Morgunblaðið - 17.06.2020, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við viljum að fólk líti sérnær og velti fyrir sérhvað því finnst vera tilfyrirmyndar á einn eða
annan hátt, bæði stórt og smátt,“
segja þær Sigþrúður Ármann,
Marín Magnúsdóttir og Karítas
Diðriksdóttir, en þær eru í forsvari
fyrir hvatningarátakið Takk fyrir
að vera til fyrirmyndar, sem fer af
stað í dag og er tileinkað frú Vig-
dísi Finnbogadóttur og íslensku
þjóðinni. Átakið gengur út á að
hvetja landsmenn til að senda
handskrifaða eða rafræna kveðju
til fjölskyldu, vina, vinnustaða,
félagasamtaka eða annarra sem
bréfritarar vilja þakka fyrir að vera
til fyrirmyndar á einn eða annan
hátt.
„Þörfin fyrir svona átak er
mikil núna. Þörfin var líka mikil
fyrir tíu árum, skömmu eftir hrun,
en þá vorum við með samsvarandi
átak sem gekk mjög vel. Við viljum
endurtaka leikinn í tilefni af því að
hinn 29. júní verða 40 ár liðin frá
því að Íslendingar stigu það fram-
faraskref á heimsmælikvarða að
vera fyrstir þjóða til að kjósa konu
sem forseta í lýðræðislegum kosn-
ingum. Þá vorum við heldur betur
til fyrirmyndar sem þjóð. Við vilj-
um halda því á lofti og nýta þessi
tímamót til að hugsa hvað það
skiptir miklu máli að vera til fyrir-
myndar, rétt eins og Vigdís var og
er sterk fyrirmynd. Við viljum líka
minna á að allir geta verið til fyrir-
myndar, fólk þarf ekki að vera
þjóðhöfðingjar til þess. Þessi bréf
eru hugsuð til að senda fjölskyldu,
vinum, samstarfsfólki eða hverjum
sem fólki dettur í hug,“
Gaman að finna takk-vegg
Staðlað bréf eða kort sem á
stendur Takk fyrir að vera til fyrir-
myndar fylgir með Morgunblaðinu
í dag, ætlað fólki til að fylla út og
senda. Kortin er líka hægt að nálg-
ast á pósthúsum landsins, í útibú-
um Landsbankans og verslunum
Nettó um allt land.
„Við viljum endilega að fólk
skrifi fleiri en eitt kort, helst sem
flest, og þau má setja ófrímerkt í
póst innanlands. Einnig er hægt að
senda rafræna kveðju á formi sem
nálgast má á vefsíðunni tilfyrir-
myndar.is. Við segjum stoltar frá
því að hægt er að nálgast kortið á
nokkrum tungumálum á heimasíð-
unni, þannig sameinum við fólk úr
mismunandi áttum og leggjum
áherslu á að við erum öll saman í
þessu verkefni. Vigdís hefur alla tíð
vakið athygli á mikilvægi tungu-
mála fyrir menningarlega fjöl-
breytni og jákvæð samskipti þjóða.
Við hvetjum fólk líka til að senda
kort úr landi, því það vakti jú at-
hygli um allan heim þegar Vigdís
var kosin forseti. Við Íslendingar
erum númer eitt í heiminum í jafn-
réttismálum og erum til fyrir-
myndar á því sviði, við viljum líka
vekja athygli á því um víða veröld.“
Ein leiðin enn til að vekja at-
hygli á hvatningarátakinu eru
veggir sem málaðir verða á næstu
dögum í lit átaksins með áletrun-
inni takk. Þessa veggi verður að
finna víða um land og þar getur
fólk tekið myndir af sér og deilt á
samfélagsmiðlum með myllumerk-
inu #tilfyrirmyndar.
