Morgunblaðið - 17.06.2020, Síða 72
af öllum sumarvörum
Tilboð gilda í júní
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
17. júní - LOKAÐ, Mánudaga - Sunnudaga 12-18
25-30%Sparadu-
Bellevue
Bravo
BELLEVUE hægindastóll. Svartur. 49.900 kr. Nú 37.425 kr.
BRAVO blómapottur. Dökkgrár eða ljósgrár. Ø31 x H27 cm. 4.995 kr. Nú 3.746 kr.
Ø37 x H33 cm. 6.495 kr. Nú 4.871 kr. Ø55 x H26 cm. 8.995 kr. Nú 6.746 kr.
Sýningin Hafnarhús – pakkhús hugmynda í miðborg-
inni verður opnuð á morgun, 18. júní, kl. 20 í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Ólöf Bjarnadóttir safnfræð-
ingur er sýningarstjóri, en í ár eru 20 ár liðin frá því
hluti Hafnarhússins varð eitt af þremur safnhúsum
Listasafns Reykjavíkur. Í tilefni af því er efnt til sýn-
ingar þar sem húsið sjálft er í forgrunni og sögu þess
og umbreytingu í listasafn gerð skil. Þá er einnig skoð-
að hvernig safnbyggingin sem rými vinnur með listinni
og tengist umhverfi sínu – borgarrýminu.
Sýning í Hafnarhúsi um sögu húss-
ins og umbreytingu í listasafn
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 169. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Portúgalar eru bara orðnir firnasterkir og eru erfiður
andstæðingur,“ sagði Arnór Þór Gunnarsson, hægri
hornamaður í landsliðinu, þegar Morgunblaðið ræddi
við hann í gær um andstæðinga Íslands í undankeppni
EM karla 2022 í handknattleik. Ísland er í riðli með
Portúgal, Litháen og Ísrael en dregið var í gær.
Með tilliti til sögunnar í íþróttinni mætti reikna með
því að leiðin væri greið fyrir íslenska liðið en stað-
reyndin er sú að leikirnir gegn Portúgal og Litháen síð-
ustu árin hafa verið í járnum. »63
Portúgalar eru orðnir firnasterkir
og verða erfiður andstæðingur
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Barðstrendingurinn Friðgerður
Björk Friðgeirsdóttir, kölluð Lilla,
reyndi fyrir sér sem fyrirsæta í
fyrrahaust, leið vel í myndatökum,
fékk góð viðbrögð og ætlar að halda
áfram á sömu braut. „Ég er orðin 74
ára og fer ekki í fast framtíðarstarf
úr þessu en hleyp í þetta í hjáverk-
um og verð næst í golfgalla,“ segir
kylfingurinn, sem er með 28 í for-
gjöf.
Ekki er algengt að fólk á áttræðis-
aldri taki að sér fyrirsætustörf og
Lilla var hvorki með drauma né
væntingar í þá átt, en þegar Berg-
lind Ásgeirsdóttir, tengdadóttir
hennar, sem rekur verslunina
Brandtex í Kringlunni, bað hana að
taka verkið að sér þurfti hún ekki að
hugsa sig um tvisvar.
„Hún sagðist endilega vilja fá mig
sem fyrirsætu því ég væri svo lífs-
glöð og spurði hvers vegna ég gæti
ekki gert þetta eins og hver önnur,“
segir Lilla um frumraunina á þessu
sviði. „Ég þurfti ekki meira, sló til,
tilbúin að gera eitthvað skemmtilegt
úr þessu og stökk strax út í djúpu
laugina.“
Mótaðist í Mjólká
Lilla kenndi í tvö ár í grunnskól-
anum á Patreksfirði eftir að hafa
verið í lýðháskóla í Noregi í eitt ár.
Ómar Þórðarson, eiginmaður henn-
ar, var stöðvarstjóri í Mjólkár-
virkjun í Arnarfirði 1969-1977 og
þann tíma segir hún hafa verið
helstu mótunarárin. „Þar var mikið
að gera, stækkun í virkjuninni, ég
var með menn í fæði og gistingu, við
vorum bændur með kýr og kindur
og ég alltaf kölluð Lilla í Mjólká.“
Að þeim tíma loknum starfaði hún
meðal annars í bókaverslunum í
Reykjavík og hjá Innkaupa-
sambandi bóksala. Síðustu 25 árin á
vinnumarkaðnum vann hún hjá
Gámaþjónustunni og kenndi borgar-
búum og öðrum meðal annars að
flokka rusl. „Þessi störf voru langt
því frá hugsuð sem undirbúningur
fyrir það að verða fyrirsæta heldur
var það skyndiákvörðun,“ áréttar
hún.
Tengdadóttirin var ánægð með út-
komuna og danska móðurfyrirtækið
hengdi myndir af henni á veggi ytra.
„Þetta svínvirkaði og ég fékk gríðar-
lega góðar viðtökur. Ég fékk að
heyra að loksins, loksins væri komin
þroskuð kona í kynningarstörfin, en
ég gerði ekkert annað en að klæða
mig í fötin og sitja fyrir.“
Hjónin voru á Spáni í vetur en eft-
ir heimkomuna fór Lilla til hár-
greiðslukonu sinnar. „Hún sagðist
þurfa að segja mér brandara og
bætti síðan við að tvær konur hefðu
komið með mynd af mér og óskað
eftir að fá eins klippingu. Ég væri
orðin áhrifavaldur!“
Upphefðin hefur ekki stigið henni
til höfuðs. „Þessi reynsla hefur ekki
skemmt fyrir mér. Mér fannst þetta
bara skemmtilegt enda er það minn
stíll að vera lífleg og slá á létta
strengi.“
Að fenginni reynslu segir Lilla að
það að vera fyrirsæta eigi ekki að
vera staðalímynd heldur eitthvað
sem allir, sem treysta sér til að halda
brosinu og vera glaðir, eigi að geta
gert. Á árum áður hafi hún samt
hafnað tilboði um að vera fyrirsæta.
Kennari í Myndlistaskólanum í
Reykjavík hafi sagt sér að hann
vantaði þroskaða konu til að sitja
fyrir nakin og vildi hana í starfið.
„Sjálfsagt hefði ég getað það ef ég
hefði viljað en ég hleypti mér ekki í
þann pakka. Annars er ég til í slag-
inn aftur.“
Áhrifavaldur á besta aldri
Ljósmyndir/Kristján Freyr
Lífsglöð Friðgerður Friðgeirsdóttir, öðru nafni Lilla, kann að njóta lífsins.
Lilla í Mjólká skemmtir sér sem fyrirsæta í frítímanum
Fyrirsæta Lilla lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna.