Morgunblaðið - 05.06.2020, Side 32
Stella Önnudóttir Sigurgeirsdóttir opnaði 4. júní sl.
sýningu á Mokka með yfirskriftinni Andartaks lotning.
Er það ellefta einkasýning Stellu sem hefur tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum hér á landi og erlendis.
Stella vinnur út frá sölnuðum blóm-
um og jurtum, jurtum sem hún hef-
ur rekist á og hafa vakið áhuga
hennar og eftirtekt. Hún tekur
jurtirnar með sér á vinnustofuna
og fylgist með atburðarásinni
sem á sér stað þegar þær visna á
náttúrulegan hátt. Öll verkin eru
unnin í vatnslit, gull, hvítagull eða
silfur á tré á þessu ári og í fyrra. „Líkt og
manneskjan fer eitt lítið blóm í gegnum æviskeið sem
mig langar til að draga fram. Þannig upphef ég óhjá-
kvæmilegt aldursskeið þroska, hrörnun, sem við lítum
almennt fram hjá og viljum jafnvel afneita að við eigum
sameiginlega. Við upphefjum lífveru á hátindi lífsins,
blómaskeiði sínu, en hér vil ég nema staðar við það
sem gerist eftir að því blómaskeiði hefur verið náð,“
segir Stella um verk sín á sýningunni.
Andartaks lotning á Mokka
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 157. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Fólk má spá okkur hvar sem það vill, sagan segir okk-
ur að þessar spár segja lítið. Í fyrra var okkur spáð
fjórða sæti og við unnum deildina. Núna er okkur spáð
tíunda sæti af tíu liðum og við förum pressulausar inn í
þetta tímabil, getum komið öllum á óvart og sýnt hvað
við getum,“ segir Linda Líf Boama, miðherji Þróttar,
meðal annars í samtali við Morgunblaðið í dag. Þrótt-
arar eru nýliðar í Pepsí Max-deildinni í knattspyrnu í
sumar en Linda raðaði inn mörkum fyrir liðið í næst-
efstu deild í fyrra. »26
Hefur ekki þungar áhyggjur af spá-
dómum um gengi liðanna í sumar
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Minningarskilti um Björn Þóri Sig-
urðsson, Bangsa eins og hann var
gjarnan nefndur, verður afhjúpað á
Hvammstanga á sjómannadaginn,
sunnudaginn 7. júní næstkomandi.
Athöfnin hefst með messu á Bangsa-
túni kl. 13.00 þar sem sr. Magnús
Magnússon, sóknarprestur á
Hvammstanga, þjónar og prédikar.
Kirkjukór Hvammstanga syngur
undir stjórn Pálínu Fanneyjar
Skúladóttur organista. Að lokinni
messu verður minningarskiltið af-
hjúpað og síðan verður boðið upp á
veitingar undir bláhimni.
Kótilettunefnd þriggja félaga í
Húnaþingi vestra; Lionsklúbbsins
Bjarma á Hvammstanga, kven-
félagsins Bjarkar á Hvammstanga
og Húsfreyjanna á Vatnsnesi, ákvað
snemma árs 2019 að koma upp
minnismerki um Bangsa. Hann bjó
alla tíð á Hvammstanga og var
ókvæntur og barnlaus. Hann lét til
sín taka á ýmsum sviðum, var til
dæmis í byggingarvinnu, þá aðallega
múrverki, bátasmíði, á sjó og í
rækjuvinnslu. Hann andaðist haust-
ið 2018, 83 ára að aldri.
Gangandi kærleikur
„Bangsi var gangandi kær-
leikur, gat allt og var allra. Hann var
hvunndagshetja sem kom eins fram
við alla, gæðasál sem setti mark sitt
á mannlífið með jákvæðum hætti,“
segir séra Magnús. Hann var með
litla fiskverkun, verkaði hákarl og
herti fisk. „Hann kom oft í kaffihorn-
ið í kaupfélaginu, sat þar og spjallaði
við mann og annan. Sérstök og stó-
ísk ró fylgdi honum, hann var enginn
æsingamaður heldur alltaf jákvæður
og róaði umræðurnar, sérstök gæða-
manneskja.“
Undanfarin fjögur ár hafa verið
haldin þrjú kótilettukvöld til styrkt-
ar tilteknu málefni innan héraðs.
Magnús segir að sú hugmynd hafi
komið fram fáum mánuðum eftir
andlát Bangsa að tileinka honum eitt
kvöld og samþykkt hafi verið að
verja fjármunum, sem söfnuðust á
kótilettukvöldinu í febrúar 2019, til
þess að útbúa minningarskilti um
Bangsa og varðveita bátinn, sem
hann smíðaði og sjósetti 1958. Búið
sé að koma bátnum í hús en verið sé
að yfirfara hann, skrapa og slípa áð-
ur en hann verður málaður, en eftir
eigi að finna honum varanlegan stað.
„Við viljum hafa hann þar sem al-
menningur getur skoðað hann og
koma þar jafnframt upp upplýsinga-
skilti um bátinn.“
Minnismerkið er á Bangsatúni,
rétt norðan við húsið sem Bangsi
byggði á sjöunda áratugnum og
nefndi Naust. Hann bjó í því allar
götur síðan en húsið stendur við
Höfðabraut 1. Á merkinu eru nokkr-
ar myndir af Bangsa á mismunandi
æviskeiðum við mismunandi iðju
auk upplýsinga um hann bæði á ís-
lensku og ensku.
Bangsi jákvæð hvunn-
dagshetja á Hvammstanga
Minningarskilti um hann afhjúpað á sjómannadaginn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á Miðfirði Björn Sigurðsson, alltaf kallaður Bangsi, á handfærum fyrir
rúmum áratug, sæll með aflann og ánægður með lífið og tilveruna.
Á Bangsatúni Guðlaug Sigurðardóttir, Jóhanna Jósefsdóttir, Magnús
Magnússon, Jóna Halldóra Tryggadóttir og Geir Karlsson þar sem skiltið
verður. Guðmundur Haukur Sigurðsson er líka í kótilettunefndinni.