Morgunblaðið - 05.06.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.06.2020, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020 ✝ Sigurður fædd-ist á Felli í Kollafirði á Ströndum 18. mars 1935. Hann lést á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili, Akranesi 27. maí 2020. Foreldrar hans voru þau Hjálmar Björn Jónsson bóndi frá Kolla- fjarðarnesi, f. 14. júlí 1910, d. 3. júlí 1993 og Sæunn Ingibjörg Sigurðardóttir frá Bolungarvík, f. 29. apríl 1908, d. 4. apríl 1976. Sigurður var næstelstur fimm bræðra en þeir voru: Óli Jakob, f. 9. júlí 1932, d. 2016, Ágúst, f. 26. september 1944, Jón, f. 3. apríl 1938, Árni Ágúst, f. 30. nóvember 1948, d. 1987. Einnig ólst sonardóttir hans stoð og stytta við bústörfin. Hann sinnti ýmsum störfum, svo sem í fiskvinnslu og bygg- ingarvinnu, tók meiraprófið og starfaði sem bifreiðarstjóri, lengst af hjá Sementsverksmiðj- unni á Akranesi. Sigurður Ingi kvæntist 1. september 1962 Bjarnfríði Har- aldsdóttir, húsmóður og verka- konu, f. 16. mars 1940, d. 27. nóvember 2018. Foreldar henn- ar voru þau Haraldur Gísli Bjarnason, f. 1905, d. 1998 og Sigríður Þ. Guðjónsdóttir, f. 1910, d. 1995. Sigurður og Bjarnfríður eignuðust þrjú börn: 1) Sigríð- ur, f. 8. febrúar 1962, maður hennar er Jón Ágúst Þor- steinsson, f. 24. mars 1962. Börn þeirra eru: a) Hildur, f. 4. maí 1990, maður hennar Guð- mann Geir Sturluson, f. 28. júní 1990 og eiga þau þrjá syni: Styrmir Ari, f. 14. mars 2014, Óliver Ágúst, f. 14. júlí 2015 og Sigurður Fannar, f. 14. janúar 2018. b) Þorsteinn, f. 30. sept- ember 1991. c) Ingibjörg Elín, f. 27. maí 1998. 2) Sæunn Ingi- björg Sigurðardóttir, f. 8. jan- úar 1971, maður hennar er Björn Baldursson, f. 14. maí 1970, börn þeirra eru Baldur, f. 21. mars 2003, Sigurður Ingi, f. 21. mars 2003 og Bjarnfríður Ólöf, f. 14. febrúar 2005. Fyrir á Björn tvo syni: Ármann Örn, f. 13. júní 1990, unnusta hans Katrín Sveinsdóttir Bates, f. 7. september 1991 og Steinar, f. 9. febrúar 1995. 3) Haraldur, f. 19. mars 1975, sambýliskona hans er Elín Heiða Þorsteinsdóttir, f. 6. mars 1984. Börn þeirra eru Þorbergur Óttar, f. 21. júlí 2012 og Steinunn Inga, f. 3. júní 2014. Sigurður og Bjarnfríður stofnuðu heimili að Ásfelli 1 en byggðu sér síðan hús að Ásfelli 3. Þar stunduðu þau búskap í samstarfi við Ásfellsfjölskyld- una, ásamt öðrum störfum, voru samhent og undu sér vel við sveitastörfin. Þau bjuggu að Ásfelli þar til vorið 2018, þegar þau fluttu á Höfða. Útför Sigurðar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 5. júní 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. upp á heimili þeirra, Sæunn Óla- dóttir, f. 13. desem- ber 1958. Sigurður ólst upp á Felli í Kolla- firði á Ströndum, en dvaldi einnig mikið hjá ömmu sinni og afa á Kollafjarðarnesi, allt til 13 ára ald- urs en þá flutti fjöl- skyldan suður að Innsta-Vogi við Akranes. Þar bjuggu þau í nokkur ár, fluttu svo á Akranes en síðar keyptu foreldrar hans Ásfell í Innri-Akraneshreppi og bjuggu þar alla tíð. Sigurður gekk í farskóla norður á Ströndum og síðar tvo vetur í Barnaskóla Akraness. Hann gekk ungur í öll störf sem þurfti að gegna á sveitabæ og var alla tíð foreldrum sínum Elsku pabbi. Okkur vantar orð til að lýsa því hversu þakklát við erum að hafa átt þig að. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem er engu öðru líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez) Með kærri þökk fyrir allt og allt. Sigríður (Sirrý), Sæunn (Sæja) og Haraldur. Nú kveð ég tengdapabba minn eftir 30 ára yndislega samveru. Margar skemmtilegar minningar um hann mun ég geyma, hvort sem það voru gleðistundir með honum einum eða fjölskyldunni. Einn fastur punktur í tilver- unni var að fara með honum að smala Akrafjallið á haustin, hann í grænu úlpunni, stígvélum og með prik í hendi. Þar var hann í essinu sínu og spenntur fyrir hverri skjátu sem fannst. Hljóp um allt fjall þindarlaus. Svo þegar féð var komið niður í girðingu við réttina, þá beið okkar hún Fríða tengdamamma með kaffibrúsa og eggjabrauð. Það voru dýrðar- stundir. Ógleymanlegt var að ferðast um landið með þeim hjónum, en hann var mikill áhugamaður um bæi og sveitir. Með reglulegu millibili kom spurningin: „Veistu hvað þessi bær heitir?“ en hann þekkti þá flesta. Hann var einstaklega minnug- ur á kvæði og vísur og upplifun að hlusta á hann fara með heilu ljóðabálkana. Af honum hef ég margt lært og er þakklátur fyrir að hafa átt hann að. Jón Ágúst Þorsteinsson. Dagarnir eru sífellt að lengj- ast, allur gróður að komast í blóma, ljúfur fuglasöngur fyllir loftið nánast allan sólarhringinn og þegar allt iðar af lífi, kvaddi hann Siggi mágur minn og hélt á nýjar slóðir. Hann var orðinn lúinn og þreyttur, en sáttur við allt og alla. Vorið var hans tími, þá undi hann sér vel í sauðburði og gladdist yfir hverju nýju lífi sem leit dagsins ljós í fjárhúsunum. Hann átti nán- ast alla ævi eitthvað af kindum og það voru sannkallaðar dekurkind- ur sem hann nostraði við á allan hátt. Það koma margar minningar upp í hugann þegar ég hugsa um Sigga. Lítil stúlka er komin í skóla. Á morgnana fær hún far með mjólkurbílnum, en að skóladegi loknum þarf hún að ganga heim. Þó að kílómetrarnir séu ekki margir, er leiðin löng í huga henn- ar. Á þessum tíma eru bílar ekki margir í sveitinni og nánast engin umferð. Þegar veðrið er gott er allt í lagi, en stundum er hvasst á móti og kalt, frostið bítur í kinn- arnar og tær og fingur dofna af kulda. Þá er oft litið til baka. Það eru nefnilega suma daga á ferðinni bílar að sækja möl inn í sveit. Hann Siggi keyrir einn þeirra og hann stansar alltaf og býður far. Það gera sjaldnast aðrir bílstjór- ar. Og það lifnar yfir litlu stúlk- unni þegar Siggi kemur. Hann er alltaf brosandi og hlýr, kíminn á svipinn og spjallar á leið- inni. Þannig eru fyrstu minningar mínar um Sigga. Árum seinna er ég á þorrablóti í sveitinni og þá segir Siggi: „Dans- aðu við hann Jón bróður.“ Síðan höfum við Jón dansað saman í gegnum lífið í 55 ár. Þannig ófust örlagaþræðir saman, allt Sigga að þakka. Í rúmlega 50 ár áttum við Siggi eftir að búa nánast hlið við hlið og aldrei bar skugga á vináttu okkar. Ótal sinnum höfum við setið sam- an í kaffi og spjallað um alla hluti. Sigga voru æskustöðvarnar norður í Strandasýslu einkar kærar, þangað leitaði hugurinn oftar, eftir því sem á ævina leið. Fyrir nokkrum árum buðum við Jón þeim Fríðu og Sigga með okkur norður á Strandir um helgi. Þá var farið að Felli á æsku- stöðvarnar, þar þekkti Siggi hverja þúfu. Þetta er ógleyman- leg ferð. Þó að Siggi stundaði bifreiða- akstur nánast alla starfsævi sína var hann bundinn sveit og sveita- störfum sterkum böndum og áhugi hans á því sviði mikill. Í samkomubanni höfðum við ekki hist í langan tíma, en talast við í síma. Þremur dögum fyrir andlát sitt bað hann dóttur sína að hringja til mín og fá fréttir af okkur og vita hvernig sauðburður hefði gengið. Það var honum mikið áfall þeg- ar Fríða