Morgunblaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020 Kjarvalsstaðir Margir lögðu leið sína á sýningu verka eftir börn um náttúruna á barnamenningarhátíð. Íris Jóhannsdóttir Borgarstjóri og meirihlutinn í Reykja- vík eru í stríði við rekstraraðila og stór- an hluta Reykvíkinga samkvæmt síðustu skoðanakönnun sem birt var. Í viðtali við formann skipulags- og samgönguráðs, Sigur- borgu Ósk Haralds- dóttur, sem birtist í Morgunblaðinu 28. maí sl., sagði hún að könnunin væri ákall um að kynna betur kosti göngugatna! Nei hættið þið nú – hún hefði alveg eins getað sagt að Reykvíkingar væru illa upplýstir og jafnvel illa gefnir. Í það minnsta „þyrftu þeir meiri fræðslu“ til að átta sig á hvernig göngugötur virka og hvaða áhrif þær hafa í heiminum og þetta væri ekkert öðruvísi hér á Íslandi eins og hún orðar það í viðtalinu. Þau viti það sko. Hrokinn ríður ekki við einteyming hjá þessu fólki sem tel- ur sig vera að stjórna borginni. Enn á ný flyt ég tillögu sem varðar lok- un Laugavegarins fyrir fjölskyldu- bílum á fundi borgarstjórnar í dag, nú með áherslu á öryggismál þessa svæðis. Hún hljóðar svo: Borgarstjórn samþykkir að fallið verði frá ákvörðunum um götu- lokanir: Sumargötur 2020 í mið- bænum, sem samþykktar voru á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 26. maí sl. Einnig er lagt til að fá álit/umsögn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, almanna- vörnum höfuðborgarsvæðisins og Neyðarlínunni um götulokanirnar og að- gengi neyðarbíla að svæðinu hvað varðar þá ákvörðun að loka Laugaveginum frá Frakkastíg að Lækjargötu. Með til- lögunni fylgir greinar- gerð sem er svohljóð- andi: Hið lokaða svæði er 100% stærra en árið 2019 og er því um mjög víðtækar og íþyngjandi aðgerðir að ræða. Gangi þessar áætlanir eftir er ljóst að að- gengi sjúkrabíla, slökkviliðsbíla og lögreglu verður mjög skert, því meirihlutinn boðar að fjölga eigi mjög útisvæðum fyrir utan veit- ingastaði á þann hátt að hægt verði að koma fyrir stólum, borðum, blómakerjum og bekkjum á göngu- götunni sem til verður. Þessi tillaga snýst um að hægt verði að bjarga mannslífum þegar vá steðjar að, s.s. bruni, heilsufall, vopnuð rán á af- greiðslutíma verslana og veitinga- húsa og líkamsárásir. Eftir Vigdísi Hauksdóttur »Hún hefði alveg eins getað sagt að Reykvíkingar væru illa upplýstir og jafnvel illa gefnir. Í það minnsta „þyrftu þeir meiri fræðslu“ Vigdís Hauksdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins. Laugavegurinn og lokunaráráttan Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að nú- verandi borgar- stjórnarmeirihluti hafi aldrei séð ástæðu til að taka minnsta tillit til borgarbúa í ákvörð- unum sínum. Þeir lof- uðu því að vísu fyrir síð- ustu kosningar og kölluðu þá slíka tillits- semi „íbúalýðræði“. En það var auðvitað allt í plati. Til þess er meirihlutinn of merkilegur og borgarbúar of ómerkilegir. Hingað til hef ég þó veigrað mér við að viðra þessa skoðun opinberlega þó hún sé byggð á reynslu af mörg hundruð fundum með þessu góða fólki. Svo ótrúleg er þessi reynsla. Margar ákvarðanir þeirra sem mynda þennan meirihluta eru því miður byggðar á fáránlegum