Morgunblaðið - 02.06.2020, Page 32
sinnti verslunarstörfum á yngri
árum. „Ég var duglegur við að kynna
nemendum bókmenntir,“ segir hann
en neistinn til að skrifa hafi samt
ekki orðið að báli hjá sér fyrr en hann
varð 75 ára.
„Vinir mínir og frændur hafa
stundum sagt að ég væri ekki alveg á
réttri hillu, því þeir vildu sjá mig
skrifa meira en ég gerði,“ segir hann
um söguskrifin. „Þegar ég var 75 ára
þvertók ég fyrir að upp á það yrði
haldið, afþakkaði afmælisgjafir, en
þá tóku þeir það til ráðs að kaupa fyr-
ir mig tíma í skapandi skrifum í
Endurmennt Háskóla Íslands og því
gat ég ekki neitað.“ Hann sótti tíu
tíma hjá Önnu Heiðu Pálsdóttur og
segist hafa haft afskaplega gott af
því. „Þá komst ég af stað við að skrifa
og ekki varð aftur snúið.“
Foreldrar Péturs voru Jósef Jóns-
son, prestur í Grundarfirði 1919 til
1954, og Hólmfríður Halldórsdóttir.
Hann segir að skapandi neisti hafi
verið til staðar í æsku vegna sam-
skipta við sér eldra og reyndara fólk.
„Ég var langyngstur fimm systkina
og einnar uppeldissystur og þurfti
eiginlega á því að halda að hafa meira
samband við fólk en ég gerði, vegna
þess að ég var hálfgert einbirni.“
Svansprent prentaði bókina. Pétur
segir að hann sé nær tilbúinn með
fjórar smásögur til viðbótar og tvær
að auki séu langt komnar. „Ég ætla
að reyna að ljúka við næstu bók í júní
eða júlí. Kannski tekst það ekki en
við sjáum til. Ég er orðinn 82 ára og
tími til kominn að draga þetta ekki
allt of lengi, en ég hef ekki hugsað
lengra.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Betra seint en aldrei, segir máltækið
og það á vel við um Pétur Jósefsson,
sem nýlega gaf út bókina Ekki ský-
hnoðri á himni og er langt kominn
með aðra bók, sem væntanleg er síð-
ar á árinu, jafnvel í kringum 83 ára
afmæli hans í sumar.
„Ég byrjaði á bókinni upp úr 75
ára aldri og svolítill tröppugangur
hefur verið á skrifunum, stundum
hefur gengið vel og stundum illa, en
góður gangur hefur verið í þessu
undanfarin tvö
ár,“ segir höfund-
urinn. Leggur
áherslu á að hann
hafi haft bæði
gagn og gaman af
skrifunum.
Í bókinni eru
átta smásögur og
er titillinn kominn
úr einni þeirra.
Hún fjallar um Hallgerði og Gunnar,
sem eru að taka til í geymslunni hjá
sér og þar kemur fram að ekki hafi
verið skýhnoðri á lofti. „Mér fannst
þetta grípandi nafn,“ segir Pétur.
Hann var í Bandaríkjunum eitt ár
um miðjan sjötta áratuginn, lærði
ensku og kynnti sér bandarískar
bókmenntir. „Þá las ég verk eftir Er-
nest Hemingway, John Steinbeck,
Sinclair Lewis, Upton Sinclair og
fleiri og hafði afskaplega gott af því.“
Hann rifjar upp að þegar hann hafi
fengið sendibréf frá sér til vinar síns
til baka í kjölfar andláts þess síðar-
nefnda hafi hann séð hvað hann hafi
skrifað vondan texta. „Það varð til
þess að ég tók mér tak og fór að
skrifa góðan texta, svo góðan að ég
gæti verið blaðamaður á Morgun-
blaðinu, ef ég væri ekki orðinn 82
ára.“
Nám í skapandi skrifum
Kennsla var lifibrauð Péturs í 23
ár, en hann kenndi við Gagnfræða-
skólann á Akureyri frá 1966 til 1984
og við Verkmenntaskólann næstu
fimm árin. Hann vann við fasteigna-
sölu í yfir 20 ár auk þess sem hann
Neistinn í Grundar-
firði orðinn að báli
Fyrsta bók Péturs Jósefssonar komin út og önnur á leiðinni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rithöfundur Pétur Jósefsson er 82 ára og hefur sent frá sér fyrstu bókina.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202
hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennur frá GRÖVIK VERK í Noregi
Einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 154. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Það er klár plús að leikmannahópurinn er mjög svip-
aður. Leikmenn ná mjög vel saman og það er oft van-
metinn hluti fótboltans. Það er mikilvægara en að hafa
marga góða einstaklinga. Við erum með frábæra leik-
menn og svo er enn betri samstaða í hópnum,“ segir
Atli Sigurjónsson, leikmaður Íslandsmeistaranna KR,
meðal annars í samtali við Morgunblaðið í dag, en litlar
breytingar hafa orðið á leikmannahópi meistaranna á
milli ára. Nú styttist í að boltinn fari að rúlla á Íslands-
mótinu í knattspyrnu. »27
Samvinnan er oft vanmetinn
þáttur í fótboltanum að mati Atla
ÍÞRÓTTIR MENNING
Leikhópurinn Lotta
frumsýnir á Lottutúni
í Elliðaárdalnum á
morgun kl. 18 fjöl-
skyldusöngleik
byggðan á þjóðsög-
unum um Bakka-
bræður. Höfundur
leikritsins er Anna
Bergljót Thorarensen,
en í meðförum Lottu
fá Bakkabræður tæki-
færi til að segja sögu
sína á sínum forsendum og leiðréttar þær rangfærslur
sem ratað hafa í þjóðsögurnar. Leikstjóri uppfærsl-
unnar er Þórunn Lárusdóttir en með hlutverk bræðr-
anna fara Andrea Ösp Karlsdóttir, Júlí Heiðar Hall-
dórsson og Stefán Benedikt Vilhelmsson. Að vanda
sýnir Leikhópurinn Lotta um allt land í sumar. Vegna
fjöldatakmarkana, sem settar eru á í samræmi við
fyrirmæli sóttvarnalæknis, þarf að kaupa miða fyrir
fram á tix.is.
Lotta frumsýnir Bakkabræður