Morgunblaðið - 17.06.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
Hæ sæti
– hvað vilt þú borða!
Bragðgott,
hollt
og næringar
ríkt
Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við höfum lagt mikið upp úr því að
dreifa okkar framleiðslu á útsölu-
staði sem leggja metnað sinn í fram-
setningu og fyrirmyndar-kaup-
mennsku,“ segir Sturlaugur Jón
Björnsson, gosgerðarmeistari hjá
Öglu gosgerð.
Sturlaugur gekk á dögunum frá
samningi við Einar Gunnar Ein-
arsson, kaupmann í Versluninni Ein-
ar Ólafsson á Akranesi, um sölu á
gosdrykkjum fyrirtækisins. Fyrsti
drykkur Öglu, Djöflarót – engifer-
drykkur frá helvíti hefur vakið mikla
lukku undanfarna mánuði og um-
rædd verslun er sú fyrsta utan höf-
uðborgarsvæðisins sem tryggir sér
söluumboðið. Hún bætist í hóp ann-
arra rótgróinna verslana sem Stur-
laugur kveðst stoltur af að skipta
við.
„Auk framúrskarandi veitinga-
staða hófum við dreifingu í sjálf-
stæðar rótgrónar búðir sem hafa
reynslu af að umgangast gosdrykki
af virðingu. Má þar nefna Melabúð-
ina og Pétursbúð í Vesturbænum,
Verzlunina Rangá og Fjarðarkaup.
Það er alveg ljóst að Verslun Einars
Ó er lykilstaður fyrir Öglu gosgerð í
vegferð sinni við endurreisn á ís-
lenska gosdrykkjarmarkaðnum og
er það því af fullri alúð sem við af-
hendum þessu virðulega fjölskyldu-
fyrirtæki söluumboð á okkar
drykkjum. Skagamenn verða þó að
virða, líkt og aðrir landsmenn, að
það er bannað að þamba,“ segir gos-
gerðarmeistarinn.
Sett á stofn árið 1934
Verslunin Einar Ólafsson var sett
á stofn árið 1934 af afa áðurnefnds
Einars Gunnars. Hún hefur verið á
núverandi stað við Skagabraut 9 frá
árinu 1946 en hefur verið stækkuð
síðan þá. „Þetta er ein af fáum versl-
unum sem hafa staðið af sér hrær-
ingar á smásölumarkaðinum,“ segir
Einar Gunnar sem kveðst fagna því
að geta boðið Skagamönnum bætt
úrval af gosi. „Það er frábært að
geta boðið þessar vörur í búðinni hjá
okkur enda falla þær vel að útliti
verslunarinnar og minna um margt
á eldri gosdrykki sem fengust hér í
árdaga. Við höfum þegar selt tölu-
vert af þessu,“ segir kaupmaðurinn.
Alveg bannað að þamba
Morgunblaðið hefur áður greint
frá starfsemi Öglu gosgerðar en
hugmyndin að baki henni er að sögn
Sturlaugs að vanda til verka og nota
hágæða hráefni. „Það eru alltaf fleiri
og fleiri sem hafa áhuga á hráefn-
unum sjálfum og uppruna þeirra og
vilja áhugaverðar og framsæknar
vörur sem framleiddar eru á heið-
arlegan hátt,“ segir hann og ítrekar
að aðstandendum Öglu sé annt um
leiðréttingu skammtastærða. Því sé
slagorð gosgerðarinnar: Það er
bannað að þamba!
Nýr sítrusdrykkur á markað
Auk Djöflarótar hefur Agla ný-
verið sett á markað gosdrykkinn
Yuzulaði – sítrusdrykk úr klóm
drekans. „Þetta er einhvers konar
nýbylgjulímonaði með austur-
lenskum áhrifum. Heitið er orð-
skrípi, soðið saman úr orðunum
yuzu, gúmmelaði og límonaði en
yuzu er sumsé asískur sítrusávöxtur
með einkennandi bragð og lykt sem
nýtur sífellt meiri vinsælda við nú-
tíma matargerð hér vestan megin.
Líkt og í Djöflarótina notumst við
eingöngu við hágæða náttúruleg
hráefni án nokkurra auka-, litar- eða
bragðefna og léttgerjum drykkinn í
um sólarhring til að samþætta
bragðeinkennin og tryggja full-
komna mýkt. Við teljum okkur vita
að sífellt stækkandi hópur upplýstra
neytenda sé á höttunum eftir há-
gæða vörum sem þessum og ætlum
okkur að þjónusta þá sérstaklega.“
Selja gosið bara í rót-
grónum verslunum
Gosgerðin Agla í sókn Djöflarót fæst nú á Akranesi
Ljósmynd/Ljósmyndari ríkisins
Tímamót Kaupmennirnir Hafsteinn og Einar í Versluninni Einari Ólafssyni
á Akranesi tóku vel á móti Sturlaugi Jóni Björnssyni gosgerðarmeistara.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Spáin er ekki eins góð og á hátíðinni
í fyrra og því höfum við stækkað há-
tíðartjaldið. Þar ættu allir gestirnir
að komast fyrir,“ segir Jóhann Guð-
mundsson, einn eigenda The Broth-
ers Brewery í Vestmannaeyjum.
Jóhann og félagar hans halda á
laugardag bjór- og götumatarhátíð í
Eyjum, Street Food and Beer Festi-
val. Þetta er annað árið í röð sem há-
tíðin er haldin, en sú fyrsta þótti afar
vel heppnuð. Nú er hátíðin hins veg-
ar haldin í skugga kórónuveiru og
lengi vel var ekki öruggt að af henni
yrði.
„Nei, það var ekki sjálfgefið fyrr
en í byrjun júní þegar tilkynnt var að
leyfilegt yrði að halda 500 manna
samkomur. Við vorum búnir að selja
250 miða í febrúar og þá var uppselt
á hátíðina. Þar að auki verða um 70
starfsmenn svo að þarna verða yfir
þrjú hundruð manns,“ segir Jóhann.
Hann segir að ekki verði bætt við
miðum í sölu þó svo að það hefði ver-
ið freistandi í ljósi ástandsins og þess
höggs sem komið hefur á veitinga-
bransann. Þess í stað fá gestir há-
tíðarinnar nóg pláss til að kynna sér
bjór frá 20 brugghúsum. Átta erlend
brugghús höfðu boðað komu sína en
heimsókn þeirra verður að bíða betri
tíma að sögn Jóhanns.
Ekki áhyggjuefni fyrir Þórólf
Hátíðin stendur frá klukkan 15-19
og aðspurður segir Jóhann að sótt-
varnaryfirvöld þurfi ekki að hafa
sérstakar áhyggjur af hátterni fólks.
„Nei, þetta er hátíð sem fólk kemur á
til að njóta og smakka. Ég myndi
hafa meiri áhyggjur af því sem gerist
eftir klukkan 23 í miðborg Reykja-
víkur.“
Yfir 300 manna
bjórhátíð í Eyjum
Var í óvissu vegna
kórónuveirunnar
20 brugghús kynna
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Bræður Jóhann og Hlynur Vídó frá
The Brothers Brewery í Eyjum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við vonumst til að þetta virki. Við
höfum áður sett upp hjólastæði víða
um borgina og um leið og þau koma
fyllast þau,“ segir Kristinn Jón Ey-
steinsson, skipulagsfræðingur hjá
Reykjavíkurborg.
Borgin hefur á síðustu tveimur
vikum sett upp hjólastæði við fimm-
tán biðstöðvar Strætó. Er það í sam-
ræmi við hjólreiðaáætlun borgar-
innar þar sem talað er um sam-
þættingu almenningssamgangna og
hjólreiða.
„Þetta er liður í því að reyna að
tengja saman strætó og hjólreiðar.
Við létum gera fyrir okkur greiningu
hvar helst væri þörf á hjólastæðum
og hún byggist á því hvar mesta
notkunin er, hvaða strætóskýli eru
með mest af fólki og því hvernig leið-
irnar liggja,“ segir Kristinn. Hann
nefnir sem dæmi að ein leið keyri úr
Grafarholti og niður í bæ en tíðni
hennar sé fremur lítil. Það geti verið
fljótlegri kostur að hjóla niður á
Vesturlandsveg og taka hraðleið
strætó þaðan sömu leið. Því geti það
reynst einhverjum hentugt að geta
geymt hjólið við biðstöð strætó þar.
Kristinn segir að hvert hjólastæði
kosti um 80 þúsund krónur og heild-
arkostnaður með uppsetningu hlaupi
á um þremur milljónum. Fylgst verði
með notkun næsta árið og hug-
myndin sé að endanlega verði gengið
frá stæðunum þar sem þau eru vel
nýtt. Hins vegar verði þau fjarlægð
þar sem sú verði ekki raunin. Stæð-
unum hefur ýmist verið komið fyrir
við hlið strætóskýla eða fyrir aftan
þau. Kristinn segir að horft hafi verið
til þess að þau trufli ekki vetrarþjón-
ustu, svo sem snjóruðning.
Morgunblaðið/Eggert
Hjólastæði Hjólreiðafólk getur nú geymt fáka sína við strætóstöðvar.
Hjólastæðunum hefur verið komið upp við fimmtán biðstöðvar í borginni.
Setja hjólastæði
við strætóstöðvar
Farþegar með strætó geta nú
fylgst með í rauntíma hversu
margar mínútur eru í næsta
vagn. Þessi þjónusta er nú í öll-
um stafrænum strætóskýlum í
Reykjavík. Þau eru 60 talsins í
dag en verða orðin 89 um ára-
mótin og 95 í heild á næsta ári.
Til stendur að gera þessar upp-
lýsingar aðgengilegar í strætó-
appinu.
Fylgjast með
í rauntíma
NÝJUNG HJÁ STRÆTÓ