Morgunblaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020 Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa NJÓTUMMINNINGANNA Nýlega var greint frá því í fjölmiðlum að hvergi í heiminum væru réttindi barna betur tryggð en á Ís- landi samkvæmt Child- Rights index, sem er mælikvarði á hvernig aðildarríki Sameinuðu þjóðanna virða réttindi barna. Alþjóða- samtökin KidsRights birta stuðulinn árlega og er þetta annað árið í röð sem Ísland skipar fyrsta sæti listans. Óþarft er að fjöl- yrða um að réttur barna til verndar er ein aðalgrunnstoð Barnasáttmála SÞ. Útilokað er að Ísland hefði náð þessum árangri nema vel hefði tekist til um framkvæmd barnaverndar- mála. Þeim árangri var ekki náð á einni nóttu. Barnaverndarstofa fagn- ar nú tímamótum en hún hóf starf- semi 1. júní 1995. Barnaverndarstofa var afsprengi vakningar sem varð í kjölfar sam- þykktar Barnasáttmálans og fullgild- ingar hans árið 1993. Með stofnun hennar var í fyrsta sinn komið á fót sjálfstæðri og miðlægri stjórnsýslu- stofnun sem hafði það hlutverk að samræma og efla faglegt barna- verndarstarf og sjá til þess að sér- hæfð þjónusta stæði öllum börnum til boða óháð búsetu. Verkefnið var stórt enda fjöldi barnaverndarnefnda hátt í hundrað og flestar þeirra án starfs- fólks með fagmenntun. Algjör straumhvörf hafa orðið, nefndum fækkað í 27 og allar hafa þær nú vel hæft og menntað starfsfólk í þjónustu sinni. Skipta má starfstíma Barna- verndarstofu í tvö tímabil, það fyrra uppbyggingartímabil og það síðara þróunarskeið. Fyrsti áratugurinn í starfi stofunnar fólst einkum í þrem meginþáttum: skipulögðu fræðslu- og ráðgjafarstarfi ásamt faglegu eftirliti með störfum barnaverndarnefnda; umbótum á sviði meðferðar fyrir börn og loks stofnun Barnahúss. Síð- astliðinn áratug hafa áherslur á þró- unarstarf, svo sem gerð verkferla til að bæta réttarstöðu barna, gagna- öflun og innleiðing gagn- reyndra aðferða verið fyrirferðarmeiri svo sem fjölkerfameðferð, foreldrafærniþjálfunin PMT og barnvænleg íhlutun vegna heimilis- ofbeldis sem olli þátta- skilum í samvinnu stofn- ana í þeim málaflokki. Barnaverndarstofa hefur jafnan sótt bestu þekkingu á hverjum tíma, miðlað henni og hagnýtt til bættrar verndar og velferðar barna. For- gangsverkefni í upphafi starfsem- innar voru umbætur í meðferðar- kerfinu fyrir börn til að bregðast við aukinni neyslu vímuefna og afbrota og vegna hækkunar sjálfræðisaldurs árin 1998 til 2000. Fjórum ríkis- reknum sólarhringsstofnunum var lokað en í þeirra stað hafin starfsemi meðferðarstöðvar ríkisins, Stuðla, og stofnun meðferðarheimila, sem flest voru fjölskyldurekin en fjöldi þeirra varð mestur átta, öll á landsbyggð- inni. Þegar ný gagnreynd þekking kom á sjónarsviðið sem gerði kleift að veita börnunum sérhæfða meðferð á vettvangi fjölskyldu- og nærsam- félags án þess að vista börn utan heimilis, svonefnd MST-fjölkerfa- meðferð, var hafist handa um innleið- ingu hennar. Fljótlega kom árangur hennar berlega í ljós og samhliða því að fjölkerfameðferðinni óx fiskur um hrygg fækkaði meðferðarheimilunum niður í tvö. Ísland er á meðal þeirra