Morgunblaðið - 05.06.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 05.06.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020 50 ára Hrafnhildur er frá Hvammstanga en býr í Reykjavík. Hún er landfræðingur frá HÍ og er með MSc-gráðu í skipulagsfræði og sam- göngum frá HR. Hrafn- hildur er ráðgjafi hjá ráðgjafarfyrirtækinu Alta. Hún er formað- ur blakdeildar Þróttar Reykjavík. Maki: Hrafn Margeirsson, f. 1966, sölu- maður hjá Gæðabakstri. Börn: Örn, f. 1992, Margeir, f. 1994, Eld- ey, f. 2000, og tvíburarnir Hekla og Katla, f. 2003. Foreldrar: Brynja Bjarnadóttir, f. 1942, fv. skrifstofukona, búsett á Hvammstanga, og Brynjólfur Sveinbergsson, f. 1934, d. 2016, mjólkurbústjóri á Hvammstanga. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Notfærðu þér þann hæfileika þinn að vera fundvís á missmíðir. Njóttu þess að vera með öðrum og að deila draumum þínum og framtíðarvonum með þeim. 20. apríl - 20. maí  Naut Þetta getur orðið mjög skemmti- legur dagur. Forðastu deilur við foreldra þína í dag. Leitaðu ráða hjá þér reyndari mönnum, ef einhver efi leynist í brjósti þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú er að renna upp nýtt skeið í lífi þínu. Hafðu það hugfast að kurteisi kostar ekkert og með hana að vopni nærðu betri árangri en með frekju og ólát- um. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gættu þess vel að vera heill í sam- skiptum þínum við aðra. Hafðu það að leiðarljósi og trúðu því að þú sért ábyrgur fyrir eigin lífi. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Sumir vilja hafa stuð, en ekki allir þó. Taktu lífið ekki of alvarlega. Annars verður það áfram utan seilingar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það getur oft hjálpað að koma að verkefnunum úr nýrri átt svo ekki sé nú talað um að þiggja ráð hjá sér reyndari mönnum. Sjálfstraust þitt mun verða öðr- um innblástur og gæfan fylgir þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér finnst einhvern veginn allt rekast hvað á annars horn. Láttu aðra ekki hafa áhrif á ákvarðanir þínar í þessum efnum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu það ekki hvarfla að þér að láta aðra um að leysa þín mál. Og með því að kenna öðrum getur þú æft þig í snilli á þessu sviði. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt þú megir ekki vanrækja skyldur þínar í vinnunni ættirðu að reyna að verja meiri tíma með fjölskyldunni. Hugsaðu því vel þitt ráð. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér hættir til að leita langt yfir skammt og það á við núna í því máli sem þú þarft aðallega að fást við. Dagurinn í dag færir þig skrefi nær markmiði þínu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Dagurinn í dag virðist klæð- skerasaumaður til þess að eyða tíma. Leyfðu öðrum að njóta gleðinnar með þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einbettu þér að starfi þínu og frama. Vertu óhræddur við breytingar því þær eru nauðsynlegur þáttur af tilverunni. Sigurður Rúnar var kjörinn í hreppsnefnd Laxárdalshrepps frá 1978, síðar Dalabyggðar, og var odd- viti 1986-1998. Hann gegndi marg- víslegum nefndar- og trúnaðar- störfum og sat meðal annars í sameiningarnefnd sveitarfélaga, í stjórn Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi, stjórn Heilsugæsl- unnar í Búðardal, stjórn Dala- gistingar, þ.e. Hótel Eddu á Laug- vörum féllu vel að þörfum neytenda og unnu hylli þeirra auk þess sem margar þeirra unnu til ýmissa verð- launa. Þetta voru annasamir og skemmtilegir tímar með góðum starfsmönnum. Eftir 53 ára starf hjá Mjólkursamsölunni er margs að minnast og vil ég sérstaklega nefna góð kynni mín af mörgum aðilum – starfsfólki, bændum, kjósendum og ýmsum öðrum aðilum.“ S igurður Rúnar Friðjónsson er fæddur 5. júní 1950 í Reykjavík. Hann ólst þar upp og í Búðardal en flutt- ist síðan með foreldrum sínum í Stykkishólm 15 ára gamall. „Ég fór ungur í sveit á sumrin til afa og ömmu á Breiðabólsstað og ásamt sveitastörfum fór ég ungur að vinna almenn störf.