Morgunblaðið - 02.06.2020, Page 28

Morgunblaðið - 02.06.2020, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 2020 VIÐ GERUM VIÐ allar tegundir síma, spjaldtölva og tölva Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Aðfaranótt 17. febrúar 1794 dreymdi séra Sæmund Magnússon Hólm að hann væri í Kaupmanna- höfn. Móðir hans var þar og hann hafði gleymt ritsmíðum sínum á Íslandi. Hann leit út og sá tunglið í dagmálastað: „Veður var úti mik- ið með regn og svo snjó; mér þótti ég hafa þörfn- un á peningum og öllu því Ís- landsvera á Helgafelli gjörði mér það.“ Aðfara- nótt 28. desem- ber sama ár þóttist Sæ- mundur vera í kirkju utan- lands ásamt kennurum listaskólans í Kaupmannahöfn. Honum var afhent vegleg bók með teikningum utan á: „ég átti bókina, og iðraðist að ég fór þaðan í þenn- an dauðans þrældóm sem ég nú er í.“ Þegar þetta gerðist var Sæ- mundur 45 ára og hafði verið prestur á Helgafelli á Snæfellsnesi síðustu fimm árin, en áður dvalist fimmtán ár í Kaupmannahöfn við nám í myndlist og guðfræði. Hann saknaði borgarinnar og þótti mið- ur að vakna til íslensks veruleika, sem ekki var skemmtilegur: kröpp kjör og skuldabasl, harðvítugar deilur við nágranna og skilnings- leysi yfirboðara, með öðrum orð- um tómt puð og þras. Hann var listamaður og hafði skoðanir á samfélagsmálum, vildi láta til sín taka og gera gagn, en ekkert gekk upp. Drauma sína að næturlagi skrifaði hann hjá sér um árabil og er nokkuð af þeim varðveitt í handritadeild Landsbókasafns- Háskólabókasafns. Mestu varðar hefti með hendi hans frá árinu 1794 og þar eru draumarnir sem þegar er getið. Engin önnur dæmi eru um svo markvissa skrásetn- ingu frá fyrri öldum hér á landi og aðeins vitað um stopul tilvik í öðr- um löndum. Þessir textar eru einstæðir í ís- lenskri menningarsögu og hafa nú verið gefnir út í bókinni Drauma- dagbók Sæmundar Hólm. Már Jónsson bjó til prentunar (Selfoss: Sæmundur 2019). Það sem ein- kennir drauma Sæmundar er að þeir voru jarðbundnir og hvers- dagslegir. Þar eru aldrei opinber- ar eða trúarlegar sýnir sem ann- ars einkenna varðveittar draum- farir frá tímabilinu, svo sem hjá séra Jóni Steingrímssyni (1728- 1791) eða sænska trúspekingnum Emmanuel Swedenborg (1688- 1772). Hann dreymdi til að mynda aðfaranótt 25. mars 1744 að hann gekk niður miklar tröppur og fyrir neðan þær var djúp hola sem örð- ugt var að komast hjá. Hinum megin var fólk og hann rétti þeim höndina í von um aðstoð, en vakn- aði þá og þótti sem draumurinn benti til þess að hætt væri við því að hann félli í glötun, nema hann fengi hjálp. Reyndar dreymdi Sæmund eina nóttina að hann bjó sig undir að grafa Krist upp úr gröf að Helga- felli og öðru sinni ætlaði andskot- inn að ráðast á hann, en hafði ekki erindi sem erfiði: „hann var að sjá líkt og ferfættur með mjög ljótri ásýnd og dimmkolsvartur og nokk- uð í höggormslíki.“ Oftar dreymdi Sæmund hreinræktaða hugaróra, svo sem alls konar orma og maðka sem birtust og hurfu á víxl eða höfuðlausan Benedikt Bogason (1749-1819) á Staðarfelli á Fells- strönd, sem var einn ríkasti maður landsins og hafði verið með Sæ- mundi í skóla í Skálholti: „þótti mér af honum verða sett höfuðið og blæddi ekki úr og settist höf- uðið til fóta minna og var að tala einhverja heimsku.