hans lést skyndilega fyr- ir einu og hálfu ári; en hann bar sig vel. Siggi var mikill fjölskyldu- maður og honum leið svo vel þeg- ar öll fjölskyldan kom saman. Hann var barngóður og hafði unun af að sjá barnabörn og lang- afastráka vaxa úr grasi. Lífsbókinni hans Sigga hefur verið lokað. Góður maður er genginn. Eftir standa ljúfar minningar sem við getum ornað okkur við. Við fjölskyldan sendum Sirrý, Sæju, Haraldi og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur Ragnheiður Guðmundsdóttir (Ragga). Sigurður Ingi Hjálmarsson ✝ Margrét Hel-ena Högna- dóttir fæddist 19. október 1939 í Bergen, Noregi. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli 27. maí 2020. Foreldrar henn- ar voru Högni Kristófersson, bóndi í Mið-Dal, f. 18.4. 1896, d. 1.2. 1969, og Anny Hermansen, f. 12.4. 1918, d. 25.11. 1965. Systkini hennar eru Auður, f. 1941, d. 2014, Anna, f. 1943, d. 2015, andvana stúlka, f. 1945, Kristbjörg, f. 1946, Au- bert, f. 1948, Helga, f. 1950, d. 2012, Ingibjörg, f. 1951 og Jó- hanna, f. 1954. Margrét giftist 11. janúar 1969 Hallgrími Sigurðs- syni, f. 11. apríl 1944. Foreldrar hans voru Sig- urður Einar Ein- arsson, f. 13. febr- úar 1899, d. 23. maí 1984, bóndi á Hólavatni í Austur- Landeyjum, og kona hans Elín Jónína Ingv- arsdóttir, f. 1. mars 1906, d. 17. mars 1991. Börn Margrétar og Hallgríms eru: 1) Elín Sigríður, f. 16. ágúst 1968, maki Sig- urjón Eyþór Einarsson, börn þeirra eru Hrafnhildur, maki Emilian Jasinski, börn þeirra eru Alexandra Barbara, Sig- urður Einar og Natalía Rós. Ír- is, barn hennar er Emilía Elín. Einar Vignir. 2) Anna Helga, f. 10. apríl 1970, börn hennar eru Guðjón Arnar, maki Sigríður Jóhannsdóttir og barn þeirra er Jóhann Jakob. Bjarni Þór. Eydís Ósk, maki Dagur Eg- ilsson, börn þeirra eru Valtýr Nökkvi og Ísold Nótt. 3) Hafdís Björk, f. 29. ágúst 1972, d. 22. nóvember 2019, maki Sæmund- ur Ólafsson, barn þeirra er Margrét Alda. Margrét ólst upp í Mið-Dal í Vestur-Eyjafjallahreppi, hún starfaði á yngri árum á vertíð- um í Vestmannaeyjum og á hóteli í Hveragerði. Hún var lengst af bóndi á Hólavatni í Austur-Landeyjum. Margrét var virk í félagsstörfum og starfaði í fjölmörgum kórum í gegnum árin, einnig starfaði hún í kvenfélögum og í orlofs- nefnd kvenna á Suðurlandi. Útför Margrétar fer fram frá Áskirkju í dag, 5. júní 2020, klukkan 11. Elskulega mamma mín mild og blíð var höndin þín. Æskusporin átti ég smá oft þú gladdir hugann þá. Létt og björt var lundin þín líkt og í heiði er sólin skín. Margar fagrar minningar man ég enn til huggunar. Enn rís sól við austurfjöll árdagsgeislar skína á völl. Eins er mynd þín hrein og há hún mér lýsir velferð á. Þegar loks mín lokast brá og lýk ég göngu jörðu á. Ég bíð þín milda móðurhönd mig leiði þá í sjónarlönd. (Pálína Pálsdóttir) Elsku mamma mín ég þakka samfylgdina í gegnum lífið. Þín dóttir, Elín Sigríður Hallgrímsdóttir. Nú legg ég augun aftur, ó, guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Elsku Stúlla, mig langar til að kveðja þig með nokkrum orðum. Þegar ég kynntist henni Hafdísi þá tókstu mér eins þú hefðir þekkt mig í mörg ár. Þú tókst mér svo vel og vildir allt fyrir okkur gera. Við kunnum mjög vel að meta aðstoð þína við að undirbúa af- mæli eða önnur tilefni. Þegar við eignuðumst Mar- gréti Öldu tókstu henni með opn- um örmum. Þú elskaðir að koma í heim- sókn til okkar í mat, kaffi eða bara til að spjalla. Takk fyrir allt, elsku Stúlla. Sæmundur. Elsku hjartans Stúlla mín, mikið er sárt að þurfa að kveðja þig og hafa ekki hitt þig í langan tíma vegna Covid 19. Þegar ég hringdi í þig í maí þekktir þú mig strax í símanum og sagðir: „Gunna mín, hvenær kemur þú eiginlega til mín?