landa þar sem hvað bestur árangur hefur náðst í að draga úr vímu- efnaneyslu barna og lækka af- brotatíðni. Ekki leikur vafi á að með- ferðarstarf hefur þar vegið þungt þótt fleiri ástæður liggi að baki. Íslenskt samfélag var í afneitun á tilvist kynferðisbrota gegn börnum þegar Barnverndarstofa hóf starf- semi en eitt fyrsta verkefni hennar var að gera úttekt á umfangi og við- brögðum stofnana. Sú vinna leiddi til stofnunar Barnahúss, þverfaglegs samstarfs réttarvörslu-, heilbrigðis- kerfis og barnaverndar þar sem börn fá heildstæða þjónustu í barnvæn- legum aðstæðum, þ.m.t. læknis- skoðun. Með þessu fyrirkomulagi var börnum forðað frá ítrekuðum og íþyngjandi skýrslutökum jafnframt því sem leitast var við að bæta sönn- unargildi framburðar með gagn- reyndum viðtalsaðferðum. Segja má að með starfsemi Barnahúss hafi ver- ið leitað jafnvægis á milli tvennra grundvallarréttinda sem oft hefur verið stillt upp sem andstæðum, þ.e. lagreglnanna um réttláta máls- meðferð annars vegar og hins vegar að hagsmunir barna skuli ávallt hafa forgang. Barnahús hóf starfsemi 1998 og vakti strax alþjóðaathygli. Í kjöl- farið hafa hátt í tuttugu Evrópuríki komið á fót barnahúsum að þessari fyrirmynd í rúmlega 60 borgum. Hug- takið „barnahus“ er orðið alþjóðlegt heiti sem notað er á vettvangi fagfólks og talsmanna mannréttinda víða um veröld. Oft hafa vindar blásið um Barna- verndarstofu, þannig var tilkoma Barnahúss alls ekki fagnaðarefni allra í fyrstu. Lokun meðferðarstofnana var oft tilefni þess að spjót stóðu á stofunni enda eftirsjá að mörgu frá- bæru fólki sem lagði þar hönd á plóg. Jafnvel eftirlit stofunnar með barna- verndarnefndum og leyfisveitingar til fósturforeldra gátu leitt til snarpra og tilfinningaríkra viðbragða. Lifandi umræða stuðlar að framförum en get- ur skaðað sé hún ekki málefnaleg. Nú stendur fyrir dyrum tímabær umsköpun í málefnum barna á Íslandi undir forystu dugmikils barna- málaráðherra sem vænta má góðs af. Sem fyrrverandi forstjóri Barna- verndarstofu næstum allan starfstíma stofunnar vil ég árna fjölmörgu sam- starfsfólki í barnavernd fyrr og síðar allra heilla á þessum tímamótum. Eftir Braga Guðbrandsson » Barnaverndarstofa var afsprengi vakn- ingar um réttindi barna sem varð í kjölfar sam- þykktar Barnasáttmál- ans og fullgildingar hans hérlendis. Bragi Guðbrandsson Höfundur er fv. forstjóri Barna- verndarstofu og er fulltrúi í Barna- réttarnefnd Sameinuðu þjóðanna. bragi@uncrc.is Barnaverndarstofa í aldarfjórðung Athafnamaðurinn Bolli Kristinsson og Gunnar Gunnarsson, talsmaður Miðbæjar- félagsins, hafa haft sig nokkuð í frammi í fjöl- miðlum síðustu vikur og ítrekað andstöðu sína við breytingu Laugavegar, Banka- strætis og hluta Skóla- vörðustígs í göngu- götur allt árið. Nú kynna þeir til sögunnar við- horfskönnun sem Maskína fram- kvæmdi að ósk Miðbæjarfélagsins, en eins og búast mátti við fara þeir ekki rétt með niðurstöður hennar. Rangar tölur sem fram komu í fjöl- miðlum urðu í raun til þess að Mask- ína sá ástæðu til þess að bregðast við með frétt á heimasíðu sinni þar sem leiðréttum niðurstöðum er komið