“ Eins gátu tíð- ir draumar um helstu óvini tekið á sig kostulega mynd, svo sem þegar Sæmundi fannst séra Björn Þor- grímsson (1750-1832), prófastur á Eyri í Eyrarsveit „smjúga undir kápu mína, sem eg ofaná mér hafði og var að hvískra um það að ég skyldi vera honum hlédrægur og láta falla okkar sakir, en ég þagði, svo heyrði ég á meðan til Backmanns, að hann var að ganga um kring okkur og komst hvergi nálægt með orðamasi og hávaða.“ Hallgrímur Backmann (1739-1811) var héraðslæknir í Bjarnarhöfn og höfðu þessir tveir menn að mati Sæmundar gert honum margvís- legar skráveifur, einkum fjárhags- legar. Aðrir draumar Sæmundar voru um hversdagslega starfsemi hans, svo sem þegar hann sinnti kál- garði á Helgafelli, var við smíðar eða orti „langloku“, en það kallaði hann eina tegund óralangra kvæða sinna. Aðeins einn samtíðar- viðburður þrengdi sér inn í draum, sem var bruni Kristjánsborgar- hallar í Kaupmannahöfn 26. febr- úar 1794. Fyrstu skip hljóta að hafa verið komin í hafnir á Vestur- landi þegar Sæmund aðfaranótt 9. maí dreymdi þetta: „Kom í Kaup- mannahöfn, fór niður Vimmel- skaftið og upp stóru Kaupmanna- götu, sá slotið sem nú er brunnið stóðu veggir en allt brunnið innan.“ Í þessum bruna fórust um 200 manns og byggingin eyðilagð- ist. Kristján konungur sjöundi var honum hugleikinn og aðfaranótt 21. ágúst voru þeir báðir staddir í Reykjavík: „Þótti mér ég vera í Reykjavík og var turn uppaf henni, og kóngur vera þar í, og all- ir í Reykjavík, og var hann prýði- legur og hár, en hann datt til land- suðurs með grundvelli og öllu saman og í smámola og allir hvurfu sem í voru eða dóu, og brá hlálega yfir öll hús hvurfu og jörð- in varð myrk mjög og þá sá allt illa út, ég sá þetta lengi og undr- aðist.“ Margir draumarnir tengjast langri dvöl í Kaupmannahöfn. Þar ber hæst tíða drauma um húðir og sútun við hús þar sem hann bjó hvað lengst, svo sem aðfaranótt 14. febrúar 1794: „Var í No. 268 í Aabenraae og sá margar bereidd- ar húðir blautar, sumar saman- vafðar sumar útbreiddar, og mörg ker stór full af vatni og húðum.“ Sútunastarfsemi þessi hafði var- anleg áhrif á Sæmund, ekki síður en bernskuheimili hans í Með- allandi, sem skemmdist allnokkuð í Skaftáreldum sumarið 1783 og létust móðir hans og tvö systkini það ár og árið eftir. Eina nóttina dreymdi hann: „Var á Staðarholti í Meðallandi. Var þar auð jörð og gras, gekk norður fyrir bæinn. Var þar vatn nokkuð og leir með húð- um er ég átti en ei vatn mikið, sá loft illa út sem reiðarslög og hagl koma mundi, fór faðir minn uppí mela, kom jarðfjúk norðan, – drap nokkrar lýs úr minni hnakkagróf, – sá teikningar ýmsar og ég teikn- aði með grænum farfa líkt og brum á tré.“ Faðir hans, Magnús Guðmundsson (1714-1788), hafði eignast tvö börn framhjá konu sinni, Guðleifu Sæmundsdóttur (1709-1783), og virðist sem þær aðstæður komi fram í draumi son- arins aðfaranótt 17. nóvember 1794. Þar voru Magnús og barn sem líktist honum en jafnframt kona sem Sæmundi virtist fyrst vera einhver önnur en móðir hans: „faðir minn var innar á palli mín megin og barn við mína vinstri síðu nokkuð frá líkt honum nokkuð móðir mín sneri að því en leit ei upp, við töluðum ekkirt. Hún var rétt eins og í lifanda lífi að öllu að sjá, meinti eg annars það væri í fyrstu önnur kona.