for- dómum um starfsstéttir viðkomandi borgarbúa, hagsmuni þeirra, skoð- anir og lífsvenjur. Þessir borgar- fulltrúar eru því miður mun þröng- sýnni og fordómafyllri en gengur og gerist meðal almennings í íslensku samfélagi og fyrirlíta allt og alla sem ekki passa inn í þrönga kaffihúsa- heimsmynd þeirra. Gott dæmi um þessa afstöðu er álitamálið um það hvort og hvernig skuli takmarka bifreiðaumferð um Laugaveginn og nærgötur hans. Þetta álitamál hefur verið á döfinni undanfarin misseri í nefndum og ráð- um borgarinnar. Þar hefur aldrei, hvergi né á neinn hátt verið tekið minnsta tillit til hagsmunasamtaka þeirra kaupmanna sem mynda þessa gömlu og góðu verslunargötu. Hagsmunasamtök kaupmanna við Laugaveginn hafa ítrekað fært fram sann- færandi rök fyrir því hvernig best yrði staðið að slíkum lokunum en á þau rök hefur aldrei verið hlustað af borgar- yfirvöldum. Hugsað í lausnum Í öðrum sveitar- félögum hér á landi hafa ákvarðanir af þessum toga verið tekn- ar í góðri samvinnu við hagsmuna- og rekstraraðila og með góðum árangri. Gott dæmi um slíka samvinnu er svokallað Akur- eyrarmódel sem miðar að því að tryggja sátt íbúa og rekstraraðila. Það hefur almennt mælst mjög vel fyrir. Í samþykkt Akureyrarkaup- staðar um verklagsreglur vegna lok- unar miðbæjargatna er gert ráð fyrir sumarlokun fjóra daga vikunnar í júní og ágústmánuði en alla daga í júlí. Þó er gert ráð fyrir að lokun sé háð veðri og fari hitastig undir fimm gráður er sviðsstjóra skipulagssviðs heimilt að opna fyrir bílaumferð. Þá gerir samþykktin einnig ráð fyrir undanþáguakstri fyrir hreyfihaml- aða. Þetta er dæmi um fyrirmyndar- vinnubrögð þar sem hugsað er í lausnum í stað þess að standa í stöð- ugu stríði við rekstraraðila og íbúana. Skoðanakönnun staðfestir ábendingar kaupmanna Nú standa fyrir dyrum umfangs- miklar lokarnir gatna í miðbæ Reykjavíkur, og eins og endranær án nokkurs samráðs við rekstraraðila á svæðinu eða íbúa þess. Nýleg könnun Maskínu sem birtist í Morgunblaðinu miðvikudaginn 27. maí sl. greinir hins vegar frá þeirri niðurstöðu að meiri- hluti borgarbúa sé mótfallinn þessum lokunum og muni ekki gera sér ferð í miðbæinn ef þessar lokanir ná fram að ganga. Þessi niðurstaða könn- unarinnar er í fullu samræmi við þær ábendingar sem rekstraraðilar við Laugaveginn hafa margítrekað fyrir daufum eyrum borgaryfirvalda. Minnisvarði um skipulagsmistök Rekstur verslana í miðborginni hefur verið þungur undanfarin miss- eri. Tugir rekstraraðila hafa hætt þar rekstri og nú aukast enn rekstrar- erfiðleikar þessara verslana vegna kórónuveirunnar. Það blasir því við að ólýðræðisleg afstaða borgar- stjórnarmeirihlutans komi fjölda fjöl- skyldufyrirtækja við Laugaveginn í þrot og að Laugavegurinn glati á endanum því merka hlutverki sínu í borgarmyndinni að vera ein elsta verslunargata landsins. Án fjöl- breytts framboðs verslana á Lauga- veginum og götum sem honum tengj- ast hefur gatan ekkert gildi og mun innan tíðar verða eyðilegur og hrá- slagalegur minnisvarði um enn ein skipulagsmistök þessa meirihluta. Eftir Mörtu Guðjónsdóttur » Án fjölbreytts framboðs verslana á Laugaveginum mun gatan verða eyðilegur og