„Við gerum ráð fyrir að Ís-
lendingar ferðist mikið innanlands í
sumar og þá verður gaman að finna
takk-vegg. Við hvetjum fólk til að
taka myndir af sér við þessa veggi
á ferðum sínum um landið, taka
sjálfu, hvort sem það er fjölskyldan
saman, vinir eða vinnuhópar, og
pósta á samfélagsmiðlana okkar.“
Margir geyma kortin enn
Að segja einhverjum með
þessum hætti að hann sé til fyrir-
myndar er gefandi bæði fyrir send-
anda og viðtakanda.
„Margir sem fengu slík kort
fyrir tíu árum geyma þau enn. Okk-
ur finnst mikilvægt að bjóða upp á
þetta í prentuðu formi, það er gam-
an að kenna yngri kynslóðinni að
handskrifa bréf og senda,“ segja
þær vinkonur og taka fram að í
nærumhverfi allra séu alltaf ein-
hverjir sem eru til fyrirmyndar.
„Til dæmis er tilvalið að vinnu-
félagar skilji eftir takk-kort á borði
hjá þeim vinnufélögum sem þeim
finnst gott að starfa með. Það er
svo gaman að setja á sig þessi gler-
augu og horfa í kringum sig með
það í huga hverjir eru til fyrir-
myndar, þá sjáum við víða svo
margt gott. Við erum kannski ekk-
ert að hugsa mikið um það í hvers-
deginum. Kortin er auðvitað líka
hægt að láta bláókunnuga mann-
eskju hafa, til dæmis starfsmann í
verslun sem veitir þér góða þjón-
ustu eða brosir og tekur vel á móti
þér. Nú eða heimafyrir, skilja
kannski eftir takk-kort á koddan-
um hjá makanum eða börnunum.“
Of seint í minningargrein
Þær vinkonurnar minna á að
við sjáum of oft í minningar-
greinum að fólk sér eftir að hafa
ekki sagt takk og hrósað sínum
nánustu eða vinum, sem er góð
áminning um að geyma það ekki.
„Við megum vera dugleg við að
láta vita af því sem vel er gert.
Auðvitað langar alla til að vera til
fyrirmyndar, svo vonandi verður
þetta átak hvatning fyrir fólk til að
standa sig vel. Allt sem við gerum
eigum við að reyna að gera vel,“
segja þær og taka fram að Vigdísi
þyki vænt um verkefnið og þær séu
þakklátar fyrir velviljann hjá öllum
þeim fyrirtækjum sem þær hafa
leitað til með stuðning, án hans
væri þetta ekki mögulegt.
„Okkur finnst frábært að fara
af stað með þetta í dag, á þjóðhátíð-
ardeginum. Við hvetjum alla til að
taka myndir af sér við takk-
veggina í sumar og senda bréfin
eða kortin sem víðast. Okkur lang-
ar að þetta lifi út júlímánuð, því
hinn 1. ágúst verða 40 ár frá því að
Vigdís var sett inn í embættið. Þá
getum við verið með samantekt og
glaðst yfir þátttökunni sem við ef-
umst ekki um að verður frábær.“
Allir geta verið til fyrirmyndar
Hvatningarátakið Takk
fyrir að vera til fyrir-
myndar fer af stað í dag
og þá getur fólk sent sér-
útbúin þakkarbréf eða
-kort hverjum sem þeim
finnst eiga slíkt skilið fyr-
ir að vera til fyrirmyndar.
Einnig er hægt að senda
rafræna kveðju, á mörg-
um tungumálum, eða
taka mynd af sér við
takk-vegg og deila á sam-
félagsmiðlum. Sigþrúður,
Marín og Karítas eru for-
svarsmenn verkefnisins.
Takk Svona lítur kortið út sem fólk getur sent þeim sem það vill þakka.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kátar Þær Sigþrúður, Marín og Karítas stilltu sér glaðar upp við takk-vegg sem finna má við Gróttu á Seltjarnarnesi. Takk-veggir verða víða um land.
86
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina