Morgunblaðið - 05.06.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.06.2020, Blaðsíða 27
GRÓTTA Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Grótta kom öllum á óvart í fyrra þegar liðið stóð uppi sem sigurvegari í 1. deild karla í knattspyrnu og tryggði sér í leiðinni sæti í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins en liðið hafði ári áður endað í öðru sæti í 2. deildinni. Enginn spáði Seltirningum sérlega góðu gengi síðasta sumar en þeir komu öll- um heldur betur á óvart. Þá spáir enginn þeim öðru en falli úr Pepsi-deildinni í sumar og Morgunblaðið sló á þráðinn til markaskorararns Péturs Theodórs Árnasonar til að taka stöðuna á Gróttuliðinu fyrir komandi Íslandsmót. „Það eru nánast allir fjölmiðlar búnir að fella okkur niður sem er kannski skiljanlegt. Við áttum ótrúlegt tímabil í fyrra, sem við bjuggumst ekkert við ef ég á að vera alveg hreinskilinn,“ sagði Pétur, markakóngur 1. deildarinnar með 15 mörk. „En þessar spár hjálpa okkur bara, við komum pressu- lausir inn í sumarið og njótum þess. Flestallir hjá okkur eru að fara að eiga sitt fyrsta alvörutímabil í efstu deild og þetta verður bara gaman.“ Viljum spila skemmtilega Gróttumenn urðu snarlega þekktir sem skemmtilegt fótboltalið í fyrra en engum datt þó í hug að nýliðarnir væru líklegir til að blanda sér í toppbaráttuna, ekki í upphafi móts í það minnsta. Liðið spilaði beinskeyttan fótbolta og leikáætlunin var vafningalaus, það átti einfaldlega að sækja til sigurs. Þegar upp var staðið skoruðu Gróttumenn 45 mörk yfir sumarið, aðeins hinir nýliðarnir í Fjölni skoruðu meira, en Grótta fékk á sig 31 mark, flest allra liða í efri hluta deildarinnar. Síðan þá hef- ur liðið auðvitað skipt um þjálfara, og þjálfararnir í raun skipt um úlpu. Óskar Hrafn Þorvaldsson tók við Breiðabliki og Ágúst Gylfason, sem stýrði Blik- um síðustu tvö sumur, er kominn á Seltjarnarnesið. Honum til aðstoðar er Guðmundur Steinarsson. Litlar mannabreytingar hafa orðið í liðinu og auð- vitað hefur kórónuveiruástandið haft einhver áhrif en Pétur segir leikmenn bratta og fulla tilhlökk- unar fyrir komandi tímabili. „Við náttúrlega hittumst ekkert í einhverjar sex vikur og margir voru meiddir í vetur en flestir eru að stíga til baka á réttum tíma. Hollningin á liðinu er fín, menn koma ferskir inn eftir þetta frí, ef frí skyldi kalla. Það er bara mikil spenna fyrir sum- arið,“ sagði Pétur og bætti við að nýju þjálfara- teymi hefðu ekki endilega fylgt áherslubreytingar. Liðið ætlar áfram að reyna að spila sóknarbolta, eins langt og það nær, en auðvitað bíða talsvert sterkari og sjóaðri andstæðingar í efstu deild. „Það er frábært að vinna með Gústa og Gumma, þeir eru gríðarlega góðir þjálfarar. Við ætlum að reyna að halda í okkar spilamennsku, eins mikið og við getum, þetta er auðvitað allt annað verkefni en fyrsta deildin og þetta verða erfiðari andstæðingar. Við getum kannski ekki alveg spilað sama fótbolta en við ætlum að spila eins skemmtilega og við get- um. Það væri heimskulegt að setja eitthvað annað markmið en það,“ sagði Pétur þegar hann var innt- ur eftir því hvort markmið liðsins væri einfaldlega að halda sér uppi. „En við erum ekkert bara hérna til að vera með, við förum inn í hvern einasta leik til að vinna og svo sjáum við til hverju það skilar.