Morgunblaðið - 05.06.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 05.06.2020, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020 ✝ Hulda KristínVatnsdal fædd- ist í Reykjavík 7. febrúar 1958. Hún lést á Landspít- alanum 24. maí 2020. Foreldrar hennar voru Gissur Þorvaldsson, f. 1.9. 1929, d. 22.11. 2018 og Jensína Fanney Vatnsdal Karls- dóttir, f. 23.10. 1931, d. 23.10. 1971. Hulda átti sex systkini, al- systir hennar er Ragnheiður Jóna, f. 10.11. 1954. Hálf- bróðir hennar sam- mæðra er Karl Kristinn Júlíusson, f. 18.4. 1952. Hálf- systkini hennar samfeðra eru: Ás- gerður Svava, f. 21.3. 1964, Þorvald- ur Hrafn, f. 5.8. 1968, Hörn, f. 16.12. 1969 og Gunnlaug, f. 2.11. 1972. Hulda átti tvö börn, Arnar Þór Vatnsdal, f. 10.12. 1973, og Söndru Dögg Vatnsdal, f. 7.2. 1989. Hulda ólst upp í Reykjavík með systkinum sínum Karli og Ragnheiði. Hún bjó með móður sinni og systur í Svíþjóð á ár- unum 1969 til 1971. Hulda vann ýmis störf frá unga aldri en fór á fertugsaldri í sjúkraliðanám. Árið 2010 flyst hún til Noregs og starfar þar sem sjúkraliði, í Kirkenes og Hammerfest, til ársins 2012. Hún útskrifast úr framhaldsnámi sjúkraliða í öldrunarhjúkrun árið 2015 og hélt áfram að starfa við umönn- un. Útförin fer fram frá Selja- kirkju í dag, 5. júní 2020, klukk- an 15. Elsku systir. Það er svo skrítið að eiga ekki eftir að heyra í eða fá skilaboð frá þér. Samskipti okkar síðustu mánuði byrjuðu alltaf á „sæl gullið mitt, hvernig hefurðu það?“ og „hvernig er heilsan?“ Það eru svo margar góðar minn- ingar um þig gullið mitt sem ég geymi í hjarta mínu og get yljað mér við. Þú varst mér svo margt, þú varst með sterka réttlætis- kennd, trú sjálfri þér, alltaf bein í baki og svo falleg en fyrst og fremst varstu systir mín og ég elska þig. Ég kveð þig með þessu lagi sem Eyjólfur Kristjánsson syngur. Góða ferð Þér leiðist hér ég veit það kæra vina Þú vilt á brott að kanna nýjan stig en þig skortir kjark þú hikar og hugsar dag og nótt og hræðist að þú munir særa mig Góða ferð, góða ferð, góða ferð góða ferð já það er allt og síðan bros því ég geymi alltaf vina það allt er gafstu mér góða ferð, vertu sæl já góða ferð Við áttum saman yndislega stund við áttum sól og blóm og hvítan sand og skjól á köldum vetri er vindur nap- urt söng og von um gullin ský og fagurt lag Góða ferð, góða ferð, góða ferð góða ferð já það er allt og síðan bros því ég geymi alltaf vina það allt er gafstu mér góða ferð, vertu sæl já góða ferð Þó farir þú í fjarlægð kæra vina og fætur þínir stígi ókunn skref Hve draumar ræst hafa’ aftur þú áður sagðir mér þín ást var mín og brosin geymt ég hef Góða ferð, góða ferð, góða ferð góða ferð já það er allt og síðan bros því ég geymi alltaf vina það allt er gafstu mér góða ferð, vertu sæl já góða ferð Elsku Arnar Þór, Sandra Dögg og Eggert – mínar innileg- ustu samúðarkveðjur, hugur minn er hjá ykkur. Ragnheiður Gissurardóttir (Gagga systir). FÍ dag kveðjum við elsku syst- ur okkar sem kvaddi mun fyrr en við sáum fyrir. Hulda greindist með krabbamein í nóvember á síðasta ári og háði snarpa og erf- iða baráttu við sjúkdóminn. Hún tók veikindum sínum af miklu æðruleysi og vopn hennar voru styrkur og léttleiki. Hún var mik- ill töffari og húmorinn sem var kaldhæðinn og skemmtilegur var alltaf til staðar. Það var alltaf gaman að taka kaffibolla og létt spjall um líðandi stundir, en Hulda lá ekki á skoð- unum sínum og hafði þann góða eiginleika að sjá alltaf spaugileg- ar hliðar á málunum. Hulda var kraftmikil kona og fylgin sér, hún fór ekki alltaf auð- veldustu leiðina í lífinu en það sem einkenndi hana var kraftur- inn og eljan. Við kveðjum þig með hlýju og óskum þér góðrar ferðar í sum- arlandið – á vit ævintýranna. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku Andý, Sandra og Egg- ert – minning um sterka og skemmtilega konu lifir. Þín systkin, Ragnheiður, Ásgerður, Þorvaldur, Hörn og Gunn- laug Gissurarbörn. Elsku Hulda okkar er dáin eft- ir stutta baráttu við krabbamein. Hulda var uppáhaldsfrænka okk- ar systra. Hún og börnin hennar, Arnar Þór og Sandra Dögg, voru hálfgerð framlenging af fjöl- skyldu okkar og þær voru ófáar helgarnar sem við áttum saman í Borgarnesi þar sem við systur ól- umst upp. Þá biðum við spenntar eftir rútunni frá Reykjavík þegar Hulda var að koma í heimsókn. Þar sem Hulda var, þar var hlát- ur, tónlist og þar voru sagðar skemmtilegar sögur. Lífið færði frænku okkar ekki alltaf auðveld- ustu verkefnin, en hún leit ein- mitt á þau þannig, sem verkefni en ekki vandamál og þau voru til að leysa. Hún var einstaklega úr- ræðagóð. Hulda og mamma okk- ar voru systur og þær voru alla tíð mjög nánar. Það er sárt að hugsa til þess að hitta þig ekki aftur, elsku frænka, sjá ekki fallega brosið þitt, og heyra ekki smitandi ráma hláturinn sem nú ómar í huga okkar þegar við hugsum til þín og yljum okkur við góðar minningar. Þú fórst eigin leiðir hvað varðaði stíl og var það einn af þínum dásamlegu kostum. Í mörg ár gekkstu í tréklossum, alla daga, alltaf og í öllum veðr- um. Þegar gömlu klossarnir voru úr sér gengnir urðu þeir að veggskrauti eða blómapottum. Hrein og bein fram í fingur- góma varstu alla tíð. Þú sagðir hlutina eins og þeir voru. Þú varst alltaf boðin og búin að að- stoða okkur og ótrúlega vel les- in. Lög- og reglugerðir varðandi íbúðakaup, húsfélög eða annað tengt fjölbýlishúsum, það vissir þú og kunnir utan að. Ef við vor- um í vafa með einhver svona vesenismál sem fæstir nenna að hugsa út í þá hringdum við í þig, þú varst enga stund að finna út úr þessu ef þú vissir ekki svarið fyrir. Skötuveislan árið 2016 gleymist seint; þegar við ætluð- um að elda skötuna úti í garði á litlu hellunni í svo miklum snjó og kulda að suðan vildi ekki koma upp! Þá var mikið hlegið. Dásamlegt Þorláksmessukvöld. Þú varst þú alla leið og komst til dyranna eins og þú varst klædd. Samkvæm sjálfri þér alltaf og góð fyrirmynd hvað varðar heilindi og heiðarleika. Þú hugsaðir svo vel um þína og sást til þess að ættingjarnir hitt- ust og héldu sambandi. Við eigum svo margar góðar minningar með þér og um þig elsku besta frænka okkar. Tón- list, gleði og hlátur einkenndi þig alltaf og alla tíð. Við söknum þín. Elsku Andý og Sandra, við erum hér fyrir ykkur, alltaf. Sigrún, Ásrún og Eyrún. Hulda Kristín Vatnsdal ✝ Sigurður Rich-ardsson fædd- ist í Reykjavík 17. júní 1932. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Eir 27. maí 2020. Foreldrar Sig- urðar voru Louisa Norðfjörð Sigurð- ardóttir, f. 15.2. 1892, d. 14.1. 