Morgunblaðið - 05.06.2020, Side 26

Morgunblaðið - 05.06.2020, Side 26
 Ungi framherjinn þarf að skora mörkin fyrir nýliðana í sumar  Þróttarar hvergi bangnir ÞRÓTTUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Knattspyrnukonan Linda Líf Boama verður í brennidepli hjá nýliðum Þróttar á Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar. Linda er 18 ára gömul og spilaði sitt fyrsta alvöru tímabil fyrir meistaraflokk í fyrra þegar hún skaut Þrótturum til sigurs í 1. deildinni en hún skoraði 22 mörk í 18 leikjum. Þar áður spilaði hún tvö sumur með liði HK/Víkings og skoraði þrjú mörk í 20 deildarleikjum. Þrótturum, sem síðast spiluðu í efstu deild 2015, er víða spáð neðsta sætinu eins og gjarnan fylgir nýliðum. Linda segist gefa lítið fyrir spárnar og segir þær einfaldlega tækifæri fyrir liðið til að koma öllum á óvart. „Fólk má spá okkur hvar sem það vill, sagan segir okkur að þessar spár segja lít- ið. Í fyrra var okkur spáð fjórða sæti og við unnum deildina. Núna er okkur spáð tíunda sæti af tíu lið- um og við förum pressulausar inn í þetta tímabil, getum komið öllum á óvart og sýnt hvað við get- um.“ Við duttum í lukkupottinn En hvernig koma Þróttarar undan vetrinum og furðulegu undirbúningstímabili? „Þetta hefur auð- vitað verið mjög óhefðbundið undirbúningstímabil og það er margt sem þarf að fínpússa, til dæmis eru útlendingarnir okkar nýkomnir úr sóttkví en við reddum þessu öllu fyrir tímabilið. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að öll liðin eru í sömu að- stæðum.“ Þróttur hefur fengið þrjá útlenska leikmenn fyr- ir átökin í sumar en það eru bakvörðurinn Mary Alice Vignola frá Bandaríkjunum, miðjumaðurinn Laura Hughes frá Ástralíu sem er nýkomin til landsins og framherjinn Stephanie Riberio frá Bandaríkjunum. Hins vegar er Lauren Wade frá Norður-Írlandi farin til Skotlands en hún skoraði 20 mörk fyrir Þróttara á síðustu leiktíð. „Við erum mjög heppnar og höfum dottið í lukkupottinn. Við fengum frábæran vinstri bak- vörð sem styrkir vörnina okkar gífurlega mikið. Svo fengum við ástralskan miðjumann sem við höf- um ekki getað verið í miklum samskiptum við en erum spenntar að fá hana á miðjuna. Svo er fram- herjinn Stephanie sem ég er mjög spennt að fá að spila með í sumar, þótt við séum bara búnar að æfa saman tvisvar og spila einu sinni. Það verður auð- vitað erfitt að fylla í það skarð sem Lauren skilur eftir sig, en hún er ekki síðri.“ Mörk félaganna jafn mikilvæg Eins og fyrr segir skoraði Linda 22 mörk í fyrra og verður í sumar án Wade en þær náðu einkar vel saman á síðustu leiktíð. Það mun því mikið mæða á ungum herðum í sumar en blaðamað- ur hefur það á tilfinningunni Linda sé róleg og stillileg, eins og kannski ungir knattspyrnu- menn sem skora yfir 20 mörk á tímabili þurfa að vera. „Ég segi bara eins og ég hef sagt áður; ég tek einn leik í einu og reyni mitt allra besta í hverjum og ein- um. Ég mun ekki reyna að skjóta úr einhverjum fáránlegum færum til að auka við markatöluna mína. Í sumar verður hvert og eitt mark alveg gíf- urlega dýrmætt og við verðum að skora sem lið. Mörk liðsfélaganna eru jafn mikilvæg og mín,“ segir Linda og viðurkennir að Þrótt- arar geti ekki alltaf spilað eins og í fyrra, þar sem mikið var blásið til sóknar og liðið skor- aði 74 mörk í 18 leikjum. „Við vorum mjög sóknarsinnað lið í fyrra, við vorum með hópinn í það. Þetta verður auð- vitað erfiðari keppni í sumar. Ég finn alltaf fyrir pressu þegar ég spila fót- boltaleik en spennan yfirtekur pressuna.