“ Sigurður Rúnar gekk í Barnaskóla Búðardals, Laugarnesskóla í Reykja- vík, var í Skógarskóla einn vetur og síðan Gagnfræðaskólanum í Stykkis- hólmi. „Að loknu skyldunámi fór ég að læra húsasmíði í trésmiðjunni í Stykkishólmi og lauk námi í 1.-2. bekk frá Iðnskóla Stykkishólms . Ég er því hálfur húsasmiður.“ Hann hætti námi í húsasmíði og hóf nám í mjólkuriðn 1967 og útskrifaðist frá Dalum mejeriskole í Óðinsvéum í Danmörku með framhaldsnám í tæknifræði í júní 1971. Sigurður Rúnar hóf síðan störf hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík og vann þar 1971-1977 við framleiðslu, vöruþróun, verkstjórn og fleira. Hann varð mjólkurbústjóri hjá Mjólkursamlaginu í Búðardal í apríl 1977, auk Mjólkursamlags Vestur- Barðstrendinga 1993-1999, MS Hvammstanga 1999-2002, MS Blönduósi 2000-2006 og MS Ísafirði september 2002-31.12. 2006. „Segja má að þessi samvinna hafi síðan verið upphafið að sameiningu mjólkuriðn- aðar á Íslandi.“ Síðan tók hann við sem mjólkurbústjóri hjá MS Akur- eyri eftir sameiningu eða frá 1.1. 2007-2013 en þá flytur hann til Reykjavíkur. Sigurður Rúnar lauk störfum hjá MS um síðustu mánaða- mót. „Vöruþróun og nýjungar, og tækni- nýjungar, hafa alltaf heillað mig mjög mikið. Hafa vinnufélagar mínir stundum gert grín að mér hvað ég sé nýjungagjarn. Fljótlega eftir að ég hóf störf hjá Mjólkursamsölunni kom ég ásamt fleirum að þróun Kókó- mjólkur og sýrðum rjóma o.fl. Í Búð- ardal hófum við síðan framleiðslu á Dala Brie og Dala Yrju sem stuðlaði að aukinni fjölbreytni á íslenskum ostum. Svo má nefna Dala Feta, Hrís- mjólk, LGG, bakaðar ostakökur og margt fleira. Margar af þessum nýju um, samgöngunefnd Vesturlands, var formaður Gilsfjarðarnefndar, í stjórn uppbyggingar á Eiríksstöðum – Leifur heppni – og stjórn Dvalar- heimilis aldraðra á Fellsenda. „Fé- lagsmálin hafa alltaf heillað mig mik- ið. Stóru verkefnin í hreppsnefndinni voru vatnsveita, gatnagerð í Búðar- dal, hitaveita, sameining sveitar- félaga og vinna að ýmsum hags- munamálum.“ Hann var enn fremur formaður kjördæmisráðs sjálfstæð- ismanna á Vesturlandi, varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins 1991- 1995 og sat sem varamaður á Alþingi jan.-feb. 1994. „Helstu áhugamál mín eru fjöl- skyldan, ferðalög, kynna sér ný tæki- færi og möguleika á ýmsum sviðum, félagsmál og margt fleira.“ Fjölskylda Eiginkona Sigurðar Rúnars er Guðborg Tryggvadóttir, f. 11.4. 1948, fyrrverandi stuðningsfulltrúi í Grunnskólanum í Búðardal. Þau eru búsett í Reykjavík. Foreldrar Guð- borgar voru Tryggvi Gunnarsson, f. 12.12. 1884, d. 16.8. 1954, bóndi í Arn- arbæli á Fellsströnd, og Guðmunda Kristín Elísabet Þórólfsdóttir, f. 20.11. 1917, d. 30.10. 2015, húsfreyja í Sigurður Rúnar Friðjónsson, fyrrverandi mjólkurbústjóri í Búðardal og á Akureyri – 70 ára Með systkinum og foreldrum Efri röð frá vinstri: Þórður, Sigurður Rúnar, Steinunn Kristín, Helgi Þorgils og Lýður Árni. Neðri röð: Kristín og Friðjón. Myndin er frá 60 ára afmæli Kristínar. Kom með margar vinsælar vörur Mjólkurbústjórinn Sigurður Rúnar að meta Dala Brie við upphaf fram- leiðslunnar í Búðardal, en meðal fleiri nýrra vara voru Dala Yrja og LGG. 40 ára Elva Björk er Vestmanna- eyingur, fædd þar og uppalin. Hún er verkstjóri hjá Leo Seafood og þjónn á Einsa kalda. Maki: Hörður Þór Harðarson, f. 1978, bílstjóri hjá Leo Seafood. Börn: Birta Líf Jóhannsdóttir, f. 2000, Hekla Sól Jóhannsdóttir, f. 2002, Gabríel Þór Harðarson, f. 2008, og Lúkas Goði Harðarson, f. 2016. Foreldrar: Einar Bjarnason, f. 1956, fjármálastjóri hjá Leo Seafood, og Ester Ólafsdóttir, f. 1956, fisktæknir hjá Leo Seafood. Þau eru búsett í Vestmannaeyjum. Elva Björk Einarsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.