“ Minningar um aðra sársaukafulla atburði sem Sæmundur lýsir í varðveittri sjúkrasögu sinni (sem einnig er í bókinni) birtast hins vegar ekki, svo sem slysfarir í æsku og kyn- ferðislegt ofbeldi sem hann varð fyrir af hálfu skólabróður í Skál- holtsskóla. Í þessu hefti túlkar Sæmundur aldrei drauma sína heldur bara skrifaði hann þá niður án athuga- semda og aldrei kemur fram af hverju hann gerði þetta. Hins veg- ar eru líka til slitur úr drauma- færslum hans frá efri árum og þá gætir viðleitni til ráðninga. Haust- ið 1819 taldi hann til dæmis að blaut hrosshá sem hann togaði upp á sig í rúminu gæti merkt að sér gengi „eitthvað í vil til framgangs, þó ólíklegt sé.“ Fáeinum dögum síðar skrifaði hann eins konar stefnuyfirlýsingu um skráninguna í tilefni af slikjublautum smokk sem kona færði hann í og fór vel: „Ekki mun þetta merkja illt, þó ljótt sýnist – ekki reiði eg mig uppá neinn draum, en skrifa þá til að ná þeirra náttúru.“ Ekki er gott að segja hvað hann átti við með því og fleira segir hann ekki um „náttúru“ drauma. Í einum síð- asta varðveitta draumi sínum, að- faranótt 28. desember 1819, bætti hann reyndar um betur og klykkti út: „Ekki set ég traust á drauma.“ Sæmundur lést í Stykkishólmi að- faranótt 5. apríl 1821, 72 ára gam- all, og var dánarbúið gjaldþrota. Hans er nú einkum minnst fyrir myndir sínar af framámönnum og fáeinar eldgosamyndir, að ógleymdum nýuppgötvuðum furðu- myndum af íslensku landslagi, en nú er óhætt að auka draumunum við afrekaskrá hans. Draumadagbók Sæmundar Hólm Bókarkafli Í Draumadagbók sinni lýsir Sæmund- ur Hólm, myndlistarmaður og prestur á Helga- felli á Snæfellsnesi á átjándu öld, draumum sínum árið 1794 en þar birtust tíðum andstæðingar hans á Helgafellsárum, þótt oftar dreymdi hann bernsku sína og Hafnarárin. Már Jónsson prófessor ritstýrði bókinni og ritar ítarlega um höfundinn. Aðfaraorð eru eftir Sjón. Ljósmynd/Þjóðminjasafn Íslands. Sjálfsmynd Matthías Þórðarson þjóðminjavörður hafði eftir „kunnugum mönnum í Stykkishólmi“ að þessi mynd Sæmundar frá 1. september 1803 væri sjálfsmynd, og taldi hæpið „að rengja það, að svo stöddu“. Sæmund Hólm dreymdi þessa drauma í febrúar 1794: Var í húsi einu gluggar af gleri stór- ir til O. og í öndvegi fyrir gafli að austan, kom allra mesta stórveður af O. með hagli og snjó, skalf, sat séra Björn Jónsson fyrr í Hólmaseli fyrir framan mig lágur mjög og var að eta allskyns mat og dró allt frá mér, ég tók þá frá honum það ætlaði ég mér, bjart, vakn- aði morgunn. Sá orm mjög langan svo 2 kvartel á lengd, hljóp á mína vinstri hönd og í lófann og smaug í skinnið lítið og út aft- ur en tolldi í þessari skinn- sprettu á miðju. Þá sagði ein- hver „gáðu að ormi á vinstri hendi“, ég leit á og tók í báða enda og sleit hann í þrjá parta, var þá sá eini partur í skinninu og tók ég hann líka burt og kastaði niður og hvorfu allir partarnir burt, en kenndi ei til minnsta og greri strax. Tveir draumar Ljósmynd/Landsbókasafn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.