“ Við vitum að þetta verður mjög krefjandi, það vita það allir. Við leggjum sumarið upp með því að hafa hausinn og liðsandann í lagi, það gerir gæfumuninn. Það er ekki mikil reynsla í liðinu en við erum með góð- an kjarna frá því í fyrra og frábæra útlendinga. Þetta verður lærdómsríkt fyrir marga í liðinu, mig meðtalda, en það vantar alls ekki keppnisandann, ég get alveg sagt þér það.“ Hlakka til að heyra lætin Linda brautskráðist á dögunum frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og til stendur að hún fari til Boston í Bandaríkjunum í haust. Hve- nær nákvæmlega hún heldur út í háskólaboltann vestanhafs liggur ekki fyrir vegna heimsfaraldurs- ins en hún segist þó ekki hafa áhyggjur, enda vilji hún spila sem flesta leiki á Íslandsmótinu. „Maður veit aldrei með þetta blessaða ástand, þetta er skólastyrkur til Boston og hljóðið í þeim er á þá vegu að þetta verði á réttum tíma. Ef því seinkar eitthvað er það ekki hræðilegt, ég vil ná sem flestum leikjum hérna heima. Ég er mjög spennt fyrir þessu tímabili,“ segir Linda sem bíður í ofvæni eftir fyrsta heimaleiknum í Laugar- dalnum. „Við erum með geggjaðan stuðnings- kjarna í kringum okkur og ég hlakka til að spila fyrsta heimaleikinn og heyra lætin í fólkinu okk- ar,“ sagði Linda ennfremur í samtali við Morgun- blaðið. Komum á óvart Morgunblaðið/Hari Markaskorari Linda Líf raðaði inn mörkunum fyrir Þrótt í fyrra. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020 KNATTSPYRNA Mjólkurbikar karla, 1. umferð: JÁVERKS-völlur: Selfoss – Snæfell ...19:15 Hertz-völlurinn ÍR – KÁ ......................19:15 Fagrilundur: Smári – Njarðvík.................20 GOLF Golbúðar-mótið hefst í dag á Hólmsvelli í Leiru og lýkur á sunnudag. Er þetta annað mótið á stigamótaröð GSÍ í sumar. Keppt er í karla- og kvennaflokki þar sem spilaðar eru 54 holur. Flestir af snjöllustu kylfing- um landsins eru skráðir í mótið. Í KVÖLD! Arnar Pétursson, landsliðsþjálf- ari kvennalandsliðsins í hand- knattleik, hefur valið tuttugu og tvo leikmenn til æfinga en hóp- urinn mun hittast 15. júní og æfa saman fram að mánaða- mótum. Næsta verkefni lands- liðsins er forkeppni HM sem hefst í haust og eru æfingarnar í júní hluti af undirbúningi liðsins fyrir forkeppnina. Fjöldi leik- manna hefur snúið heim úr at- vinnumennsku undanfarið og fyrir vikið eru aðeins tveir leikmenn í hópnum sem útlit er fyrir að muni leika erlendis næsta vetur. Eru það þær Thea Im- ani Sturludóttir og Sandra Erlingsdóttir. Hópinn má sjá á mbl.is/sport/handbolti. Flestar hér heima Sandra Erlingsdóttir Heimilt verður að setja fimm varamenn inn í leik í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu þegar tímabilið hefst aftur 17. júní eftir þriggja mánaða hlé vegna kórónuveirunnar. Öll fé- lögin samþykktu tillögu þess efnis í dag en reglubreytingin er tímabundin. Þetta er í takt við breytingar sem flestar deildir í Evrópu hafa verið að setja til að hlífa leikmönnum sem nú snúa aftur á völlinn eftir langt hlé. Félögum verður áfram aðeins heimilt að stöðva leikinn þrisvar til að skipta leikmönnum sem og að nota leikhléið. Þá mega níu varamenn vera á leikskýrslu. kristoferk@mbl.is Fimm skiptingar Pep Guardiola Knattspyrnumaðurinn Salko Jazvin er genginn til liðs við Leiknismenn frá Fáskrúðs- firði en Leiknir verður nýliði í 1. deildinni í sumar. Jazvin er 27 ára gamall Bosníumaður og sóknarmaður að upplagi. Hann lék síðast með Zvijezda Gradacac í B-deildinni heima- landinu en Jazvin er sjötti leikmaðurinn sem semur við Leikni fyrir tímabilið. Bjarni Jóhannsson og hans menn hjá nýliðunum í Vestra fengu einnig leikmann í gær. Þar er um að ræða 24 ára gamlan spænskan