1953 og Richard Eiríks- son, f. 4.5. 1886, d. 30.9. 1971. Bræður hans voru Jón Sigmar, f. 1924 og Richard, f. 1926, báðir látnir. Sigurður kvæntist 5.9. 1956 Guðríði Gísladóttur frá Hellissandi, f. 5.9. 1933, d. 15.3. Anna María Sigurðardóttir, f. 4.5. 1961, í sambúð með Viðari Sigurðssyni, þeirra börn eru Sigurður Viðarsson og Bryndís Viðarsdóttir. 3) Brynja Sigurð- ardóttir, f. 22.9. 1963, hennar sonur Hákon Hermannsson. Sigurður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1952, stundaði nám í lögfræði og síðar viðskiptafræði við HÍ, efnafræði við Technische Hoch- schule í Vínarborg og við Freie Universität í Berlín. Sigurður starfaði sem kennari við Iðn- skólann í Reykjavík frá 1957 til 1997. Hann kenndi eðlis- og efnafræði ásamt stærðfræði en síðustu árin kenndi hann að- allega tölvufræði. Hann starfaði við landmælingar öll sumur á fyrstu árum kennslunnar. Útför Sigurðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 5. júní 2020, og hefst athöfnin klukkan 15. 2001, foreldrar hennar Brynhildur Sveinsdóttir, f. 1901, d. 1979 og Gísli Þorsteinsson, f. 1887, d. 1936. Dætur Sigurðar og Guðríðar eru: 1) Louisa Sigurð- ardóttir, f. 7.11. 1956, gift Pétri Hauki Ólafssyni, börn þeirra Hildur Pétursdóttir, gift Hjörleifi Jóns- syni, þeirra börn Jón Óli, Arndís og Pétur Örn. Ólafur Haukur Pétursson, í sambúð með Jónínu Sif Eyþórsdóttur, þeirra dóttir Anna Louisa Ólafsdóttir. 2) Elsku afi minn, það er með miklum trega sem ég kveð þig nú. Á stundu eins og þessari er margt sem kemur upp í hugann því stundir okkar voru margar. Afi var besti afi sem hægt var að hugsa sér og gott var að geta alltaf leitað til hans því hann var alltaf tilbúinn til að hlusta á það sem ég hafði fram að færa. Þeir sem þekktu hann vita hversu klár og skemmti- legur hann var og með stórt hjarta. Hann hafði í gegnum tíðina haft ýmsar dellur, þá m.a. ann- ars ljósmyndadellu sem gæti að mörgu leyti skýrt minn áhuga á ljósmyndun. Mér þykir þó erfitt að geta ekki ráðfært mig við þig þegar ég þarf á því að halda en þó svo að ég muni ekki hitta þig aftur, þá mun ég halda áfram að hugsa til þín og mun minningin um þig ávallt lifa. Ég kveð þig með mikinn söknuð í hjarta en á sama tíma er ég þakklát fyrir allar þær stundir sem við átt- um saman. Núna ertu kominn til ömmu og ég veit að þið munið passa vel upp á hvort annað. Þótt döpur sé nú sálin, þó mörg hér renni tárin, mikla hlýju enn ég finn þú verður alltaf afi minn. (Höf. ók.) Ég elska þig, afi minn, og mun ávallt hugsa til þín. Þín eina, Bryndís. Kveðja frá samstarfs- mönnum við Iðnskólann í Reykjavík Nú þegar íslenska þjóðin er vonandi að rísa upp úr kór- ónukófinu fellur einn litríkasti og skemmtilegasti kennari landsins, Siggi Rikk, í valinn. Ógleymanlegur öllum sem kynntust honum. Eftir stúdentspróf úr MA og efnafræðinám í Vínarborg hóf hann kennslu í raungreinum við Iðnskólann í Reykjavík á sjötta áratug síðustu aldar. Hlutverk skólans þá var að annast kennslu samningsbund- inna iðnnema, aðallega í al- mennum bóklegum greinum og helstu faggreinum og fagteikn- ingum. Kennsluhættir Sigurðar Richardssonar voru ólíkir flestu sem nemendur höfðu áð- ur kynnst úr skólakerfinu. Hann byggði upp vel búna kennslustofu í efna- og eðlis- fræði og þar var lögð lítil áhersla á formúlustagl með dóseringum og yfirheyrslum upp við töflu. Siggi Rikk fór þá leið að kynna helstu leyndardóma raungreinanna með sýni- kennslu og fór jafnan á kostum. Kennslan var lífleg og skemmtileg og enginn skemmti sér betur en kennarinn. Hann galdraði fram norðurljós undir glerhjálmi með loftdælu og spantæki, sýndi áhrif lofttæmis á vökva og hluti og Van der Graf-rafallinn skýrði áhrif stöðurafmagns og kom nem- endum í stuð. Helstu lögmál eðlisfræðinnar voru kennd með slíkum aðferð- um. Hann lék líka listir sínar í efnafræði þar sem efnahvörf voru sýnd með litabreytingum í upplausnum með tilheyrandi gosum og sprengingum eða framleiðslu á illþefjandi lyktum sem stundum höfðu þau áhrif að yfirgefa þurfti kennslustof- una. Í stuttu máli má lýsa kennsl- unni sem vísindalegu uppi- standi. Eftir á að hyggja er hugsanlegt að sumir nemendur hafi ekki gert sér fulla grein fyrir því hversu hnitmiðuð kennslan var heldur álitið þetta sprell og leikaraskap. Það væru bestu meðmælin með góðri kennslu. Siggi leit á nemendur sína sem jafningja og félaga og eignaðist ótal vini úr hópi þeirra. Þegar misvitrir námskrár- gerðarmenn ákváðu að fella niður þessar greinar í iðnnámi breyttust kennsluhagir Sigga. Þá tók hann að sér kennslu í stærðfræði, bókfærslu og þýsku. Það gekk ágætlega en það dró úr eldmóði og áhuga. Kulnun í starfi? Nei aldeilis ekki. Þegar ný námsgrein með tilheyrandi búnaði og græjum leit dagsins ljós í upphafi átt- unda áratugarins reis Siggi Rikk upp rétt eins og fuglinn Fönix forðum. Við upphaf tölvualdar var hann réttur maður á réttum stað á réttum tíma og undra- fljótt tileinkaði hann sér tæknina. Líklega var hann með þeim fyrstu til að átta sig á því að tölvan er hvorki ritvél á ster- um né leiktæki heldur framtíð- aratvinnutæki með óteljandi möguleika. Margir makkavinir leituðu til hans og á svip- stundu varð hann að tölvugúru sem átti sinn þátt í því að Iðn- skólinn tók forustu í tölvu- kennslu. Samstarf þeirra Ingvars Ás- mundssonar, þáverandi skóla- stjóra, og fleiri öflugra tækni- manna leiddi til þess að skólinn setti á stofn tölvu- brautir fyrir vél- og hugbúnað. Ekki skynjuðu allir skólamenn og atvinnulífsforkólfar þörfina á slíkri menntun en nú vildu allir þessa Lilju kveðið hafa. Um þátt Sigga í félagslífi samstarfsmanna mætti margt segja og oft var gengið með honum um gleðinnar dyr. Ljúf- mennska hans, orðheppni, grallaraskapur og dillandi hlátur lifa með okkur. Við sendum dætrum hans og fjölskyldum þeirra okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Það er með virðingu, vænt- umþykju og eftirsjá sem við vinir og samstarfsmenn kveðj- um goðsögnina Sigga Rikk. Frímann I. Helgason. Sigurður Richardsson Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar RAGNARS H. GUÐMUNDSSONAR, Arnarási 15, Garðabæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks Ísafoldar fyrir umhyggju og alúð. Guðrún Sigríður Jóhannsdóttir og fjölskylda Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og systir, HALLA ÁGÚSTSDÓTTIR, lést á spítalanum á Selfossi mánudaginn 18. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ágústa Kristrún Ingvarsdóttir Ragnhildur Björk Ingvarsdóttir, Tómas Th. Guðmundsson Guðrún Ágústsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.