“ Ég sagði að við mamma myndum koma um leið og það væri búið að opna fyrir gesti aftur. En kallið kom áður en búið var að opna Hjúkrunarheim- ilið Skjól. Þegar ég talaði við þig varstu syngjandi kát og talaðir um að þig langaði að fara bíltúrinn okkar í Hafnarfjörð, sem var okkar húm- or í gegnum tíðina. Við töluðum um að við þyrftum að kíkja þang- að og fórum við þó nokkuð marg- ar ferðir í Hafnarfjörðinn, ég, þú og mamma. Minningarnar streyma um huga minn og ylja mér um hjartarætur. Ég var sannarlega heppin að vera ein af þeim sem áttu einstakt og traust samband við þig alla tíð. Ég er svo þakklát fyrir allar minningarnar okkar saman. Þú hélst mér undir skírn, eldaðir gómsætan mat fyrir ferminguna mína, passaðir Tönju í Kjarrhólmanum efst á 4. hæð og svo margt fleira. Þú varst hjá okk- ur í nokkra daga og í eitt skipti baðstu mig um blýant og nokkur blöð og ég botnaði ekkert í því hvað þú ætlaðir að gera við það. Þegar ég kom heim úr vinnu varstu búin að elda mat fyrir okk- ur Tönju og teikna á nokkur blöð mynd af Esjunni, ég var alveg heilluð af þessu listaverki og þú sagðist ætla að klára það og gefa mér. Ég er svo fegin að þegar við mamma komum fyrir jólin tókum við upp nokkrar jólakveðjur frá þér og sendum á fólkið, ég er svo þakklát fyrir það og öll mynd- böndin sem ég á þegar við mamma komum til þín og þú varst að syngja falleg lög fyrir okkur. Elsku hjartans Stúlla mín, með sorg í hjarta og táraflóði kveð ég þig í hinsta sinn og ég veit að elsku Hafdís tekur á móti þér og systur þínar líka. Elska þig til tunglsins og til baka. Þín elskandi að eilífu, Guðrún (Gunna) Ósk Hermansen. Margrét Helena Högnadóttir Hjartkær maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN Á. FJELDSTED, fyrrv. skólastjóri, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 30. maí. Ragnheiður Óskarsdóttir Fjeldsted Ragnhildur Fjeldsted Einar Sveinn Þórðarson Júlíus Fjeldsted Áslaug Salka Grétarsdóttir Ásta Sigríður Fjeldsted Bolli Thoroddsen og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi, GRÉTAR GUÐMUNDSSON taugalæknir, andaðist á Landspítalanum 27. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 12-E fyrir einstaka umönnun og hlýju. Þuríður Rúrí Jónsdóttir Marta Sæmundsdóttir Árdís Grétarsdóttir Guðjón Sigurður Arinbjörns. Áslaug Salka Grétarsdóttir Júlíus Fjeldsted Tinna Grétarsdóttir Einar G. Kvaran Arngunnur Ýr Gylfadóttir Larry Andrews Bryndís Halla Gylfadóttir Þórður Magnússon Baldur Gylfason Yrsa Þöll Gylfadóttir Gunnar Theodór Eggertsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR MARKÚS ÞÓRÐARSON byggingartæknifræðingur, áður til heimilis á Háteigsvegi 18, lést föstudaginn 29. maí. Útförin verður frá Háteigskirkju fimmtudaginn 11. júní klukkan 15. Blóm og kransar afþökkuð, þeim sem vilja minnast hans er bent á góðgerðarsamtök að eigin vali. Jenný Einarsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN JÓHANN VIGFÚSSON vélfræðingur, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands föstudaginn 29. maí. Útför fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 10. júní klukkan 13. Steinunn Kristín Jónsdóttir Sigurður Jakob Halldórsson Ingi Þór Jónsson Dalla Rannveig Jónsdóttir afabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.