Morgunblaðið - 10.06.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.06.2020, Blaðsíða 22
Erfiðara en áður að toga í persónulega spotta BAKSVIÐ Kristján Jónsson kris@mbl.is Persónuleg tengsl skýra meirihluta þeirra styrkja sem fyrirtæki láta af hendi rakna til knattspyrnufélaga hér- lendis fremur en von um ávinning af markaðssetningu. Svo virðist sem erf- iðara sé að sækja styrki frá fyrir- tækjum til knattspyrnuliða eftir því sem ferlarnir innan fyrirtækjanna hafa orðið faglegri. Er þetta á meðal þess sem Björn Berg Gunnarsson komst að þegar hann vann að meist- araritgerð sinni í markaðsfræði og al- þjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Kostun knatt- spyrnuliða, upplifun beggja vegna borðsins. Morgunblaðið hafði sam- band við Björn og ræddi við hann um viðfangsefnið og helstu niðurstöður. „Ég hafði á tilfinningunni að þeir sem styrkja knattspyrnufélög á stórum mörkuðum erlendis gerðu það vegna þess að þar væru viðskiptalegir hagsmunir en hér heima væri meira um að þetta væru bara styrkir. Ein helsta niður- staðan í verkefn- inu er að hjá fyr- irtækjum er þetta frekar flokkað sem samfélagsleg ábyrgð en hefð- bundin markaðs- setning. Á sama tíma eru fulltrúar fé- laganna þeirrar skoðunar að samstarfsaðilarnir græði á samstarf- inu. Stuðningur við knattspyrnu- félögin sé því góð markaðssetning fyr- ir fyrirtækin. Þarna er því meiningarmunur á því hvað knattspyrnufélögin hafa fram að færa. Ef þeir aðilar sem eru í sam- starfi hafa gerólíka skoðun á ávinningi þess þá býður það þeirri hættu heim að annar hvor aðilinn verði ekki sér- staklega ánægður með samstarfið. Enda hefur það gerst að fyrirtæki dragi úr þessum styrkjum og sjái ekki neinn sérstakan hag í því að halda áfram,“ segir Björn. Margir viðmælendur Eins og jafnan í meistararitgerðum býr mikil vinna að baki og Björn ræddi við fjölda fólks til að fá mynd af stöðunni. „Verkefnið snýst um að svara þeirri spurningu hvort þeir sem styrkja/ kosta helstu knattspyrnufélögin, og fulltrúar þeirra félaga, líti á viðkom- andi samstarf með sama hætti. Er upplifunin sú sama á því hvers eðlis styrkurinn er beggja vegna samnings- borðsins? Ástæðan fyrir forvitninni var sú tilfinning mín að þarna væri munur á. Ég vildi svala þeirri forvitni með því að skoða þetta vandlega. Til að svara því reyni ég að svara nokkr- um spurningum. Ég reyndi að skoða hvernig væri hægt að styrkja félögin með faglegri hætti og ræddi við ein- staklinga hjá knattspyrnufélögunum og fulltrúa frá fyrirtækjum sem hafa verið að styrkja stór knattspyrnu- félög. Ég gat rætt við einstaklinga sem hafa mikla reynslu af þessu. Við- mælendur komu bæði frá fyrirtækjum sem eru að styrkja félögin og einnig frá fyrirtækjum sem eru að hætta því eða eru hætt því. Þá var forvitnilegt að spyrja hvers vegna þau væru hætt því.“ Styrkir en ekki markaðssetning Spurður um hvort fyrirtækin eyrnamerki styrkina vissum hluta starfseminnar, til dæmis barna- og unglingastarfi, segir Björn svo vera en eftirfylgnin sé lítil. „Já já, eitthvað er um það og ég held að það sé að færast í aukana. Sem styður enn frekar að um sé að ræða samfélagslega ábyrgð en ekki mark- aðslegar ástæður. Þegar skilyrði fylgja styrknum. Hins vegar er því lít- ið sem ekkert fylgt eftir. Styrkurinn er veittur og því ekki fylgt eftir hvern- ig hann er nýttur. Ekkert er heldur verið að mæla þetta, sem er svolítið sérstakt. Þegar peningar eru notaðir hjá markaðsdeildum í stórum fyrir-  Yfirgnæfandi meirihluti styrkja knattspyrnufélaga tilkominn vegna persónu- legra tengsla við fyrirtækin, samkvæmt niðurstöðum í nýrri meistararitgerð Björn Berg Gunnarsson 22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020 Búlgaría Bikarinn, undanúrslit, fyrri leikur: Lokomotiv Plovdiv – Levski................... 2:0  Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn með Levski. Danmörk B-deild: Vejle – Skive............................................. 1:2  Kjartan Henry Finnbogason lék fyrstu 71 mínútuna hjá Vejle.  