Morgunblaðið - 05.06.2020, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2020
Í aukastyrkúthlutun Miðstöðvar ís-
lenskra bókmennta vegna veirufar-
aldursins voru 36 milljónir króna
veittar til 45 verkefna af margvís-
legum toga. Meðal styrktra verk-
efna eru ritstörf, útgáfa, þýðingar,
hlaðvörp, bókmenntaviðburðir, vef-
ir, hljóðbókagerð, ritsmiðjur og
námskeiðahald. Alls bárust 257
styrkumsóknir frá 199 aðilum og var
sótt um fyrir verkefni að heildar-
upphæð 588 milljónir króna.
Hæstu styrki, að upphæð 1,2
milljónir króna, hlutu verkefnin
Ljóðamála á almannafæri: ljóða-
haust á Norðurlandi. Upplestraröð á
neti og í raunheimum sem Ásgeir H.
Ingólfsson stendur fyrir; bók um líf-
ið í Kvennaathvarfinu gegnum mat,
menningu og sögur kvenna og barna
sem þar dvelja; Menningarsumar í
Bókakaffinu á Selfossi; margmiðl-
unarsíða og veflægur gagnagrunnur
um tímaritið Sögu og útgáfu Sögu-
félags; Bókmenntavefur Borgar-
bókasafnsins; og sumarnámskeið
Rithöfundaskólans í Gerðubergi,
sem eru ókeypis sumarnámskeið
fyrir skapandi börn.
Kr. 800 þúsund hlutu meðal ann-
ars verkefnin Aldarspegill – Bók um
Ólaf K. Magnússon ljósmyndara
Morgunblaðsins; Þýðing Arthúrs
Björgvins Bollasonar á Hyperion
eftir Friedrich Hölderlin; þróun
leikhandrita að sviðsverkum fyrir
börn, byggðum á barnabókum, sem
Áslaug Jónsdóttir annast; Sutt-
ungur ljóðahátíð í Reykjavík og
Stykkishólmi; Brúin, gagnagrunnur
um íslenskar bækur fáanlegar á
ensku með enskum kynningar-
textum – umsækjandi er Björn Hall-
dórsson; útgáfa tveggja Ljóðbréfa
sem Dagur Hjartarson er í forsvari
fyrir; bók um líf og skapandi feril Jó-
hanns Jóhannssonar, tónskálds og
leikstjóra; Íslenskar dystópíur:
skáldsaga og fyrirlestrar – umsækj-
andi er Emil Hjörvar Petersen;
Syrpa – sýnisrit íslenskra sviðs-
handrita. Samansafn styttri hand-
rita og handritabrota – umsækjandi
er Eva Rún Snorradóttir; Sagna-
landið – bók um 30 staði sem tengj-
ast íslenskum bókmenntum – um-
sækjandi er Halldór Guðmundsson.
Listann má sjá í heild á islit.is.
45 margvísleg
verkefni styrkt
Ólafur K.
Magnússon
Jóhann
Jóhannsson
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Megnið af ljóðunum skrifaði ég á síðastliðnu
ári,“ segir Arndís Þórarinsdóttir, sem nýverið
sendi frá sér Innræti sem er fyrsta ljóðabók
hennar. Arndís hefur áður sent frá sér ung-
lingasöguna Játningar mjólkurfernuskálds og
barnabækurnar Nærbuxnaverksmiðjan og
Nærbuxnanjósnararnir. „Það er frekar nýtt
fyrir mér að skrifa ljóð og má segja að ég sé að
fikra mig inn á ókunnugar lendur,“ segir Arn-
dís og rifjar upp að Sigurður heitinn Pálsson
ljóðskáld hafi haft mikil áhrif á hana sem kenn-
ari, en hún sótti námskeið í ritlist hjá honum við
Háskóla Íslands vorin 2017 og 2016. „Þetta
voru síðustu tvö námskeiðin sem hann kenndi.
Ég skráði mig á fyrra námskeiðið nánast af
skyldurækni vegna þess hversu vel var af nám-
skeiðum hans látið, enda hafði hann gríðarleg
áhrif á fjölmarga höfunda hérlendis. Það sem
hann gerði var að hann lagði ekki upp með að
kenna fólki að skrifa ljóð heldur lesa ljóð.
Galdralandið Gotland gott skrifland
Námskeiðin hverfðust um það að hann dældi
alls kyns textum, bæði íslenskum og þýddum, í
nemendur, sem lásu verkin og ræddu í vinnu-
smiðjuumhverfi. Samhliða því var verið að lesa
texta sem nemendur sjálfir voru að skrifa.
Þannig opnaði hann þetta tjáningarform upp á
gátt. Um leið og maður er farinn að lesa ljóð
opið, gagnrýnið og í samhengi við alla bók-
menntasöguna verður sá tjáningarmáti nær-
tækari,“ segir Arndís og rifjar upp að hún hafi á
sínum tíma alls ekki séð fyrir sér að hún myndi
nokkurn tíma skrifa ljóð.
Innræti er allt í senn full af húmor og
ákveðnu hispursleysi. Var það nokkuð sem þú
lagðir meðvitað upp með?
„Já. Maður verður að taka tilfinningalega
áhættu til þess að ljóðin verði ekki bara ein-
hverjir orðaleikir eða sniðugheit. Til að fá kjöt á
bein þarf að ganga nærri sér,“ segir Arndís og
tekur fram að ekki séu þó allir textar bók-
arinnar strangævisögulegir. „Í sumum ljóð-
unum eru settar fram lífsskoðanir sem ég kann-
ast þó ekki við nema sem stopul hughrif hjá
sjálfri mér. Það veitir mér sem skáldi frelsi til
að ganga enn lengra – því þetta er ekki allt ég,“
segir Arndís og tekur fram að hægt sé að fá
góða hugmynd að ljóði á Facebook. Í framhald-
inu víkur talinu að hópi þar sem nefnist Hver
hendir svona? en umfjöllunarefnin þar kallast
skemmtilega á við ljóðið „Hver kaupir svona?“
Arndís segir hægt að fá góða hugmynd að
ljóði víða. „Til dæmis úr lifrarpylsupokanum
inni í ísskápnum sínum,“ segir Arndís kímin og
tekur fram að hún hafi skrifað stóran hluta bók-
arinnar á framandi stað. „Í fyrravor dvaldi ég í
nokkrar vikur í hinum stórkostlega bæ Visby á
Gotlandi, sem er mikið galdraland og innblás-
andi. Bærinn hýsir meðal annars mikilfeng-
legar kirkjurústir sem verið hafa í eyði frá siða-
skiptum. Fjarlægðin hjálpar til við að sjá
ljóðrænuna í lifrarpylsunni heima,“ segir Arn-
dís, en nokkur fjöldi ljóðanna fjallar um konu
sem fer að heiman og yfirgefur fjölskyldu sína.
Bókakápan er afar falleg og kallast á ljóð-
rænan hátt á við innihaldið. Hvað getur þú sagt
mér um tilurð hennar?
„Það var langt og skrýtið ferli að finna réttu
kápuna sem fangaði rétta tóninn. Ég sá alltaf
fyrir mér að kápan væri mjúk, falleg, kvenleg
og aðlaðandi. Ég vildi alls ekki að kápan væri
kúl,“ segir Arndís og rifjar upp að Halla Sigga
hafi reynt sitt ýtrasta til að gera henni til geðs
en án árangurs. „Þegar vinkona mín stakk síð-
an upp á því að broddgöltur myndi prýða káp-
una varð ég að játa mig sigraða, því hann er
ekki mjúkur heldur frekar kúl,“ segir Arndís
hlæjandi og viðurkennir fúslega að broddgölt-
urinn kallist mun betur á við innihald bókar-
innar „en blómin og skýin sem ég hélt að ég
vildi,“ segir Arndís og hrósar happi yfir sam-
starfinu við Höllu Siggu. „Broddgeltir eru svo
ljóðræn fyrirbæri að það ætti eiginlega að
banna þá. Þeir eru svo gangandi táknræna,“
segir Arndís og tekur fram að sér finnist
skemmtilegt hvernig trýni dýrsins leynist á
kápuflipanum. „Mér finnst gaman hvernig káp-
an leynir á sér, sem kallast sterklega á við inni-
haldið.“
Ertu komin á bragðið? Munt þú halda áfram
að yrkja?
„Já, að minnsta kosti fyrir möppuna á tölv-
unni minni. Sjáum til hvað gerist meira. Ég
mun ótvírætt halda áfram að lesa ljóð eins og
Sigurður kenndi mér.“
Held hann hafi ekki séð í mér neitt efni
Hvað heldur þú að honum hefði fundist um
þessa bók?
„Ég var ekkert sérstaklega góður nemandi
hjá Sigurði – sem helgast aðallega af því að ég
hafði aldrei hugsað um ljóð áður en ég tók nám-
skeiðið. Ég hugsa að hann hafi ekki séð í mér
nokkurt efni,“ segir Arndís og hlær dátt. Í
framhaldinu rifjar hún upp einn af mörgum
kostum námskeiðsins. „Eitt af því sem hann
gerði, sem var svo fallegt, var að hann lét okkur
öll senda sér texta í hverri viku sem hann lagði
fyrir hópinn nafnlaust. Þannig vissi aldrei neinn
um hvern var verið að tala þannig að maður
þurfti ekki persónulega að kynna textana sína
heldur stóðu þeir bara sjálfir fyrir sínu. Þannig
fjarlægði hann allt egó úr umfjölluninni, sem
var mjög hollt og skemmtilegt.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kúl „Ég vildi alls ekki að kápan væri kúl,“ segir Arndís Þórarinsdóttir um kápu Innrætis.
„Að taka tilfinningalega áhættu“
Arndís Þórarinsdóttir sendir frá sér ljóðabókina Innræti „Til að fá kjöt á bein þarf að ganga
nærri sér“ Auðvelt að fá hugmynd að ljóði á Facebook Broddgölturinn gangandi táknræna
Berar tær á parketi færast nær
og í myrkrinu er ég stjörf af hræðslu
við andlitslausa ógn
Mömmur eiga ekki að vera myrkfælnar
Ég veit þetta ert bara þú
Ég kreppi hnefa undir koddanum
held niðri í mér andanum
Í nóttinni er ég smá
Loksins
eftir myrkureilífð
birtist kunnuglegur vangasvipur í gættinni
og ég sleppi hryllingnum úr lungunum
Ég býð kaldfættan gestinn velkominn undir
sængina
vef smáan kroppinn örmum
og skammast mín fyrir traustið
sem ég finn í djúpum andardrættinum
Það kemur að því að þú afhjúpar mig
Ég óttast
að það verði okkur báðum þungbært
Næturgestur
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
recast svefnsófi kr. 149.900
vandaðir og góðir svefnsófar frá innovation living denmark - skoðaðu úrvalið á linan.is