskatt- stjóri leggur til í umsögn til þingnefndarinnar að skilyrði banns- ins vegna skaðlegra og óverjandi viðskiptahátta verði einnig látið ná til viðvarandi vanskila á vörslu- sköttum, þ.e. á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinbera gjalda. Hall- dór segir þetta vera mjög góða ábendingu. Fá vopn í hendurnar gegn kennitöluflakki 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Undanfarnaviku hafafjölmenn og hávær mót- mæli verið vítt og breitt um Banda- ríkin. Rót þeirra má rekja til þess að lögreglumaður í Minneapolis drap blökku- manninn George Floyd. Fjór- ir lögreglumenn höfðu stöðv- að Floyd vegna gruns um að hann hefði borgað með föls- uðum 20 dollara peningaseðli, og enduðu samskipti þeirra með því að einn lögreglu- mannanna setti hné sitt á háls Floyd í níu mínútur og sinnti í engu þegar hann kvartaði undan andnauð. Upptaka af atvikinu fór þegar af stað í almenna dreif- ingu og olli mikilli ólgu, enda er vart hægt að lýsa því sem upptakan sýnir sem öðru en aftöku án dóms og laga. Málið hefur vakið brýnar og alvar- legar spurningar eina ferðina enn um kynþáttahyggju með- al lögreglumanna í Banda- ríkjunum, en allt of oft berast fregnir af því að fólk sem til- heyri minnihlutahópum þar í landi týni lífi í samskiptum sínum við lögregluna. Og þó að stundum eigi það sér skýr- ingar, til að mynda að lög- reglumenn telji lífi sínu ógn- að, er ekkert slíkt sem réttlætir það sem gerðist í Minneapolis. Upp úr sauð um helgina, þar sem mótmælin leystust upp í óeirðir í flestum stór- borgum landsins. Þó að auð- velt sé að hafa samúð með málstað mótmælenda er einn- ig ljóst að óeirðaseggirnir sem brutu rúður, kveiktu elda og réðust að lögreglumönnum í nafni reiði sinnar gengu allt of langt. Það er þekkt þegar mót- mæli blossa upp að misindis- menn úr ýmsum áttum sjá sér þá leik á borði og notfæra sér ólguna til þess að ýta undir enn frekara ofbeldi. Ríkis- stjóri Minnesota-ríkis, sem einna verst hefur orðið úti í óeirðunum, vildi kenna hvít- um þjóðernissinnum sem ekki væru búsettir í ríkinu um að hafa ýtt undir ofbeldið, og bandaríska dómsmálaráðu- neytið hefur beint sjónum sínum að Antifa, hópi vinstri- sinnaðra „svartstakka“ sem mætt hefur reglulega á mót- mæli undanfarinn áratug með það að markmiði að leysa þau upp í ofbeldi, allt í nafni bar- áttu gegn „fasisma“. Hafa ber í huga að það er minnihluti mótmælenda sem skipar sér í lið með öfgaöflum. Langflestir þeirra vilja einungis bæta líf sitt og annarra, og tryggja að saklaust fólk þurfi ekki að óttast um líf sitt á hverjum einasta degi, ekki vegna ofbeldis af hálfu glæpa- manna, heldur lögreglumann- anna sem eiga að verja al- menning fyrir ofbeldi. Og það gera þeir vitaskuld langoft- ast, en það breytir því ekki að undantekningarnar eru óá- sættanlegar og á þeim ber að taka af fullri alvöru. Þá telja mótmælendur að það gerist allt of oft að fólk sem tilheyri minnihlutahóp- um verði fyrir aðkasti af hálfu lögreglumanna fyrir minnstu sakir, eins og að keyra of fín- an bíl í röngu hverfi eða vera klæddur „á rangan hátt“. Slíkar sögur eru ekki til þess fallnar að auka traust al- mennings á störfum löggæsl- unnar í Bandaríkjunum og skiljanlegt er að reiði kraumi undir. Það sem ýtir ekki síst undir reiðina er að oftar en ekki hafa bandarískir lögreglu- menn komist upp með það að beita minnihlutahópa óþörfu ofbeldi, hafa losnað við ákæru eða verið sýknaðir af því. Ekki er um það að ræða í þessu tilfelli því að umræddur lögreglumaður hefur verið leystur frá störfum, handtek- inn og ákærður vegna máls- ins. Talið er sennilegt að fé- lagar hans verði einnig ákærðir. Ekki er þó hægt að fullyrða um hvaða lyktir mál- ið fær í dómssölum, en það hefur farið lengra en mörg önnur áþekk mál. Skiljanleg og jafnvel réttlát reiði getur ekki réttlætt of- beldisverk framin í hennar nafni. Þeir sem kveikja í og stunda gripdeildir vegna drápsins á George Floyd draga úr líkunum á að þessi harmleikur geti leitt af sér breytingu til betri vegar. Hvað lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum snertir, er sömuleiðis ljóst að þau þurfa að fara vandlega yfir vinnulag sitt og