Morgunblaðið - 19.06.2020, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
L
ára og Aron eru sammála því að vinskapur
sé það sem gott hjónaband byggist á. Þau
starfa bæði í kvikmyndaiðnaðinum. Aðalstarf
Láru er hjá Orkuveitu Reykjavíkur, sem
CRM-sérfræðingur og Aron er fjölmiðla-
tæknir og upptökumaður.
Þau eru bæði alin upp í Mosfellsbæ, gengu í sama
skóla og áttu sameiginlega vini þótt þau hafi ekki
kynnst eða tekið hvort eftir öðru fyrr en örlögin
leiddu þau saman á unglingsárunum.
„Við byrjuðum saman 1. ágúst 2007 þegar ég söng
lag með hljómsveitinni hans Arons. Aron spilaði á
trommur og frændi hans, sameiginlegur vinur okkar,
bað mig að syngja fyrir þá.
Ég var þá að verða fimmtán ára og Aron var sex-
tán.“
Lára og Aron segja ákvörðunina um brúðkaupið
hafa komið auðveldlega til sín. Þau tóku sér góðan
tíma í undirbúninginn og fengu einnig góða aðstoð
vina og fjölskyldu.
Brúðkaup haldið úti í náttúrunni
Hvar hélduð þið brúðkaupið?
„Brúðkaupið var haldið úti í náttúrinni, í bakgarði
félagsheimilis Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdaln-
um. Veislan var síðan haldin á sama stað um kvöldið
og brúðkaupsgestir voru rétt yfir 60; svo það var fá-
mennt en góðmennt. Eingöngu nánustu vinir og ætt-
ingjar,“ segir Aron.
Hvernig er tilfinningin að giftast?
„Við upplifðum bæði mikla hamingju og þakklæti
fyrir að geta upplifað daginn með fólkinu okkar, sem
kom og fagnaði með okkur,“ segja þau.
Þau fengu Marinó Flóvent ljósmyndara til að festa
augnablikin á filmu og sjá ekki eftir því.
„Hann tók hefðbundnar brúðkaupsmyndir og einnig
ljósmyndir í veislunni, sem gaman er að eiga í dag.“
Lára og Aron vildu nota íslenska náttúru sem bak-
grunn á myndunum.
„Við vildum fara óhefðbundnar leiðir og varð Kleif-
arvatn fyrir valinu. Náttúran er dæmi um að fegurð
og fullkomleiki eru ekki sami hluturinn, þótt sam-
félagið sé kannski ekki alltaf á sama máli. Til að ná
þessu fram vildum við vera í okkar fínasta pússi í
grófri náttúrunni,“ segja þau og bæta við að ljós-
myndirnar veki ennþá eftirtekt fólks þar sem þær
hanga á góðum stað heima hjá þeim.
Mæla með að fá aðstoð hjá fjölskyldu og vinum
„Thelma Baldursdóttir og Helga Þóra Bender voru
veislustjórar; Lena Líf og Diljá Dögg Valsdætur voru
Ljósmyndir/Mr. Flóvent
Upplifðu ævin-
týralegt brúð-
kaupsferðalag í
Los Angeles
Lára og Aron segja að
brúðarmyndirnar veki
ennþá mikla lukku. Þær
hanga á fallegum stað á
heimilinu þeirra.
Þegar Lára og Aron fóru í
brúðkaupsferðalagið var það
í fyrsta skiptið sem þau fóru
til útlanda saman tvö ein.
SJÁ SÍÐU 16
Lára Björk Bender og Aron Bragi Baldursson eru hjón en einnig
bestu vinir sem hafa mikinn áhuga á kvikmyndagerð. Þau upplifðu
drauminn í brúðkaupsferðalagi sínu þar sem þau gengu rauða
dregilinn á frumsýningu með fræga fólkinu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
ÍSLENSK HÖNNUN
Brúðagjafalistar