hráslagalegur minnisvarði um enn ein skipulagsmistök þessa meirihluta. Marta Guðjónsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Vegið að Laugaveginum Málefni Sorpu hafa verið fyrirferðarmikil í um- ræðunni síðustu mánuðina. Í ársbyrjun varpaði skýrsla innri endurskoð- anda Reykjavíkurborgar ljósi á alvarlega stöðu fyrirtækisins, sérstaklega hvað varðar undirbúning og ákvarðanatöku í tengslum við gas- og jarð- gerðarstöð í Álfsnesi. Þar var margt sem vakti furðu og kallaði á svör frá þeim sem ábyrgð bera. Þá var kallað eftir skýringum í borgarstjórn en lítið var um svör. Nú eru málefni Sorpu aftur komin í um- ræðuna og enn bætast við spurningar. Gas- og jarðgerðarstöðin átti að taka til starfa í apríl en framkvæmdum er þó enn ekki lokið. Kostnaður heldur áfram að vaxa og ekkert lát er á framúr- keyrslunni. Heildarkostnaður sem átti að vera 3,4 milljarðar króna þegar fyrsta skóflustungan var tekin sumarið 2018, er núna kominn í á sjötta milljarð króna. Ekki hlustað á varnaðarorð Reykjavíkurborg hefur þurft að ábyrgjast lántökur og viðbótarlán, en enginn veit hvar þau enda. Á fundum með stjórn og forsvarsfólki Sorpu hafa litlar upplýsingar fengist um stöðu mála og enn færri um framtíð stöðvarinnar. Nú bætast við varnaðarorð frá sérfræð- ingum sem draga rekstrarforsendur í efa, óljóst er hvort hægt verði að koma afurðum, þ.e. moltu og metangasi, í verð. Um tæknilausnir sem endurvinnslustöðin á að byggja á hafa verið deildar meiningar. Talsverðar lík- ur eru á að rekstur gas- og jarðgerð- arstöðvarinnar verði aldrei sjálfbær. Sambærileg endurvinnslustöð í Noregi lenti í ógöngum með sína starfsemi og var lokað. Allt vekur þetta spurningar um framtíð nýju stöðvarinnar í Álfsnesi. Það er ekki gott að velta sífellt auknum kostnaði yfir á útsvarsgreið- endur, hækkanir á gjald- skrám gætu haft neikvæð áhrif á áhuga borgarbúa á umhverfis- og endur- vinnslumálum. Slíkt færi gegn stefnu borgar- yfirvalda um að auka ábyrgð og þátttöku al- mennings í málaflokk- unum. Meiri óskhyggja en fyrirhyggja Allt þetta mál virðist hafa meira verið rekið áfram af óskhyggju og áhuga en af skynsemi og fyrirhyggju. Skollaeyrum hefur verið skellt við varnaðarorðum sérfræðinga, sem hafa bent á ýmsa annmarka, sem og slæmri reynslu Norðmanna af sinni gas- og jarðgerðar- stöð. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Ég deili áhuga á umhverfis- og endurvinnslumálum með þeim sem hafa hingað til þrýst málinu áfram, en veit þó að kapp er best með forsjá. Líta verður stöðu Sorpu, með nýrri gas- og jarðgerðarstöð, alvarlegum augum. Skýra þarf málið til að unnt sé að taka skynsamlegar ákvarðanir um framtíð stöðvarinnar. Málefni Sorpu verða tekin til umræðu á fundi borgarstjórnar í dag. Þar verður svara krafist. Enn af rusli í Sorpu Eftir Örn Þórðarson Örn Þórðarson » Það er ekki gott að velta sífellt auknum kostnaði yfir á útsvars- greiðendur, hækkanir á gjaldskrám gætu haft neikvæð áhrif á áhuga borgarbúa á umhverfis- og endurvinnslumálum. Höfundur er borgarfulltrúi og fyrrverandi stjórnarformaður Sorpstöðvar Suðurlands bs. orn.thordarson@reykjavik.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.