bakvörð, Rafa- el Navarro Mendéz að nafni. Kemur hann til liðs- ins frá Atlético Mancha Real. sport@mbl.is Nýliðar styrkja sig Bjarni Jóhannsson 5. júní 1975 Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vinnur geysilega óvæntan sigur á Austur- Þýskalandi, 2:1, í undankeppni EM á Laug- ardalsvellinum en austurþýska liðið endaði í 5. sæti á HM ári áður. Ásgeir Sigurvinsson og Jóhannes Eð- valdsson skora tvö eftir- minnileg glæsimörk, Jóhannes með hjólhestaspyrnu, og Ís- land eygir allt í einu von um að komast áfram úr sterkum riðlinum eftir að hafa áður gert jafntefli við Austur- Þjóðverja og Frakka. 5. júní 1982 Þórdís Gísladóttir sigrar í há- stökki kvenna á bandaríska háskólameist- aramótinu í Provo í Utah þegar hún stekk- ur 1,86 metra. Óskar Jakobsson kastar 20,61 metra í kúlu- varpi á mótinu, er fjórði og nær sjötta besta árangri Norð- urlandabúa í greininni frá upphafi. 5. júní 1983 Ísland sigrar Möltu, 1:0, í und- ankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu á Laugardalsvell- inum. Atli Eðvaldsson, sem sólarhring áður skoraði fimm mörk fyrir Fortuna Düssel- dorf í Þýskalandi, skorar sigurmarkið. Hann og Pétur Ormslev voru sóttir til Düsseldorf með einka- flugvél til að spila leikinn. 5. júní 1996 Kvennalandsliðið í knatt- spyrnu á von um að komast í lokakeppni EM í fyrsta sinn þegar ein umferð er eftir af und- ankeppninni eft- ir 2:0-sigur á Hollendingum í Hollandi. Katrín Jónsdóttir og Ásthildur Helga- dóttir skoruðu mörkin. Sig- fríður Sophusdóttir varði víta- spyrnu í leiknum og Morgunblaðið segir hana hafa átt stórleik í markinu. 5. júní 2007 Ragnar Óskarsson er marka- kóngur í franska handbolt- anum með 168 mörk í 25 leikj- um. Hann er franskur meistari með Parísarliðinu Ivry. 5. júní 2016 Rhein-Neckar Löwen verður þýskur meistari í handknatt- leik í fyrsta skipti í sögu félagsins með íslensku lands- liðsmennina Alexander Pet- ersson og Stefán Rafn Sigur- mannsson innanborðs. Liðið hafnar stigi fyrir ofan Flens- burg en í sigri á Lübeck í loka- umferðinni 35:23 skorar Stef- án tvö mörk og Alexander eitt. Á ÞESSUM DEGI Þórey Rósa Stefánsdóttir, lands- liðskona í handknattleik, er barns- hafandi og verður því ekki með deildar- og bikarmeisturum Fram þegar Íslandsmótið hefst í haust. Þórey er annar lykilmaður ís- lenska landsliðsins og Framara sem á von á barni. Einar Ingi Hrafnsson, barns- faðir og unnusti Þóreyjar, sagði frá því á samfélagsmiðlum að þau ættu von á öðru barni sínu en Einar er sömuleiðis handbolta- maður, spilar með Aftureldingu í efstu deild. Þórey á von á sér í desember og sagði í viðtali við RÚV að hún væri staðráðin í að snúa aftur á völlinn eins fljótt og auðið væri, þó innan skynsamlegra marka. Sem fyrr segir er Þórey ekki ein um það að eiga von á barni í Safamýrinni. Landsliðsfyrirliðinn og leikstjórnandinn Karen Knúts- dóttir á von á sér í september og mun því einnig missa úr hluta af tímabilinu en ætti þó að snúa til baka fyrr. Það er stórt skarð sem þær tvær skilja eftir sig en Fram- liðið varð deildar- og bikarmeist- ari í vor áður en aflýsa þurfti tímabilinu vegna kórónuveiru- faraldursins. Liðið þótt afar sig- urstranglegt í úrslitakeppninni með þær Þóreyju og Karen í far- arbroddi. Síðan þá hefur félagið samið við Guðrúnu Erlu Bjarna- dóttur leikstjórnanda sem gæti þá fyllt skarð Karenar að einhverju leyti. Mögulegt er að Framarar reyni að bæta við sig öðrum leik- manni í sumar. Landsliðskona barnshafandi Ljósmynd/Þórir Tryggvason Ólétt Þórey er annar Framarinn sem á von á barni í vetur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.