Efstu lið: Vejle 48, Viborg 38, Fredericia 38, Kolding 35, Vendsyssel 32. Þýskaland Bikarkeppnin, undanúrslit: Saarbrücken – Leverkusen..................... 0:3  Leverkusen mætir Bayern München eða Eintracht Frankfurt í úrslitaleiknum. KNATTSPYRNA Þýskaland Úrslitakeppnin, B-riðill: Alba Berlín – Bamberg....................... 98:91  Martin Hermannsson skoraði 9 stig, gaf 7 stoðsendingar, tók 2 fráköst og stal bolt- anum einu sinni fyrir Alba. Ludwigsburg – Frankfurt ................... 80:77  Staðan: Alba Berlín 4, Ludwigsburg 4, Bamberg 0, Vechta 0, Frankfurt 0. KÖRFUBOLTI  Alba Berlín fer nokkuð örugglega af stað í þýska körfuboltanum eftir hlé og hefur unnið fyrstu tvo leiki sína. Í gær lagði liðið Bamberg að velli 98:91 í München en þar verður öll úrslita- keppnin spiluð í júní. Martin Her- mannsson kom að mörgum stigum hjá Alba Berlín eins og svo oft áður í vetur. Hann gaf 7 stoðsendingar á samherja sína og skoraði auk þess 9 stig sjálfur á þeim 25 mínútum sem hann lék.  Enn fjölgar liðum í b-deild kvenna í körfuknattleik fyrir næsta tímabil en Vestri hefur nú ákveðið að senda lið til keppni. Er það í fyrsta skipti í fimm ár sem kvennaliði er teflt fram í meist- araflokki fyrir vestan í körfunni og í fyrsta skipti eftir að liðin á svæðinu sameinuðust undir nafni Vestra. Níu lið eru nú skráð til leiks í 1. deild kvenna.  Þór/KA hefur samið við Madeline Gotta frá Bandaríkjunum um að leika með liðinu í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu í sumar. Fram kemur á heimasíðu Þórs að félagaskiptin eigi eftir að ganga í gegn og þar séu formsatriði eftir. Gotta spilaði fyrir Gonzaga-háskólann í Washingtonríki og skoraði 7 mörk í 19 leikjum á loka- ári sínu í NCAA.  Levski Sofía, lið Hólmars Arnar Eyj- ólfssonar, er í erfiðri stöðu eftir fyrri leik sinn gegn Lokomotiv Plovdiv í undanúrslitum bik- arkeppninnar í knattspyrnu í Búlg- aríu. Lokomotiv Plovdiv hafði betur 2:0 í gær en Hólmar lék all- an leikinn fyr- ir Levski. Þó er bót í máli fyrir Hólmar að fyrri leik- urinn var útileikur og Levski á heima- leikinn eftir í höfuðborginni. Eitt ogannað KARLARNIR 2020 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Verður úrvalsdeild karla í fótbolta, sem áfram er kennd við Pepsi Max, algjörlega tvískipt eins og flestar spár virðast gefa til kynna? Sérfræðingar Árvakurs telja að KA, Fylkir, ÍA, HK, Grótta og Fjöln- ir verði í sætum sjö til tólf, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær þar sem spáin fyrir Íslandsmótið var birt og það sama hefur komið fram í vangaveltum annarra um komandi keppnistímabil. Ef tekið er fullt mark á niður- stöðum spárinnar ætti KA að sigla lygnan sjó um miðja deild, Fylkir og ÍA þurfa að passa sig á fallbaráttunni og HK þarf að hafa fyrir því að halda nýliðum Gróttu og Fjölnis fyrir neð- an sig en eins og svo oft áður er ekki reiknað með því að nýju liðin í deild- inni vinni stór afrek. Sem þau síðan afsanna oft og iðulega! Endasprettur KA framlengdur? Ef KA-menn halda áfram á sömu braut og þeir luku Íslandsmótinu 2019 verða þeir í góðum málum í ár. Akureyrarliðið virtist vera á leið nið- ur í 1. deildina í ágúst þegar það sat í næstneðsta sætinu en með góðum endaspretti þar sem það var taplaust í síðustu sjö leikjunum komst það alla leið í fimmta sætið áður en yfir lauk. Sat þó enn í því tíunda þegar tveimur umferðum var ólokið. En þótt flestir virðist reikna með átakalitlu tímabili KA-manna á lygn- um sjó um miðja deild er ýmsum spurningum ósvarað. Hvernig reyn- ast nýju mennirnir, miðvörðurinn há- vaxni Mikkel Qvist og hinn ungi níg- eríski framherji Jibril Abubakar? Fyllir Guðmundur Steinn Haf- steinsson skarð Elfars Árna Aðal- steinssonar? Elfar er úr leik eftir að hafa meiðst illa í vetur en Guð- mundur Steinn er reyndur sóknar- maður sem gæti nýst KA vel. Hall- grímur Mar Bergmann hefur skorað jafnt og þétt og verið jafnbesti maður liðsins, og KA þarf á svipuðu fram- lagi og áður frá honum. Þá er ljóst að Rodrigo Gómez á að styrkja miðjuna, enda þekkt