Morgunblaðið - 19.06.2020, Qupperneq 6
Það jafnast ekkert á
við fallega köku á
brúðkaupsdaginn.
Lára Colatrella, stofnandi Baunarinnar, segir
vegan kökuturna vinsæla um þessar mundir.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Kökuturnar
vinsælir
L
ára er einstaklega listræn þegar kemur að því að gera kökur og segir
fátt skemmtilegra en að þróa eitthvað nýtt í þeim efnum.
Tíminn sem hún fær til þess núna er talsverður enda mikið verið að
færa til brúðkaup vegna farsóttarinnar að hennar sögn.
„Kökuturnarnir eru vinsælir um þessar mundir, þar sem ég býð
upp á nýja fallega standa núna sem ég lána fólki undir kökurnar.“
Langar að kenna kökulistina áfram
Lára er að undirbúa kökunámskeið þar sem hún mun kenna listina á bak við
vegan kökur og hvernig sé best að skreyta þær.
„Á námskeiðinu langar mig að kenna fólki grundvallaratriðin en svo munu
allir fá að taka fallega köku með heim.“
Viðskiptin á bak við Baunina ganga vel og eru verkefnin alltaf að verða
stærri og fleiri að sögn Láru.
„Það er hægt að nálgast kökurnar mínar í gegnum netið, þá á heimasíðunni
og Facebook-síðunni okkar. Eins er hægt að kaupa kökusneiðar hjá Systra-
samlaginu, The Coocoo’s Nest og Luna Flórens daglega.
Bráðlega verður eins hægt að nálgast vegan kökur frá Bauninni í Vegan búð-
inni í Skeifunni.“
Vil tóna litina á kökunum niður
Hvaða litir heilla þig mest þegar
kemur að kökum?
„Ég kann vel við að blanda ólíkum
litum saman sem verða að náttúru-
legum tónum. Ég reyni að tóna litina á
kökunum niður og elska að gera dökk-
an lit á kökurnar líka.“
Áttu sögu af skemmtilegu köku-
verkefni sem þú hefur farið í?
„Ég held mikið upp á samvinnuna
við Hönnunarsafn Íslands, þar sem ég
geri kökur í stíl við verkefnin hverju
sinni. Ég hef gert kökur sem eru svo
líkar listinni að erfitt er að greina á
milli.
Fallegar blómakökur fyrir utan
safnið 17. júní voru áhugavert verkefni
og ég gæti lengi haldið áfram að ræða
verkefnin sem koma á borðið til mín.“
Vegan kökuturnar eru vin-
sælir um þessar mundir.
Ljósmyndir/Íris Ann Sigurðardó
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgið okkur á facebook
GLÆSIKJÓLAR
Í ÚRVALI
SKOÐIÐ
NETVER
SLUN
LAXDAL
.IS
É
g er með Listræna ráðgjöf, þar sem ég að-
stoða fólk við að skreyta fallega í veislum sem
dæmi. Ég er einnig að byggja upp leigu á
vörum sem ég hanna og pabbi smíðar. Í leig-
unni er ég með kampstálhringi sem ég hef
bæði á fæti og hangandi. Þeir koma allir með grænum
gerviblómum sem ég vel vandlega en það er hægt að
velja um nokkra mismunandi blómapakka til að bæta
við á hringina eins og á allar þær vörur sem ég er með.
Þá er hægt að gera vörurnar meira í stíl við þemað í
brúðkaupinu – sem gerir hverja skreytingu einstaka.
Viðarhringirnir koma einnig með ljósum, sem skapar
fallegt andrúmsloft. Þeir geta einnig verið hangandi og
standandi á borði.
Blúnduhringirnir eru hugsaðir sem veggskraut, þeir
eru t.d fallegir margir saman fyrir aftan brúðhjónin í
veislusalnum eða sem myndaveggur.“
Svava er með óteljandi hugmyndir í vöruþróun. Sem
dæmi má nefna servíettuhringi, boga og fleira.
Hvað er í tísku þetta sumarið þegar kemur að brúð-
kaupum?
„Þurrkuð blóm eru mjög mikið í tísku. Það er mikið
um stórar og miklar skreytingar í öllum regnbogans lit-
um. Mér finnst meira vera um liti núna, ekki bara grænt
og hvít. Fólk er að nota bláa, bleika og brúna tóna. Ég
vinn mikið með þurrkuð blóm og hef verið að blanda
þeim saman við fersk blóm.“ Faðir Svövu smíðar hringi sem hún skreytir og leigir út.
Að blanda
grófu við fínt
Svava Halldórsdóttir er að eigin
sögn algjör blómaálfur sem elskar
að gera fallegar skreytingar.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Svava mælir með þurrkuðum blómum í bland við fersk.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon