Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 2
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Ég elska sushi og eiginlega allan japanskan mat. Svo
finnst mér mexíkóskur matur líka frábær. Þetta fer dá-
lítið eftir því hvernig stuði ég er í. Svo finnst mér ein-
faldur matur úr góðu hráefni alltaf frábær.“
Hvað borðar þú í morgunmat?
„Ég borða ekki morgunmat en ég fæ mér
rótsterkt engiferskot á morgnana. Svo
drekk ég vatn og svart kaffi fram eftir
degi og brýt föstuna oftast með prótein-
bústi með banana, mangó og sítrónu út
í.“
Hvað keyptir þú þér síðast í
eldhúsið?
„Ég keypti mér matardiska en ég
var búin að vera með brúðarstellið frá
ömmu minni og afa frá því ég byrjaði að
búa fyrir 23 árum og það var byrjað að
fækka verulega í því. Þar á
undan keypti ég Aarke-sóda-
stream-tæki sem er frábært
og ég vissi ekki að það væri
svona mikill munur á þessum
tækjum fyrr en ég prófaði
það. Mæli með því.“
Hver er besti steikarhníf-
urinn að þínu mati?
„Ég nota japanska hnífa og
á ágætt safn af Masahiro-
hnífum. Þeir eru mjög
góðir og á fínu verði.“
En uppáhaldskryddið?
„Kardimommur finnst
mér vera æðislegar.“
Hvaða fimm rétti mynd-
ir þú bjóða upp á í brúð-
kaupi?
„Súkkulaðihjúpuð jarð-
arber, sushi, tempura-
kóngarækjur, grísarif og svo
hamborgara á miðnætti.“
Hver er uppáhalds-
veitingastaðurinn?
„Það er erfitt að svara þessari því ég á tvo veit-
ingastaði, en Yuzu er í miklu uppáhaldi hjá okkur
fjölskyldunni.“
Áttu þér uppáhaldshönnuð?
„Vivienne Westwood
er geggjuð og svo
elska ég Aftur. Ég er
alltaf í að minnsta kosti
einni flík frá Aftur.“
Hvað keyptir þú þér
síðast heim?
„Ég keypti listaverk
um jólin eftir hann
Hrafnkel Sigurðsson.“
Hver er uppáhalds-
staðurinn heima?
„Við breyttum hús-
inu fyrir tveimur árum
og þá eignaðist ég loks-
ins stofu en við höfðum
ekki verið með sófa fyrir
það í sjö ár því það var
engin stofa svo það er
örugglega minn uppá-
haldsstaður að vera á.“
Hvað gerir þú til að
dekra við þig?
„Ég fer í nudd til Olgu Harnar Fenger sem er
besti nuddari í heimi að mínu mati. Mér finnst
einnig mjög mikið dekur að vera á námskeiði
hjá Önnu Eiríks-
dóttur í Hreyfingu.“
Hver er
uppáhaldssnyrti-
varan?
„Aasop er uppá-
haldsmerkið mitt.
Mér finnst það duga
endalaust. Tvær
uppáhalds Aasop-
vörurnar mínar eru
svitalyktareyðirinn
og svo olíufarða-
hreinsirinn sem
passar mér mjög
vel.“
Hvað er í snyrti-
buddunni?
„Svitalyktareyðir, Cornu-
copia-ilmvatnið mitt frá
Andreu Maack, rakakrem
og hárbursti. Ég mála mig
ekki dagsdaglega svo allt
annað bíður bara heima þar
til tilefni er til að nota það.“
Hver er uppáhaldsliturinn?
„Blár er svona allra tíma
uppáhalds.“
Væri með
súkkulaðihjúpuð
jarðarber í brúðkaupi
Stjörnukokkurinn Hrefna Rósa Sætran á Grill- og Fiskmarkaðnum elskar
sushi. Hún er fagurkeri sem kann að meta góða hluti í eldhúsinu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Aarke-sódastream-
tækið er vinsælt
þessa dagana.
Hrefna mælir
með súkkulaði
jarðaberjum í
brúðkaupið.
Hrefna elskar sushi.
Hrefna Rósa Sætran
er mikið fyrir
japanskan mat.
Allt sem Hrefna gerir er
einstaklega fallegt á að líta.
Þegar Hrefna ætl-
ar að dekra við
sig fer hún í nudd.
Uppáhalds kryddið
hennar Hrefnu er
Kardimommur.
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@m-
bl.is Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Anthony Bogdan
H
efur þú einhvern
tímann farið í leið-
inlegt brúðkaup?
Svo leiðinlegt að
þú neyddist til að
spila kapal í símanum þínum?
Ég er ekki viss um að margir geti
svarað þessari spurningu ját-
andi enda eru brúðkaup ástar-
hátíðir þar sem hreyft er við
hverri einustu taug mannslíkam-
ans.
Á ástarhátíðum skiptir máli að
setja fókusinn á brúðhjónin og
reyna ekki með neinum hætti að
skyggja á þau. Þú hefur nefni-
lega milljón tilefni til þess að láta
ljósið skína á þig en akkúrat
þennan dag skiptir máli að geta
samfagnað þeim sem okkur
þykir vænt um.
Ekki grípa vöndinn og láta brúðkaup vinar þíns fara að snúast um þig! Ekki
mæta í hvítari og flottari kjól en brúðurin og ekki vera með flottari förðun en
drottning þessa dags.
Ef þú ætlar að halda ræðu, láttu hana þá snúast um brúðhjónin, ekki þig!
Þú hefur hugsanlega 364 aðra daga til að vera miðpunktur athyglinnar og
þennan dag ætlar þú að beina athyglinni að brúðhjónunum. Ef þú átt í basli
með að halda skemmtilega ræðu um brúðhjónin – slepptu því þá! Og alls
ekki tala í 45 mínútur! Ef þú sérð þér ekki fært annað en að rifja upp vand-
ræðalegustu augnablik vina þinna sem eru að ganga í hjónaband slepptu þá
ræðunni.
Mikill einkahúmor á heldur aldrei heima í ræðum í stórum veislum. Mál-
tækið segir að það sé bannað að hvísla í afmælum og það á líka við um brúð-
kaup. Það skemmtir sér enginn vel ef hann veit ekki um hvað fólk er að tala.
Ef þú ætlar að haga þér alveg upp á 10 skaltu passa þig að drekka ekki of
mikið. Það væru ekki allir fangaklefar oft og tíðum fullir ef fólk drykki bara vatn
og borðaði salat. Þú vilt ekki þurfa að upplifa það sama og brúðhjónin sem
gengu í hjónaband í fyrra eða hitteðfyrra og allt gekk ógurlega vel þangað til
bróðir brúðgumans missti stjórn á sér. Til að gera langa sögu stutta mætti
lögreglan og handtók manninn fyrir óspektir.
Brúðhjónin enduðu á því að hnakkrífast og brúðurin æpti yfir síðustu gest-
ina að hún ætlaði að skilja við manninn. Það vill eng-
inn enda eins og bróðir þessa brúðguma og hafa
það á samviskunni að hafa sturtað niður heilu brúð-
kaupi.
Það vill heldur enginn vera fulli karlinn sem dans-
aði svo mikið að hann datt ofan á konu sem fékk
heilahristing og er enn að jafna sig (eða svona næst-
um því).
Sumarið er tími brúðkaupa og því skiptir máli að
allir vandi sig svo brúðkaupsdagur brúðhjónanna
verði góður. Það er svolítið glatað að vera búin/n að
tjalda öllu til, láta sérsauma föt, fá sérfræðinga til að
skreyta salinn, fá hljómsveit til að spila og kaupa
dýrasta kampavínið ef veislugestir eru ekki búnir að
fara í gegnum hegðun 101. Maður er manns gaman
og þegar allir eru í essinu sínu, þá er gaman, alveg
sama þótt borðskreytingarnar séu úr plasti!
101 í hegðun
(í brúðkaupum)
Marta María Jónasdóttir
V E I S L U R F Y R I R
2 0 - 1 5 0 M A N N S
N O T A L E G T
U M H V E R F I
A Ð E I N S 4 5 M Í N
F R Á R E Y K J A V Í K
R A U D A H U S I D . I S /
B R U D K A U P
4 8 3 - 3 3 3 0
Á s t
Í L O F T I Ð