Morgunblaðið - 19.06.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.06.2020, Qupperneq 26
Ljósmynd/Bragi Kort Þ ær Árdís og Sóley kynntust á námsárum sín- um fyrst árið 2013. Þær hafa allar götur síðan verið afar samrýndar. Þær luku báðar náms- samningum sínum á Vox. Héldu út á vinnu- markaðinn og öfluðu sér upplýsinga og luku einnig báðar meistaranámi í matreiðslu samhliða vinnu. Síðla ársins 2019 stofnuðu þær saman veislufyrirtækið Moon. „Draumurinn var alltaf að byggja upp okkar eigin rekstur, og ákváðum einn daginn að kýla á þetta. Margir möguleika voru í boði þegar kom að því að velja í hvaða átt við ættum að fara. Hvers konar fyrirtæki við vildum koma með á markaðinn. Vegna mikils áhuga okk- ar á gæða sælkeravörum ásamt vönduðum gjafaum- búðum langaði okkur að leggja okkar að mörkum og koma með vandaðar og fjöl- breyttar sælkeravörur á markað sem framleiddar væru af okkur. Ásamt því höfum við alltaf haft gaman af smáréttum, og passar það fullkomlega við að okk- ar mati.“ Ástandið sett strik í reikn- inginn Stór hluti tímans að und- anförnu hefur farið í upp- byggingu og skipulag á rekstri Moon veitinga. En þær stofnuðu fyrirtækið í lok ársins 2019. „Við leggjum mikið upp úr faglegri en persónulegri þjónustu og fer því mikill tími og metnaður í til dæmis myndatökur fyrir auglýsingar, samfélagsmiðla og slíka vinnu.“ Ástandið hefur sett sinn strik í reikninginn, þar sem engar veislur hafa verið á meðan á samkomubanni stóð. „Við höfum þó haft opið fyrir pant- anir á sælkeravörum okkar og boðið viðskiptavinum okkar upp á fría heim- sendingu. Fólk hefur verið að nýta sér þessa þjónustu til að mynda til að koma fjölskyldu og sínum nánustu á óvart. Vinsælt hefur verið að fá okkur til að sendast með gjafir óvænt heim að dyrum, og hefur fólk alltaf jafn mikið gaman af því. Við höfum einnig nýtt þessa tíma fyrir breytingar á matseðli þar og meðal ann- ars bætt nýjum réttum við. Matseðillinn okkar snýr að mestu leyti að pinna- og smáréttaveislum sem henta vel við ýmis tækifæri. Það getur verið afar skemmtilegt að brjóta upp fyrirkomulagið og bjóða gestum sínum upp á flotta og vandaða smárétti, andinn breytist úr formlegum yfir í léttari og veitir það gestgjöfum meiri tíma með gest- um sínum.“ Gott að reikna vel út magn fyrir veisluna Árdís og Sóley hafa góða reynslu þegar kemur að veislum. Þær segja mikilvægt að hafa í huga tímasetningu á veisluhöldunum, en þær ákvarða viðeigandi veitingar fyrir veisluna. „Stór munur er á veislum sem haldnar eru á mismun- andi tíma dagsins. Veisluhöld fyrri part dags eru oftar með léttara sniðinu, boðið er fremur sjaldan upp á þungan mat og eru því að mestu leyti sætari veitingar í boði. Veisluhöld seinni part dags eru hins vegar með allt öðru sniði og er mikilvægt að gestgjafar hafi í huga að þá þurfi meira af veitingum. Eins og áður kom fram er það tíma- setningin sem ákvarðar viðeigandi veitingar fyrir þína veislu. Því má segja að við veisluhöld seinnipart eins og á matmálstíma megi gera ráð fyrir að veislugestir vilji borða sig sadda. Getur þar af leiðandi staðsetning á veisluhöld- um skipt gífurlega miklu máli. Ef heitar veitingar eru valdar er nauðsynlegt að réttur eldhúsbúnaður sé við höndina, svo sem ofn af einhverju tagi. Gott er að fá fag- lega ráðgjöf sem við feitum til að sporna við matarsóun.“ Auðséð er að þær leggja mikið upp úr fagurfræði mat- arins. „Við leggjum mikinn metnað í útlit á veitingunum. Veit- ingarnar eru bornar fram á einsaklega flottum borðbún- aði. Hægt er að útskýra þemað sem „rustic“ stíl en þó stíl- hreinan.“ Gott að huga vel að afgöngum Eigið þið góð hagnýt ráð þegar kemur að mat sem verð- ur afgangs í veislum? „Það er víst ekki alveg hægt að forðast afganga. Gott ráð er að huga að geymsluþoli á þeim mat sem verður af- gangs og athuga hvað hægt er að frysta eða geyma í kæli, þar með passa að innsigla allar þær matvörur/afganga vel fyrir þess konar geymslu. Annað ráð væri að bjóða nánum fjölskyldu-meðlimum úr veisluhöldum að taka með sér heim einhverja af afgöngunum, vera þá tilbúin með ein- hvers konar bakka sem hægt væri fyrir aðra að taka með sér heim. Einnig væri möguleiki að fara með vel með farna afganga, þar á meðal pinnarétti, súpur og ýmsa rétti sem hægt væri að hita aftur, til góðgerðarsamtaka eða á elli- heimili og þar með gleðja aðra.“ Hvers konar skraut finnst ykkur fallegt að nota á kræs- ingarnar ykkar? „Við viljum láta veitingarnar njóta sín sem best. Því finnst okkur vera óþarfi að fjárfesta stórum upphæðum í skreytingar sem ekki eru fyrir hversdags notkun. Þrátt fyrir að skreytingar geti að mörgu leyti verið flottar á veisluborðin höfum við fremur mælt með því við viðskiptavini okkar að bjóða veislugestum sínum upp á gæða veitingar.“ Af hverju ekki að leggja meira í matinn en skrautið? Árdís Eva Bragadóttir og Sóley Rós Þórðar- dóttir eru góðar að gera veislumat. Þær eru eigendur Moon veitinga og mæla með að leggja aðeins meira í veitingarnar en skrautið. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Litlir hamborg- arar frá Moon. Árdís og Sóley létu drauminn rætast með veisluþjónustunni Moon. Snittu- brauð frá Moon. Franskar makkarónur frá Moon. 26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa BRÚÐKAUPS MYNDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.