á framfæri. Í grein Kristjáns H. Johannessen blaðamanns í Morgunblaðinu 28. maí eru settar fram fullyrðingar um niðurstöðurnar sem endurspegla málflutning Bolla og Miðbæjar- félagsins sem standast ekki skoðun. Í fyrsta lagi er því haldið fram að meirihluti íbúa á höfuðborgarsvæð- inu segist vera ólíklegri til að heim- sækja miðbæ Reykjavíkur vegna götulokana. Gögnin sem birt eru í greininni sýna hins vegar augljós- lega að þetta er ekki rétt – aðeins er um að ræða 36%. Hið rétta er að 64% íbúa höfuðborgarsvæðisins telja jafnlíklegt eða líklegra að þeir heimsæki miðborgina verði áður- nefndar götur gerðar að göngugöt- um allt árið um kring. Í öðru lagi er því haldið fram að meirihluti íbúa á höfuðborgarsvæð- inu sé andvígur því að götunum verði breytt í göngugötur. Hið rétta er að 41% íbúa er hlynnt breyting- unum og 44% andvíg, en sá galli er á niðurstöðunum að erfitt er að meta afstöðu síðustu 15% íbúanna. Þátttakendur í könnuninni voru beðnir um að gefa afstöðu sína til kynna með því að merkja við á fimm stiga skala, þar sem valkostir 1-2 bentu til jákvæðrar afstöðu til breyt- inganna og valkostir 4-5 til nei- kvæðrar afstöðu. Samkvæmt gögn- unum í greininni merktu 15% við valkost 3, og eru þau sögð „í meðal- lagi jákvæð og neikvæð“. Gera má ráð fyrir því að flest þau sem eru hlutlaus gagnvart breytingunum hafi val- ið þennan kost, en hins vegar er engin inni- stæða fyrir fullyrðing- unni um að meirihluti íbúa höfuðborgar- svæðisins sé andvígur göngugötum í mið- bænum. Það má þó taka fram að greinin er þó nokkr- um mun nákvæmari en aðsend grein Bolla Kristinssonar um sömu könnun í Morgunblaðinu 2. apríl síð- astliðinn. Þar velur Bolli að líta al- gjörlega framhjá þeim 37,4% sem segja breytingarnar ekki hafa áhrif á líkurnar á því að þau heimsæki miðborgina. Þannig kemst hann að kolrangri niðurstöðu, sem þjónar málstað hans og Miðbæjarfélagsins betur en réttar niðurstöður könn- unarinnar. Ég hef áður rakið rang- færslur félagsins varðandi undir- skriftalista þess gegn lokunum gatna í miðbænum og niðurstöður könnunar Zenter-rannsókna frá því maí í fyrra og mun því ekki fara nán- ar yfir þær hér. Eftir að hafa fylgst með málflutn- ingi Miðbæjarfélagsins og Bolla Kristinssonar um göngugötur í mið- bænum í Reykjavík síðustu misseri kemur í raun bara tvennt til greina. Að talnalæsi þeirra sé að einhverju leyti ábótavant eða að heiðarleiki í upplýsingamiðlun skipti litlu máli. Hvort ætli það sé? Rangfærslurnar um könnun Maskínu koma því ekki á óvart. Hins vegar er full ástæða til þess að hvetja Morgunblaðið og aðra fjöl- miðla til þess að kynna sér málin til hlítar áður en þeir miðla þeim upp- lýsingum sem frá Miðbæjarfélaginu koma. Um talnalæsi Miðbæjarfélagsins og umfjöllun Morgunblaðsins Eftir Pál Tómas Finnsson » Í greininni Höfuð- borgarbúar gegn lokunum í Morgun- blaðinu 28. maí eru settar fram rangar niðurstöður um viðhorf til göngugatna í mið- borg Reykjavíkur. Páll Tómas Finnsson Höfundur er upplýsingaráðgjafi og áhugamaður um vistvænar borgir. palltomas@finnsson.dk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.