stærð eftir að hafa spilað með Grindavík undanfarin ár. KA er með reynda menn eins og Hallgrím Jónasson, Al- marr Ormarsson, Hauk Heiðar Hauksson, Andra Fannar Stefánsson og Steinþór Frey Þorsteinsson og ætti að öllu eðlilegu að vera í ágætum málum hvað mannskapinn varðar. Sennilega er sjöunda sætið mjög raunhæf spá fyrir Akureyrarliðið. Castillion breytir miklu Fylkir teflir fram nánast sama liði og á síðasta tímabili en aðalbreyting- arnar eru á þjálfarateyminu. Helgi Sigurðsson fór til Eyja en Atli Sveinn Þórarinsson og Ólafur Stígsson tóku við sem þjálfarar með Ólaf Inga Skúlason sér við hlið sem spilandi að- stoðarþjálfara. Miðvörðurinn öflugi Ari Leifsson fór til Strömsgodset í Noregi og Emil Ásmundsson, sem lék lítið í fyrra vegna meiðsla, fór í KR. Nýr maður í hópnum er Djair Parfitt-Williams, kantmaður frá Bermúda sem á að baki Evrópuleiki með West Ham og slóvenska liðinu Rudar Velenje. Stærsta spurningin er með fram- línuna og hvort Geoffrey Castillion mætir aftur til leiks í Árbæinn. Með hann innanborðs er liðið líklegt til að gera usla í efri hluta deildarinnar en komi Castillion ekki bendir margt til þess að sóknarleikurinn verði höfuð- verkur Árbæinga. Þeir búa að því að vera með stóran kjarna af uppöldum Fylkismönnum, innan vallar og í þjálfarateyminu, og gríðarlega reynslu í Ólafi Inga, Helga Val Daníelssyni og Sam Hewson. Ef Fylkisliðið smellur saman í sumar hefur það fulla burði til að enda ofar en spáin segir til um og jafnvel ná svo langt að slást um Evrópusæti. Minni breidd á Akranesi Skagamenn mæta með heldur þynnri hóp til leiks en á síðasta tíma- bili. Fjórir leikmenn sem spiluðu mikið í fyrra eru horfnir á braut, þeir Einar Logi Einarsson, Hörður Ingi Gunnarsson, Albert Hafsteinsson og Gonzalo Zamorano. Til viðbótar sleit Arnar Már Guðjónsson krossband síðsumars í fyrra og verður ekki með fyrr en í fyrsta lagi seinni hluta móts- ins. Vörnin tekur mestum breytingum því þar voru bæði Einar Logi og Hörður Ingi fastamenn og ljóst að það var Skagamönnum nokkurt áfall að missa Hörð, en FH-ingar keyptu hann af þeim í vor. ÍA tókst hins veg- ar að halda besta manni sínum, Tryggva Hrafni Haraldssyni, en hann var talsvert orðaður við brott- för frá félaginu í vetur. Engir leikmenn með reynslu eru komnir í staðinn og Jóhannes Karl Guðjónsson treystir á að ungir piltar fylli í skörðin. Breiddin er því ekki mikil en ljóst að efnilegir strákar fá tækifæri til að sýna sig og sanna í Skagabúningnum í sumar. Nokkrir þeirra léku sem lánsmenn með Skallagrími og Kára í neðri deild- unum í fyrra. ÍA endaði í tíunda sæti í fyrra eftir að hafa farið vel af stað en liðið vann síðan aðeins einn leik í síðari umferð mótsins. Viðbúið er að Skagamenn þurfi að hafa talsvert fyrir því að lenda ekki í botnbaráttu í sumar. Annað árið oft erfiðara HK kom allra liða mest á óvart á síðasta tímabili, þegar nær allir gerðu ráð fyrir því að það færi beint aftur niður í 1. deildina. HK hélt hins vegar sæti sínu af miklu öryggi og að- eins slæmur lokakafli í deildinni kom í veg fyrir að það endaði í fimmta til sjötta sætinu. Nú reynir virkilega á liðið því úti- lokað er að koma á óvart tvö ár í röð. Mótherjarnir þekkja HK-inga betur og ættu að vera farnir að venjast því að spila gegn liðinu í Kórnum. Sagan segir að annað árið sé nýliðum erfið- ara en það fyrsta og á því fékk HK einmitt að kenna þegar það hélt sér í deildinni 2007 en féll 2008 þegar von- ast var eftir meiru. Lið HK er lítið breytt þegar horft er á þann 15 manna hóp sem spilaði mest á síðasta ári og útlit er fyrir að byrjunarliðið verði að stærstum hluta það sama. Björn Berg Bryde fór aftur til Stjörnunnar eftir láns- dvöl og framherjinn Emil Atlason hélt einnig í Garðabæinn. Þá fóru nokkrir þeirra sem minna fengu að Skiptist deildin alveg í tvo hluta?  Eða ná KA og Fylkir að brjóta sér leið í efri helming deildarinnar?  Geta Skagamenn og HK-ingar haldið nýliðum Gróttu og Fjölnis fyrir neðan sig?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.