Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 12
sem gerðist. Bæði út af spennufalli, sem kom yfir mig um leið og
við vorum sest til borðs, og magninu af áfengi sem var drukkið um
kvöldið. Ég var brosandi allan daginn og dansaði allt kvöldið. Ég
mun aldrei gleyma þessum fallega degi.“
Hvar keyptir þú kjólinn? „Ég keypti vintage-kjól sem var ónot-
aður frá tískuhúsi sem heitir Rembo Styling. Þau sérhæfa sig í
boho-stíl og fer hönnun fyrirtækisins fram í Belgíu og framleiðslan
í Portúgal.
Ég fann kjólinn í lítilli brúðarkjólabúð í Kaupmannahöfn sem
selur notaða kjóla með allt að 40% afslætti. Ég hafði farið þangað
með tveimur bestu vinkonum mínum árin áður þegar þær giftust
og var því fullviss um að ég vildi kaupa kjólinn minn þar.
Þjónustan er svo frábær og allt við brúðkaupið er nógu dýrt svo
að það er gott að geta sparað einhvers staðar.
Kjóllinn sem ég keypti hafði verið keyptur nýr til að nota sem
annar kjóll í brúðkaupi, en var aldrei notaður. Ég fékk hann því á
afslætti með merkimiðanum á.“
Hildi hefur alltaf þótt hugmyndin um tvo kjóla áhugaverð. Svo
hún lét gera skemmtilega útfærslu af kjólnum fyrir brúðkaupið.
„Mig langaði að vera smávegis hefðbundin prinsessubrúður,
þegar ég gifti mig. Svo ég lét sérsauma æðislegt tjullpils sem ég
gat verið í yfir kjólnum sem ég tók svo af fyrir veisluna. Á sama
stað lét ég aðlaga kjólinn frá Rembo svo að hann passaði við pilsið.
Ég opnaði aðeins niður hálsmálið og setti púða í framhluta hans.“
Alltaf dreymt um stórt brúðkaup
Hefur þig alltaf dreymt um brúðkaup?
„Já, ég vissi alltaf að ég vildi stórt brúðkaup. En hvernig brúð-
kaup ég vildi hefur breyst mikið í gegnum tíðina. En eftir að ég
kynntist manni mínum var þetta það brúðkaup sem við vildum
bæði.“
Hildur segir mikilvægt að vera maður sjálfur á brúðkaupsdag-
inn.
„Ef þú ert ekki vön að vera með fulla förðun, þá myndi ég ekki
gera það á brúðaupsdaginn. Ég mæli frekar með að vera maður
sjálfur og ýta undir þá kosti sem maður hefur. En ekki breyta of
mikið til á brúðkaupsdaginn.“
Þegar kemur að veitingunum á brúðkaupsdaginn vildi Hildur
bjóða upp á mat í þeirra anda. Hamborgarabúlla Tómasar gerði
smart hamborgara og sá um alla drykki á barnum fram eftir nóttu.
„Þeir stóðu sig ótrúlega vel. Við buðum upp á íslenskan bjór,
appelsín og sérvalda kokteila sem voru töfraðir fram um kvöldið.
Síðan buðum við upp á rautt og hvítt vín um kvöldið einnig. Brúð-
artertan kom einnig frá íslensku fyrirtæki en Bake My Cake stóð
fyrir kökunni.“
Hildur segir veisluna hafa verið skemmtilega þar sem gestirnir
skemmtu sér fram á nótt.
„Við vorum með partí. Við vorum með geggjaðan plötusnúð sem
spilaði allt gamalt og gott og meira að segja nokkur íslensk partíl-
ög. Allir dönsuðu og höfðu gaman. Ég var borin upp í rúm rétt eft-
ir miðnætti. Eins og ég sagði, þá var þetta alvöru partí.“
Hildur segir mikilvægt að skuldsetja sig ekki fyrir draumabrúð-
kaupið.
„Hægt er að forðast allskonar óþarfa þjónustu. Mikilvægt er að
hugsa sig vel um hvort maður geti gert hlutina sjálfur fyrir betra
verð. Við vorum sem dæmi með tvo þjóna, en mælt var með að við
værum með sex.“
Allar blómaskreytingar í
brúðkaupinu voru gerðar
af Whispering Vintage
eftir hugmyndum Hildar.
Ljósmynd/Anthony Bogdan
Skreytingarnar og umhverfið í
veislunni er í anda heimilis Hildar
og Claes.
Mæðgurnar voru klæddar
í stíl á brúðkaupsdaginn.
Hildur og Claes Berland í
rómantískum brúðarvalsi.
Hildur og Claes með fjölskyldu
og vinum á brúðkaupsdaginn.
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020