Morgunblaðið - 17.06.2020, Page 2

Morgunblaðið - 17.06.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020 holar@holabok.is www.holabok.is Glæsileg ljósmyndabók um náttúruperlur í nærumhverfinu Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þær voru fúsar til að vera fyrstar til að skrifa þakkarkort, ráðherrarnir Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra og Þórdís Kolbrún R. Gylfa- dóttir ferðamála-, iðnaðar- og ný- sköpunarráðherra Íslands. Hvatn- ingarátakið „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar“ gengur út á að hvetja landsmenn til að senda handskrifaða eða rafræna kveðju til fjölskyldu, vina, vinnustaða, félagasamtaka eða annarra og þakka viðkomandi fyrir að vera til fyrirmyndar, á hvaða hátt sem það er. Katrín og Þórdís Kolbrún sendu báðar Vigdísi Finnbogadóttur fyrsta kortið en ætluðu einnig að senda sín- um nánustu slík kort. Bæði er gef- andi fyrir sendanda að skrifa þakk- arkort og fyrir viðtakanda að fá slíkt í hendur. Átakið gleður væntanlega marga . khk@mbl.is »12 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Handskrift Katrín ákvað, rétt eins og Þórdís Kolbrún, að þakka Vigdísi Finnbogadóttur fyrir að vera til fyrirmyndar. Fyrstar til að senda þakkir  Átakið Takk fyrir að vera til fyrirmyndar af stað í dag Takk Þórdís Kolbrún skrifar sitt fyrsta kort til Vigdísar, fyrrverandi forseta. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Verslunarmenn við Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur hafa nú margir hverjir hengt upp svarta ruslapoka í búðargluggum sínum til að mót- mæla götulokunum meirihlutans í borgarstjórn. Voru pokarnir hengd- ir upp í gærkvöldi ásamt miðum sem ætlað er að vekja athygli al- mennings á þröngri stöðu kaup- manna. Á miðunum segir: „Er þetta framtíðin?“ og „Er það þetta sem við viljum?“ Gunnar Gunnarsson, talsmaður Miðbæjarfélagsins í Reykjavík, seg- ir ruslapokana lýsandi fyrir stöðu verslunar við Laugaveg, nú þegar séu á þriðja tug verslunarrýma auð eða við það að loka. Þeir sem þátt taka í þessum gjörningi eru fulltrú- ar 25-30 verslana og því séu hátt í 60 verslunarrými með ásýnd lokunar í dag, þjóðhátíðardag Íslands. Ekkert aðdráttarafl í götukroti „Þetta er framtíð verslana við Laugaveg. Með þessum gjörningi erum við fyrst og fremst að reyna að ná til almennings. Það þýðir ekki að tala við meirihlutann í Reykjavík. Spurning okkar til almennings er því sú: Er það þetta sem þið viljið í raun, auð verslunarpláss í mið- bænum? Gatan er deyjandi, það er ekki hægt að orða þetta öðruvísi. Hér er ekkert fólk og engin versl- un,“ segir Gunnar og bætir við að Íslendingar geri sér ekki ferð í miðbæinn til að sjá götukrot. Vísar hann þar til nýlegra yfirborðsmerk- inga sem Reykjavíkurborg lét gera á hluta Laugavegar. Eiga þær að gefa til kynna að gatan sé lífleg göngugata. Gunnar gefur hins vegar lítið fyrir það og bendir á að ekkert líf sé á þessu svæði, þrátt fyrir krot- ið. Spurður út í reynslu verslunar- manna af götulokunum það sem af er sumri segir Gunnar: „Það er bara gríðarlega slæmt hljóð í verslunar- mönnum. Salan hefur aldrei verið daprari, þökk sé borgaryfirvöldum sem hefur tekist að venja fólk algjörlega af miðbænum.“ Þá segir Gunnar kaupmann með 49 ára verslunarreynslu við Lauga- veg hafa stungið upp á þessum mót- mælum og tók það hann skamma stund að fá góðan hóp kaupmanna til að vera með, enda erindið brýnt. Svartur dagur við Laugaveg  Fjölmargir kaupmenn við Laugaveg mótmæla götulokunum borgarstjóra með táknrænum hætti  Svartir ruslapokar og ákall til almennings í búðargluggum  Þetta er framtíðin, segir talsmaður Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ósáttir Verslunarmenn límdu svarta ruslapoka inn í búðarglugga sína til að mótmæla götulokunum í miðbænum. Götulokanir » Stærstur hluti íbúa á höfuð- borgarsvæðinu er á móti götu- lokunum meirihlutans í Reykja- vík, samkvæmt nýlegri könnun. » Meirihlutinn heldur því fram að götulokanir skapi meira mannlíf og bæti rekstrar- umhverfi fyrirtækja. » Afstaða höfuðborgarbúa til lokana er, af fulltrúa meirihlut- ans, túlkuð sem ákall um að kynna betur kosti göngugatna. Maður á fertugsaldri hefur verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa ráðist á konu á heimili hennar miðsvæðis í Reykja- vík á mánudag, en árásin er rann- sökuð sem tilraun til manndráps. Héraðsdómur úrskurðaði mann- inn í gæsluvarðhald til 13. júlí að kröfu lögreglustjórans á höfuðborg- arsvæðinu í gær, en manninum er gert að sæta varðhaldi annars vegar á grundvelli rannsóknarhagsmuna og hins vegar á grundvelli þess að lögregla telur hættu á að hann haldi áfram að brjóta af sér. Konan, sem fyrir líkamsárásinni varð, er ekki talin í lífshættu. Konan Í gæsluvarðhald grunaður um árás  Rannsakað sem manndrápstilraun Morgunblaðið/Kristinn Magnússon var leigusali mannsins en hann hefur áður komið við sögu lögreglu. Lög- regla hefur ekki getað veitt nánari upplýsingar um málið að svo stöddu, en rannsókn þess mun miða vel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.