Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 28
„Mamma gifti
sig í skónum
fyrir 40 árum“
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty
FULL BÚÐ AF
UNDIRFÖTUMOG
SUNDFÖTUM
Tamara frá Fantasie
BH verð 8.990,-
Buxur 3.990,-
og dásamlegur söngur hjá Öglu Bríeti Einars-
dóttur. Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur
hér var léttur og skemmtilegur í athöfninni.
En ég held samt að gestirnir standi upp úr í
veislunni, það var svo gaman þar með þeim.“
Skórnir sem þú varst í eru einstakir, hver er
sagan á bak við þá?
„Mér þykir einstaklega vænt um þá og úr
því að ég passaði í þá kom ekkert annað til
Þ
au Elín Jonsdóttir og Magnús Örn
Guðmundsson giftu sig 5. október í
Seltjarnarneskirkju. Veislan var
haldin í félagsheimilinu Seltjarn-
arnesi, örskammt frá kirkjunni.
„Við vorum með 180 gesti, ættingja og vini
sem standa okkur næst. Það var sérlega gam-
an að fá 10 skólafélaga Magnúsar frá Boston
líka. Bæði móður- og föðurfjölskyldan mín
heldur góðu sambandi og fannst mér ég ekki
getað haldið gott brúðkaup án þeirra. Eins eig-
um við trausta og góða vinahópa. Brúðkaupið
var algjörlega geggjað, frábær stemmning frá
upphafi til enda. Gestirnir eru þeir sem búa til
stemninguna í brúðkaupinu og það var al-
gjörlega það sem átti sér stað í brúðkaupinu
okkar.“
Kynntust fyrir tíma Tinder
Hvenær kynntist þið?
„Við kynntumst og fórum að hittast 2009
þótt við hefðum vitað af hvort öðru frá árinu
2007. Þetta var fyrir Tinder-tímann, svo við
eigum líklega klassíska sögu með að hafa hist á
skemmtistað. Sambandið fór rólega af stað en
ég flutti til hans á Seltjarnarnesið árið 2012
með stelpuna mína sem var þá átta ára.“
Hvað stendur upp úr frá stóra deginum?
„Ég á mjög erfitt með að velja eitthvað eitt
sem stóð upp úr deginum. Því dagurinn allur
var draumi líkastur og hugsa ég svo oft til baka
um daginn. Bara allt frá því að við mæðgur,
mamma, dóttir mín og ég, fórum saman á Hót-
el Sögu að gera okkur klárar fyrir athöfnina.
Áttum þar æðislega stund saman í dekri með
hárgreiðslukonunni og förðunarfræðingi. At-
höfnin í kirkjunni var algjörlega okkar, stutt,
Elín Jónsdóttir ferðamálafræðingur gifti sig í brúðarskóm
móður sinnar, Elínar Elísabetar. Það var einstaklega táknræn
stund þegar faðir hennar leiddi hana inn kirkjugólfið í skónum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Brúðhjónin á
góðri stundu.
Ljósmyndir/Blikstudio
Elín gifti sig í skóm sem
móðir hennar, Elín Elísabet,
gifti sig í 40 árum áður.
Ánægjan skín úr augum Elínar á
brúðkaupsdaginn.
Það var mikil gleði og gaman í
Félagsheimilinu Seltjarnarnesi.