auka ábyrgð lögreglu- manna, til dæmis með því að sækja þá sem misbeita valdi sínu til saka, líka vegna smærri atvika, til að koma í veg fyrir að slík hegðun fái að viðgangast. Að öðrum kosti er hætt við því að það mikla van- traust sem ríkir milli lögregl- unnar og minnihlutahópa verði áfram til staðar. Réttlát reiði rétt- lætir ekki ofbeldi og skemmdarverk} Brýnar og alvarlegar spurningar L iðin vika í þinginu var stór- merkileg. Þar voru samþykkt lög um uppsagnir þar sem ríkið hjálpar fyrirtækjum að segja upp fólki og halda því í vinnu á launum frá ríkinu í uppsagnarfresti. Stefnan er sem sagt ekki að viðhalda ráðningar- sambandi, eins og markmiðið var áður, heldur slíta því. Annað sem gerðist sem var líka stór- merkilegt var frumvarp um opinber fjármál, nánar tiltekið er ríkisstjórnin að leggja það til að fresta framlagningu fjármálastefnu og fjármálaáætlunar þangað til í haust. Kannski finnst fullt af fólki það ekki eins merkilegt og mér. Að það sé nú skiljanlegt að í svona óvissuástandi geti stjórnvöld ekki lagt fram áætlun og stefnu um fjármál ríkisins. Eða með orðum fjármálaráðherra: „menn treystu sér ekki að koma með áætlun um næsta ár og árin þar á eftir fyrr en í haust.“ Ég skil alveg hvernig fólk getur dottið í einhverja meðvirkni með þessari skoðun. Þetta er svo erfitt. Það er svo mikil óvissa. Þau bara treysta sér ekki til þess að gera þetta í öllu þessu ástandi. Miðað við aðstæður er nú bara skiljanlegt að stjórnvöld sleppi því að leggja fram áætlun og stefnu. En nei. Nei, nei og aftur nei. Það er einmitt í svona óvissuástandi sem stjórnvöld eiga að sýna frumkvæði og leggja fram áætlun út úr því. Áætlunin þarf ekki að vera hárnákvæm og það eru ekki gerðar kröfur til þess að hún standist 100%. Það eru ein- ungis gerðar kröfur um að hún sé lögð fram. Þegar stjórnvöld leggja fram stefnu gerist tvennt. Annars vegar sýna stjórnvöld öllum hvert ástandið er og a.m.k. hvernig tryggt verður að komið verði í veg fyrir það versta. Hins vegar leggja stjórnvöld grundvöll fyrir aðra til þess að byggja á. Stjórnvöld eiga að leggja flugbraut sem leyfir okkur að komast saman á flug. Ríkis- stjórnin treystir sér hins vegar ekki í þetta verkefni heldur vill frekar hjálpa fyrir- tækjum að segja upp fólki. Stefna okkar út úr Kófinu er engin. Stjórnvöld ætla bara að bíða og sjá hvernig hlutirnir þróast og gera svo áætlun þegar óvissan hefur vonandi horfið af sjálfu sér. Ríkisstjórnin er eins og aparnir þrír sem vilja ekki sjá, heyra eða segja neitt illt. Bíður bara þangað til allt er orðið betra. Í þeim síbreytilega heimi sem við búum í verður það augljósara í svona ástandi hversu dauð hugmyndafræði íhaldsins er orðin. Íhaldið kann ekki og getur ekki leitt okkur inn í framtíðina. Fjármálaráðherra hefur talað um að gera Ísland 2.0, sem er mjög upplýsandi því það eru 20 ár síðan 2.0 byltingin gekk yfir. Í dag er verið að vinna í uppfærslu 5.0. Í fúlustu alvöru, við erum að láta fólk ráða landinu sem treystir sér ekki í stefnumörkun úr óvissu og heldur að heimurinn sé eins og hann var fyrir 20 árum. Við getum gert betur. Björn Leví Gunnarsson Pistill Nei, nei og aftur nei Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Alvarlegustu tilvik kennitölu- flakksins eru ekki síst þau þegar stjórnandi fyrirtækis ætlar sér frá upphafi að fara á svig við laga- reglur og misnota hlutafélaga- formið þar sem litlar eða engar eignir eru í félaginu frá upphafi. Einnig eru dæmi um að fyrirtæki sem er í greiðsluerfiðleikum ,,sé rekið í þrot og eignir færðar að hluta eða öllu leyti í nýtt félag á undirverði eða án endurgjalds [...],“ eins og segir í greinargerð frumvarps dómsmálaráðherra. Rekstrinum er svo haldið áfram í nýju félagi með sama eða svipuðu nafni en skuldir eldra fyrirtækisins eru skildar þar eftir og það sett í gjaldþrotaskipti. Kröfuhafar sitja síðan uppi með tjónið. Skuldirnar skildar eftir KENNITÖLUFLAKK Morgunblaðið/Hari Störf Vinnustaðaeftirlit vinnumarkaðar, lögreglu, Vinnueftirlitsins, Ríkis- skattstjóra og VMST lá niðri í veirufaraldrinum en er komið í gang á ný. Halldór Grönvold

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.