Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 18
L
aimonas Dom Baranauskas er fæddur í Litháen en hefur bú-
ið á Íslandi frá árinu 2010. Hann hefur allt frá því hann man
eftir sér haft áhuga á ljósmyndun. Í raun svo mikinn að hann
eyðilagði ljósmyndirnar í skírnarveislu sinni.
„Ég fékk fyrst áhuga á ljósmyndun þegar ég var barn. Ég
komst að því þegar ég spurði foreldra mína um ljósmyndir frá því ég
var skírður að ég hefði náð að grípa í ljósmyndavélina, opnað hana og
skemmt filmuna. Svo við eigum engar myndir frá þessum sögulega við-
burði. Ég hef alltaf haft gaman af þessari sögu, því fyrir mér markar
þetta upphafið á augljósum áhuga mínum á ljósmyndun.“
Fylgdi mömmu sinni til Íslands
Laimonas talar fallega íslensku og hefur mikinn áhuga á ís-
lenskri menningu.
„Mamma og pabbi höfðu skilið að skiptum og bjuggu
bæði í Litháen á sínum tíma. Hún kynntist íslenskum
manni sem sigldi reglulega frá Þorlákshöfn til Litháens í
kringum árið 2008. Hann heimsótti mömmu reglulega á
veitingastaðinn hennar en eftir tvö ár ákváðu þau að búa
saman. Mamma ákvað þá í upphafi ársins 2010 að flytja
til Íslands. Ég var áfram í skólanum í Litháen og bjó hjá
eldri bróður mínum, en skipulagði heimsókn til mömmu
um sumarið. Eftir tvær vikur á Íslandi vissi ég að ég vildi
hvergi annars staðar vera í heiminum en hér. Svo ég hringdi í
pabba og tilkynnti honum að mig langaði að verða Íslendingur.
Ég tók strax ákvörðun um að tileinka mér hlutina hér í stað þess að
vera með samastað í tveimur ólíkum menningarheimum.“
Laimonas segir að hann hafi aldrei séð eftir þessari ákvörðun
sinni.
„Um leið og ég flutti hingað vildi ég verða hluti af samfélaginu. Ég
gerði það með því að læra íslensku og með því að taka þátt í lífi og
menningunni hér. Mér var mjög vel tekið um leið og ég kom hingað.
Ég man ennþá eftir fyrsta degi mínum í Grunnskóla Þorlákshafnar.
Nýju bekkjarfélagarnir buðu mér heim í súkkulaðiköku. Ég var óör-
uggur með mig og vissi ekki hvað þetta heimboð þýddi. Ég áttaði mig
fljótt á því að krakkarnir voru góðir og vildu mér vel. Þeir vildu vita allt
um hvaða tónlist krakkarnir í Litháen hlusta á. Hvað gert væri eftir
skóla og þar fram eftir götunum. Það kom mér skemmtilega á óvart
hversu vel var tekið á móti mér.“
Leitast við að ná ástinni á filmu
Laimonas er ánægður með lífið og starfið sitt hér. Eitt leiddi af öðru
og málin þróuðust þannig að hann fékk mestan áhuga á að mynda
brúðhjón.
„Eftir að hafa aðstoðað vinkonu mína að mynda brúðkaup, uppgötv-
aði ég ánægjuna við þessa tegund af ljósmyndun. Hvert einasta brúð-
kaup er einstakt. Mér finnst alltaf mikill heiður að vera hluti af degi
sem lifir í minni fólks til æviloka. Að fanga réttu augnablikin og ná
flottum ljósmyndum af brúðhjónum og fjölskyldu þeirra.“
Laimonas leitast við að ná ástinni á filmu, gleði og öllum smáatriðum
sem skipta svo miklu máli.
„Brúðkaup snúast svo mikið um litlu atriðin. Tárin á vanga brúðar-
innar, fyrsta kossinn og alla töfrana sem á eftir koma. Ég hef verið ein-
staklega heppinn með þau brúðkaup sem ég hef myndað, en eitt helsta
verkefni mitt er að ná réttu augnablikunum og einnig að fá brúðhjónin
til að slaka á og njóta augnabliksins. Brúðhjón eru að fara út fyrir þæg-
indaramma sinn með svo margt. Það er stressandi að vera í fínum föt-
um, að halda stóra veislu og að hafa ljósmyndara fyrir framan sig.“
Lætur drauminn
rætast á Íslandi
Ljósmyndarinn Laimonas Dom Baranauskas veit fátt
skemmtilegra en að taka ljósmyndir í brúðkaupum. Hann
segir mikilvægt að ná ástinni á filmu í upphafi hjónabandsins.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Gleðin og hamingjan
fest á ljósmynd á
brúðkaupsdaginn.
Laimonas Dom
Baranauskas
ljósmyndari.
Stórbrotin ís-
lensk náttúra.
Stundum þarf brúð-
urin að skipta um skó
til að geta gengið
grýtta ströndina.
Laimonas sér
stóru atriðin í
smáatriðunum.
Laimonas þykir
góður ljósmynd-
ari að vinna með.
Ljósmyndir/Laimonas Dom Baranauskas
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJAN ERNA
ERNA Skipholti
Gull og silfur fyrir
brúðkaupið
Brúðkaupsgaffall
Giftingahringar
29.500,-
Frá 59.600,-