“ Markakóngur eftir meiðsli Eins og fyrr segir var Pétur markakóngur fyrstu deildarinnar á síðustu leiktíð en það er hans allra besta tímabil á ferlinum. Hann hefur verið lengi í Gróttu og einnig leikið með Kríu, eins konar vara- liði Gróttu í 4. deild. Hann sleit krossband tvisvar, 2013 og 2014, og átti erfitt með að koma sér af stað eftir það. Eftir veru hjá liði Kríu taldi hann sig þó vera kominn í gott stand og eiga erindi í Gróttuliðið. Pétur hafði samband við Óskar Hrafn þjálfara og fékk að byrja að mæta á æfingar. Sú ákvörðun átti heldur betur eftir að reynast vel er honum tókst að eiga sitt fyrsta alvörutímabil í fyrra. Hann var aðeins með eitt mark í 27 leikjum í deild fyrir það en skoraði 15 mörk í 22 leikjum á síðustu leiktíð. Hann segist ekki hafa sett sér nein markmið varð- andi markaskorun í sumar. „Það hafa margir sagt mér að setja saman ein- hverja tölu en mín markmið eru bara að standa mig vel. Ef ég geri það munu mörkin koma og ég vil bara hjálpa liðinu eins mikið og ég get, hafa þetta gott sumar,“ sagði hann og bætti við að stemningin á Seltjarnarnesi væri mikil, eins og hún var í fyrra. Gróttuliðið vill byggja ofan á það og halda góðu stundunum frá því í fyrra gangandi. „Það er verið að bæta við einhverjum 300 sætum á Vivaldi- vellinum, taka klefa og vallarhús í gegn. Það er allt- af mikil stemning og mikill meðbyr á Nesinu. Við viljum taka stemninguna frá síðasta sumri með okkur og halda í leikgleðina, það er mikilvægt,“ sagði Pétur ennfremur við Morgunblaðið í gær. Grótta kom öllum á óvart á síðasta ári og það er aldrei að vita nema Seltirningar leiki sama leik í sumar. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Markaskorari Pétur Theódór Árnason skoraði 15 mörk í 1. deildinni á síðustu leiktíð og mun mikið mæða á honum með nýliðum Gróttu í sumar. Allir búnir að fella okkur  Pétur Theodór verður í lykilhlutverki nýliðanna  Varð markakóngur í fyrra eftir að hafa tvisvar slitið krossband  Gróttumenn ánægðir með nýjan þjálfara ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020 Knattspyrnumaðurinn Geoff- rey Castillion gæti snúið aftur til Fylkis. Þetta staðfesti Hrafnkell Helgi Helgason, for- maður meistaraflokksráðs Fylkis, í samtali við fótbolta.- net í gær. Castillion lék með Fylkismönnum síðasta sumar, þá sem lánsmaður frá FH, en hann skoraði 10 mörk í 19 leikj- um með Fylki í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Framherjinn er samningsbundinn Persib Bandung í Indónesíu en deildin þar er í ótíma- bundnu hléi vegna kórónuveirufaraldursins. „Hann hefur áhuga á að koma og spila,“ sagði Hrafnkell meðal annars. Gæti snúið aftur Geoffrey Castillion Ekki er sleggjukastarinn Vig- dís Jónsdóttir ryðguð eftir þær hömlur sem fylgdu kór- ónuveirunni með tilheyrandi áhrifum á æfingar afreks- íþróttafólks. Hún endurheimti í gær Íslandsmetið í sleggju- kasti á vormóti Fjölnis og þeytti sleggjunni 62,38 metra. Eldra Íslandsmetið átti Elísabet Rut Rúnarsdóttir sem var 62,16 metrar og sett í Borgarnesi í maí í fyrra. Vigdís bætti árangur sinn um hálfan metra eða svo en í júlí í fyrra kastaði hún 61,80 m á móti í Kaplakrika. Vigdís