Morgunblaðið - 19.06.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.06.2020, Qupperneq 18
L aimonas Dom Baranauskas er fæddur í Litháen en hefur bú- ið á Íslandi frá árinu 2010. Hann hefur allt frá því hann man eftir sér haft áhuga á ljósmyndun. Í raun svo mikinn að hann eyðilagði ljósmyndirnar í skírnarveislu sinni. „Ég fékk fyrst áhuga á ljósmyndun þegar ég var barn. Ég komst að því þegar ég spurði foreldra mína um ljósmyndir frá því ég var skírður að ég hefði náð að grípa í ljósmyndavélina, opnað hana og skemmt filmuna. Svo við eigum engar myndir frá þessum sögulega við- burði. Ég hef alltaf haft gaman af þessari sögu, því fyrir mér markar þetta upphafið á augljósum áhuga mínum á ljósmyndun.“ Fylgdi mömmu sinni til Íslands Laimonas talar fallega íslensku og hefur mikinn áhuga á ís- lenskri menningu. „Mamma og pabbi höfðu skilið að skiptum og bjuggu bæði í Litháen á sínum tíma. Hún kynntist íslenskum manni sem sigldi reglulega frá Þorlákshöfn til Litháens í kringum árið 2008. Hann heimsótti mömmu reglulega á veitingastaðinn hennar en eftir tvö ár ákváðu þau að búa saman. Mamma ákvað þá í upphafi ársins 2010 að flytja til Íslands. Ég var áfram í skólanum í Litháen og bjó hjá eldri bróður mínum, en skipulagði heimsókn til mömmu um sumarið. Eftir tvær vikur á Íslandi vissi ég að ég vildi hvergi annars staðar vera í heiminum en hér. Svo ég hringdi í pabba og tilkynnti honum að mig langaði að verða Íslendingur. Ég tók strax ákvörðun um að tileinka mér hlutina hér í stað þess að vera með samastað í tveimur ólíkum menningarheimum.“ Laimonas segir að hann hafi aldrei séð eftir þessari ákvörðun sinni. „Um leið og ég flutti hingað vildi ég verða hluti af samfélaginu. Ég gerði það með því að læra íslensku og með því að taka þátt í lífi og menningunni hér. Mér var mjög vel tekið um leið og ég kom hingað. Ég man ennþá eftir fyrsta degi mínum í Grunnskóla Þorlákshafnar. Nýju bekkjarfélagarnir buðu mér heim í súkkulaðiköku. Ég var óör- uggur með mig og vissi ekki hvað þetta heimboð þýddi. Ég áttaði mig fljótt á því að krakkarnir voru góðir og vildu mér vel. Þeir vildu vita allt um hvaða tónlist krakkarnir í Litháen hlusta á. Hvað gert væri eftir skóla og þar fram eftir götunum. Það kom mér skemmtilega á óvart hversu vel var tekið á móti mér.“ Leitast við að ná ástinni á filmu Laimonas er ánægður með lífið og starfið sitt hér. Eitt leiddi af öðru og málin þróuðust þannig að hann fékk mestan áhuga á að mynda brúðhjón. „Eftir að hafa aðstoðað vinkonu mína að mynda brúðkaup, uppgötv- aði ég ánægjuna við þessa tegund af ljósmyndun. Hvert einasta brúð- kaup er einstakt. Mér finnst alltaf mikill heiður að vera hluti af degi sem lifir í minni fólks til æviloka. Að fanga réttu augnablikin og ná flottum ljósmyndum af brúðhjónum og fjölskyldu þeirra.“ Laimonas leitast við að ná ástinni á filmu, gleði og öllum smáatriðum sem skipta svo miklu máli. „Brúðkaup snúast svo mikið um litlu atriðin. Tárin á vanga brúðar- innar, fyrsta kossinn og alla töfrana sem á eftir koma. Ég hef verið ein- staklega heppinn með þau brúðkaup sem ég hef myndað, en eitt helsta verkefni mitt er að ná réttu augnablikunum og einnig að fá brúðhjónin til að slaka á og njóta augnabliksins. Brúðhjón eru að fara út fyrir þæg- indaramma sinn með svo margt. Það er stressandi að vera í fínum föt- um, að halda stóra veislu og að hafa ljósmyndara fyrir framan sig.“ Lætur drauminn rætast á Íslandi Ljósmyndarinn Laimonas Dom Baranauskas veit fátt skemmtilegra en að taka ljósmyndir í brúðkaupum. Hann segir mikilvægt að ná ástinni á filmu í upphafi hjónabandsins. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Gleðin og hamingjan fest á ljósmynd á brúðkaupsdaginn. Laimonas Dom Baranauskas ljósmyndari. Stórbrotin ís- lensk náttúra. Stundum þarf brúð- urin að skipta um skó til að geta gengið grýtta ströndina. Laimonas sér stóru atriðin í smáatriðunum. Laimonas þykir góður ljósmynd- ari að vinna með. Ljósmyndir/Laimonas Dom Baranauskas 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is GULL- OG SILFURSMIÐJAN ERNA ERNA Skipholti Gull og silfur fyrir brúðkaupið Brúðkaupsgaffall Giftingahringar 29.500,- Frá 59.600,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.