Morgunblaðið - 10.06.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.06.2020, Blaðsíða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI EIN BESTA MYND SEM KOMIÐ HEFUR Á ÞESSU ÁRI. JAMIE FOXX OG MICHAEL B.JORDAN ERU BÁÐIR HÉR MEÐ FRÁBÆRAN LEIK. MYND SEM ALLIR KEPPAST VIÐ AÐ HÆLA EFTIR AÐ HAFA SÉÐ MYNDINA. Stjórnendur sinfóníuhljómsveita og tónleikahalla á Bretlandseyjum hafa þungar áhyggjur af margra mánaða lokun vegna veirufaraldursins og segja, að því er fram kemur í The Guardian, klassíska tónlistar- heiminn eiga í dýpstu krísu í manna minnum. Stjórnandi Wigmore Hall segir hljómsveitir horfa fram á lausafjárþurrð á næstu tólf vikum og stjórnendur Royal Albert Hall og South Bank segjast horfa fram á hrun. Ástandið vegna lokananna er sagt hafa áhrif á alla sem koma að klass- ísku tónlistinni; flestir meðlimir sin- fóníuhljómsveita séu til að mynda lausráðnir og fyrst ekkert sé leikið opinberlega þá fái þeir engin laun. Þá séu engir erlendir nemendur í virtum tónlistarháskólum, sem fari á mis við skólagjöld, og fólkið á bak við tjöldin, frá umboðsmönnum til útgefenda, líði sökum ástandsins. Stjórnandi Royal Opera House segir þau geta þraukað „í nokkra mán- uði“ en þegar listformið byggist á því að hafa hundruð listamanna á sviði, hundrað í hljómsveitargryfj- unni og 2.700 gesti í sal, og þegar viðskiptamódelið byggist á því að selja 95 prósent miða til að koma út á sléttu, þá sé augljóst hvað ástandið sé slæmt. Hann ber stöðu breskra menningarstofnana, þar sem hið op- inbera veitir 20 prósenta stuðning, saman við það sem þekkist í Þýska- landi, þar sem hið opinbera styrkir listirnar um allt að 80 prósent. Enda er hljóðið annað í stjórnanda Elb- philharmonie í Hamborg sem segist ekki óttast ástandið, „því menningin er svo mikilvæg í þýsku samfélagi að við getum ekki látið hana verða fyrir áfalli“. AFP Einn Píanóleikarinn Stephen Hough æfði á dögunum í tómum sal Wigmore Hall fyrir röð tónleika sem var streymt á netinu. Klassíski geirinn á Bretlandseyjum í vandræðum »Leikskólabörn fylgdust glaðbeitt og einbeitt með þegar Brúðubíllinn frumsýndi sumarsýningu ársins í Hallargarð- inum í gær. Þau létu smá vætu ekki trufla sig enda klædd í pollagalla í öllum regnbogans litum. Áhorfendur nutu þess að hlusta á Lilla, Dúsk og fleiri félaga úr smiðju Helgu Steffensen segja sér sögur og syngja. Brúðubíllinn sýnir alla virka daga kl. 14 á gömlum gæsluvöllum og ýmsum útivistarsvæðum víðs vegar um borgina í júní og júlí. Aðgangur er sem fyrr ókeypis. Brúðubíllinn frumsýndi sumarsýningu ársins í Hallargarðinum í gær Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.