fæddist árið 1996 og keppir fyrir FH. Hún hefur níu sinnum sett met í greininni. kris@mbl.is Vigdís setti met Vigdís Jónsdóttir Timo Werner, framherji þýska knattspyrnufélagsins RB Leipzig, hefur samþykkt að ganga í raðir Chelsea í sumar en Lundúnaliðið ætlar að borga 60 milljónir evra fyr- ir leikmanninn. Werner hefur lengi verið eitt helsta skot- mark Liverpool en þessi öflugi framherji virðist vera að ganga meistaraefnunum úr greipum ef marka má fréttir gærdagsins. Daily Mail sagði frá því í gær að Chelsea ætl- aði að nýta sér ákvæði í samningi Werners sem segir að Leipzig verði að samþykkja tilboð upp á 60 milljónir í hann. kristoferk@mbl.is Werner til London Timo Werner  Marcus Rashford, framherji enska knattspyrnufélagsins Manchester United, er heill heilsu og hefur jafnað sig af bakmeiðslum sem hafa verið að hrjá hann síðan í janúar. Í fyrstu var talið að hann myndi missa af restinni af tímabilinu en þar sem hlé var gert á ensku úrvalsdeildinni vegna kórónuveirufaraldursins er ljóst að hann getur spilað lokaleiki tímabilsins.  United hefur lagt fram tilboð í Ka- lidou Koulibaly, varnarmann Napoli, en það er Sky Sports á Ítalíu sem greinir frá þessu. Sky Sports segir frá því að tilboðið hljóði upp á 71 milljón punda en Koulibaly hefur ver- ið sterklega orðaður við Liverpool og PSG undanfarnar vikur. Forráðamenn Napoli hafa hins vegar lítinn áhuga á því að selja senegalska varnarmann- inn fyrir minna en 89 milljónir punda.  Hvergerðingurinn Björn Ásgeir Ásgeirsson hefur ákveðið að halda til náms í Bandaríkjunum næsta vetur og mun leika með liði Union Univers- ity í Tennessee. Netmiðillinn Karf- an.is greinir frá þessu. Björn, sem er bakvörður, var í stóru hlutverki hjá Hamri í toppbaráttunni í næstefstu deild síðasta vetur og skoraði rúm átta stig að meðaltali. Björn er 19 ára gamall og hefur einn- ig leikið með Vestra og Selfossi en er uppalinn hjá Hamri. Lið Union Uni- versity leikur í 2. deild í NCAA, bandaríska háskólakörfuboltanum.  Rodney Glasgow er genginn til liðs við körfuknattleikslið Njarðvíkur en þetta kemur fram á heimasíðu fé- lagsins. Glasgow fæddist árið 1992. Hann er skotbakvörður sem fæddist í Bandaríkjunum en er með breskt vegabréf. Hann hefur meðal annars leikið í Sviss, Belgíu og Slóvakíu frá því hann útskrifaðist úr VMI- háskólanum í Bandaríkjunum árið 2014. Hann lék með Newcastle á Englandi á síðustu leiktíð þar sem hann varð enskur meistari.  Knattspyrnumaðurinn Diego Costa var í gær fundinn sekur um skattsvik af dómstólum á Spáni og þarf að greiða yfir 500 þúsund evrur í sekt eða yfir 80 milljónir íslenskra króna. Þá var hann dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Costa er 31 árs gamall framherji sem spilar með Atlético Madríd á Spáni en málavextir eru þeir að hann gaf ekki upp fimm milljón evra tekjur til skatts þegar hann hafði félagsskipti frá Chelsea á Englandi til Madríd. Þá gaf hann ekki upp eina milljón evra sem hann fékk vegna auglýsingasamnings. Saksóknarar í Madríd kröfðust þess að Costa yrði dæmdur í sex mánaða fangelsi en hann slepp- ur við fang- elsisvistina með því að greiða auka- lega um 36 þús- und evrur í sekt. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.