Morgunblaðið - 10.06.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
!
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Samvinnufélagsins Hreyfils, verður
haldinn í Gullhömrum miðvikudaginn
24. júní 2020 klukkan 13:30.
Dagskrá:
1. Athugað lögmæti fundarins
2. Skýrsla félagsstjórnar
3. Reikningar ársins 2019
4. Kosning í stjórn o.fl.
5. Önnur mál
Stjórn Hreyfils
Nauðungarsala
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Skógar, Reykhólahreppur, fnr. 234-8769, þingl. eig. Kolbrún Þórðar-
dóttir, gerðarbeiðandi Reykhólahreppur, mánudaginn 15. júní nk. kl.
13:00.
Melar, Reykhólahreppur, fnr. 234-8002, leigulóðarréttindi, þingl. eig.
Kolbrún Þórðardóttir, gerðarbeiðandi Reykhólahreppur, mánudaginn
15. júní nk. kl. 13:20.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
9. júní 2020
Tilboð/útboð
Breyting á aðalskipulagi
Hvalfjarðarsveitar
í landi Móa
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á
fundi sínum þann 12. maí 2020 að auglýsa
breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar
2008-2020 í landi Móa samkvæmt 1. mgr. 36.
gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland í
gildandi aðalskipulagi. Tillaga að aðalskipu-
lagsbreytingu snýr að því að hluti svæðisins
verður skilgreindur sem verslunar- og þjón-
ustusvæði. Heimiluð verður bygging á
gestahúsum, geymslu, gróðurhúsi, kaldri
vélargeymslu, þjónustuhúsi og tjaldsvæði,
auk þess að þar megi vera föst búseta.
Gisting á svæðinu verður fyrir allt að 50
manns.
Kynningarfundur verður á skrifstofu Hval-
fjarðarsveitar föstudaginn 12. júní á milli kl.
10:00 – 12:00.
Athugasemdum/ábendingum skal skilað til
skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3,
301 Akranesi, eða á netfangið
skipulag@hvalfjardarsveit.is ” merkt Móar”
fyrir 24. júlí 2020.
Bogi Kristinsson Magnusen
skipulags- og umhverfisfulltrúi
Hvalfjarðarsveitar
skipulag@hvalfjardarsveit.is
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Allt að 2.500 tonna framleiðsla á laxi og laxa-
seiðum á vegum Laxa fiskeldis í Þorlákshöfn
Laxar fiskeldi ehf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frum-
matsskýrslu um allt að 2.500 tonna framleiðslu á laxi og laxaseiðum í
Þorlákshöfn, Sveitarfélaginu Ölfusi.
Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 10. júní—23. júlí 2020 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofu
Sveitarfélagsins Ölfuss, Þjóðarbókhlöðunni og Skipulagsstofnun. Frum-
matsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 23. júlí 2020 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykja-
vík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Kynning á
sumarstarfi sem hópur ungs fólks á vegum borgarinnar ætlar að sjá
um kl.14.30. Kaffi í boði hússins kl. 14.30-15. Nánari upplýsingar í
síma 411-2702. Allir velkomnir.
Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 13-15. Sundleikfimi kl. 14.30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Hádeg-
ismatur kl. 11.30-12.30. Tálgun með Valdóri kl. 13. Síðdegiskaffi kl.
14.30. Við vinnum eftir Samfélagssáttmálanum, og þannig tryggjum
góðan árangur áfram. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabær Jónshúsi, félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu
er selt frá kl. 13.45-15.15. Félag eldri borgara í Garðabæ, s. 565-6627,
skrifstofa opin miðvikudaga kl. 13.30-15.30. Gönguhópur fer frá
Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur kl. 13.
Kaffisala frá kl. 14.30-15.30.
Korpúlfar Gönguhópar leggja af stað kl. 10. frá Borgum, matar-
þjónusta frá kl. 11.30 til 12.30 og kaffihúsið í Borgum opið frá kl. 14.30
til 15.30 Lagt af stað stundvíslega kl. 13 frá Borgum í sveitaferð Korp-
úlfa í Kjósaskarð og Kjós. Þátttökuskráning miðast við tilmæli Heil-
brigðisyfirvalda, skráningu lokið og þátttökugjald 5.500.- greiðist í
upphafi ferðar. Góða og gleðiríka ferð.
Seltjarnarnes Dagskráin í dag, miðvikudaginn 10. júní: Kl. 10.30 er
kaffispjall í króknum, kl. 11 er tækninámskeið, kl. 13.30 er botsía og kl.
18.30 er Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness. Einnig ætlum við í
dag að kíkja á Eiðismýri kl. 11.50 að kynna fyrir ykkur sumarstarfið og
dagskrána.
með
morgun-
nu
fasteignir
✝ Ásta Krist-insdóttir fædd-
ist í Vestmanna-
eyjum 5. október
1934. Hún lést á
Fossheimum Sel-
fossi 30. maí 2020.
Ásta var dóttir
Kristins Jónssonar
á Mosfelli í
Vestmannaeyjum,
f. 1899, d. 1969, og
Jónu Guðlaugs-
dóttur, f. 1903, d. 1985.
Bræður Ástu eru Jón Krist-
insson, f. 1926, d. 2009. Sam-
mæðra eru Guðlaugur Þórir
Sveinsson, f. 1940, og Guðsteinn
Ingi Sveinsson, f. 1945, d. 1967.
Faðir þeirra var Sveinn Guðna-
son frá Kotmúla í Fljótshlíð en
hann var einnig uppeldisfaðir
Ástu.
Ásta giftist Grími Sigurðs-
syni, f. 6. október 1928, d. 2001.
Foreldrar Gríms voru Sigurður
Ingvar Grímsson og Sesselja
Símonardóttir. Börn Ástu og
Gríms eru: 1) Sigurður Ingvar,
f. 1951, kvæntur Jónu Ingv-
arsdóttir, f. 1952,
börn þeirra eru
Grímur, Anna Val-
gerður og Ægir. 2)
Kristinn Ómar, f.
1953, kvæntur Erlu
Ólafíu Gísladóttur,
f. 1955, dætur
þeirra eru Ásta
Björg og Bjarney
Sif. 3) Jóna, f. 6. maí
1956, d. í nóvember
sama ár. 4) Sveinn,
f. 1960, kvæntur Sædísi Jóns-
dóttur, f. 1960, dóttir þeirra er
Dröfn. Langömmubörnin eru
13.
Ásta vann samhliða húsmóð-
urstörfum yfirleitt utan heim-
ilis. Hún vann hjá Kaupfélagi
Árnesinga við ýmis störf. Síðar
vann hún á sjúkrahúsinu og þá
m.a. í eldhúsinu, við þrif og í
þvottahúsinu. Þá vann hún einn-
ig um tíma við þrif í Barnaskól-
anum og sá um kaffibrauð fyrir
kennarana.
Útför Ástu fer fram frá Sel-
fosskirkju í dag, 10. júní 2020,
klukkan 14.
Sumarið er komið með allan
sinn fjölbreytileika, fuglasöng,
blómailm og bjartar nætur, sem
við elskum flest og þar var
tengdamóðir mín engin undan-
tekning. Lífsklukka Ástu hafði
tekið þá ákvörðun að stoppa
sumarkvöldið 30. maí sl. Hún
var södd lífdaga, 85 ára gömul,
og var tilbúin í hið eilífa Sum-
arland.
Ástu kynntist ég fyrir hart-
nær 44 árum og var ég strax
velkomin á heimili þeirra Ástu
og Gríms á Engjavegi 6. Ég
minnist með hlýju sunnudags-
morgnanna eftir sveitaböllin
góðu þegar ilminn úr eldhúsinu
lagði inn í herbergi okkar Kidda
og engin undankomuleið með að
þiggja hrygg og meðlæti í há-
deginu. Heimilið var Ástu mikill
griðastaður og réð hún þar ríkj-
um innandyra sem utan, allt var
spikk og span. Húsið málaði hún
að utan sem innan og blómakona
var hún af guðs náð og hlaut
garður þeirra hjóna verðlaun
fyrir margt löngu.
Ég áttaði mig fljótt á að Ásta
vildi ekki mikla afskiptasemi,
sem mér er töm, en hún hafði
sitt lag á hlutunum hvort sem
það var með eldhúsverkin eða
bara að fá sinn tíma til að hvíla
sig. Stundum átti hún það til að
svara ekki símanum ef svo bar
undir, þar sem það hentaði
henni ekki alltaf að svara á þeim
tíma sem ég hringdi, það gat
verið hennar hvíldartími sem
var verið að ónáða og það lærði
ég með tímanum að virða.
Ferðalög voru á árum áður í
uppáhaldi hjá þeim hjónum og
flæktust þau víða, þeirra fyrsta
ferð var sigling með Gullfossi,
síðar keyrðu þau um Frakkland
fóru til Spánar, Mallorca og
fleiri staðir voru heimsóttir í ár-
anna rás.
Ásta var fróð um landafræði
og hafði mikinn áhuga þegar
börn og barnabörn fóru að
ferðast og var ósjaldan sem
landafræðabókin var tekin upp
og gluggað í.
Lífshlaup Ástu var ekki alltaf
dans á rósum, en þau hjón
misstu stúlkubarn sem þá var
sex mánaða og var þriðja í röð-
inni af þeim systkinum.
Ásta bar harm sinn í hljóði og
held ég að það hafi sett verulegt
mark á hennar lífshlaup. Ekki
var talað mikið um þannig hluti í
þá daga og litla hjálp að hafa,
bar hún þann kross alla tíð án
þess að vinna úr þeirri miklu
sorg.
Síðustu árin bjó Ásta í
blokkaríbúð hér á Selfossi, þar
sem vel fór um hana og var hún
sjálfri sér næg um flesta hluti,
en ef svo bar undir að hún þyrfti
smá aðstoð þurfti það helst að
gerast í gær, því þolinmæði var
ekki hennar sterka hlið.
Ég kveð tengdamóður mína
með þakklæti fyrir það sem hún
var mér og minni fjölskyldu,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Erla Ólafía Gísladóttir.
Ég man vel þegar ég kom
fyrst á Engjaveginn og hitti
Ástu fyrst, hún tók vel og hlý-
lega á móti mér stelpukrakka
sem var að hitta elsta son henn-
ar. Ásta var mikil húsmóðir og
barnabörnin fóru oft til hennar
eftir skóla því alltaf var eitthvað
gott til með kaffinu. Hún elskaði
að vinna í garðinum sem var líka
einstaklega fallegur og gladdi
það hana þegar þau Grímur
fengu viðurkenningu fyrir hann,
það var erfitt fyrir hana að
missa garðinn þegar hún flutti
af Engjaveginum. Hún var mjög
góð í landafræði og hafði mjög
gaman af því að fara í spurn-
ingaleiki þar sem reyndi á þá
þekkingu.
Synir hennar segja að hún
hafi lesið landafræðibækur eins
og sögubækur. Hún fór oft ein í
bíltúra um sveitir Suðurlands
þegar hún var orðin ekkja og
rifjaði upp staði og bæjarnöfn.
Þau hjónin ferðuðust mikið bæði
um landið okkar og einnig tölu-
vert til útlanda sem henni fannst
mjög skemmtilegt.
Nú síðustu mánuðina var hún
á Fossheimun hér á Selfossi þar
sem hún fékk mjög góða umönn-
un í veikindum sínum og þökk-
um við kærlega fyrir einstaka
hlýju og notalegheit þar. Ég vil
þakka fyrir árin sem við vorum
samferða og vona að bæði Grím-
ur og Jóna þín taki á móti þér í
sumarlandinu.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannesdóttir)
Jóna Ingvarsdóttir.
Ásta Kristinsdóttir
Lúðvík
Lúðvíksson
✝ Lúðvík Lúð-víksson
fæddist 14. jan-
úar 1972. Hann
lést 22. maí
2020.
Útför Lúðvíks
fór fram 4. júní
2020.
Meira: mbl.is/andlat
Minningar á mbl.is