Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 32
að fram á haust eða næsta ár. Einnig eru dæmi um að fólk haldi athöfnina á réttum degi og bjóði þá bara nánustu að- standendum en fresti veislu um nokkra mánuði, sem er frábært tækifæri til að geta farið tvisvar í brúðarkjólinn.“ Gifti sig í fallegum kjól sem hún á enn Giftir þú þig í fallegum kjól sjálf? „Já, ég gifti mig í æðislegum pallíettukjól sem ég fékk í Kjólum og konfekti á sínum tíma.“ Hvað þurfa konur að hafa í huga þegar kemur að brúðarkjólnum? „Mikilvægast að öllu er að vera tímanlega. Það er eðli- legt að byrja brúðarkjólaferlið ári fyrir brúðkaup, það getur tekið allt að sex mánuði að fá kjólinn afhentan og svo þarf yfirleitt að gera minniháttar breytingar eins og að stytta kjólinn og fleira í þeim dúr. Þess vegna er mik- ilvægt að vera tímanlega til að forðast allt stress. Einnig er mikilvægt að koma í mátun og máta ólíka kjóla. Það er mjög algengt að skoðanir og plön um kjóla breytist eftir að búið er að máta ólíka kjóla.“ Þegar kemur að aldri brúðar segir Ásdís konur á öllum aldri vera að gifta sig í dag. Algengasti aldurinn sé þó án efa þrítugsaldurinn. Ólíkar konur velja sér ólíka kjóla Velja þær sér eins kjóla eða er munur á milli kynslóða? „Það er alltaf smá munur á íburði kjólanna eftir aldri en svo eru konur líka bara svo ólíkar týpur að það hefur kannski áhrif frekar en aldurinn.“ Ásdís er á því að konur ættu að fylgja hjarta sínu þegar kemur að því hvað þær gera við brúðarkjólinn eftir brúð- kaupið. „Fyrir margar konur er kjóllinn svo miklu meira en bara kjóll sem var farið í einu sinni. Hann hefur oftar en ekki mikið tilfinningalegt gildi þegar aðdragandinn að kaupunum er svona langur og þær búnar að vera með hann í huganum í marga mánuði fyrir stóra daginn. Þeim konum getur reynst erfitt að láta kjólinn frá sér og þá finnst mér mikilvægt að þær varðveiti hann. Þær konur sem tengja öðruvísi við kjólinn og vilja gefa honum fram- haldslíf ættu eindregið að koma kjólnum sínum áfram. Ég legg mikið tilfinningalegt gildi í kjólana og hef því ákveðið að geyma minn kjól áfram.“ Ásdís Gunnarsdóttir kjólameistari telur tilfinningalegt gildi brúðarkjóla mikið og ákvað því að geyma kjólinn sinn áfram. Hún aðstoðar konur við að upplifa drauminn á brúðardaginn í gegnum verslunina sína Loforð. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaði/Arnþór Birkisson Ásdís hefur óbilandi áhuga á brúðarkjólum. Brúðarkjóll með breiðum hlýrum sem liggja á öxlunum. Það fer vel um viðskiptavini Ásdísar í versluninni. Brúðarskórnir skipta miklu máli upp á heildarútlitið. Verslunin Loforð er staðsett í Hafnarfirði. Gull og gersemir í Loforði. Brúðarkjólar geta haft tilfinningalegt gildi Á sdís er ekki í nokkrum vafa þegar kemur að fallegustu brúði allra tíma. Þær eru reyndar tvær en þær giftu sig þannig að myndir af þeim úr brúðkaupinu lifa í hugum heimsbyggðarinnar enn í dag. „Það eru Grace Kelly og Audrey Hepburn. Þær giftu sig í fallegum kjólum og áttu dásamlegan brúðkaupsdag og brúðkaup sem eftir var tekið.“ Gekk lengi með hugmyndina um Loforð Ásdís stofnaði verslunina Loforð fyrir nokkru, þar sem hún býður upp á eigin kjóla en einnig kjóla frá erlendum tískuhúsum. „Ég lærði kjólasaum og útskrifaðist með sveinspróf 2009 en ég tók starfsnám mitt tengt brúðarkjólum hér heima á brúðarkjólaleigu en svo fór ég líka til New York 2008 og starfaði í nokkra mánuði sem nemi fyrir heims- þekktan brúðarkjólahönnuð í Soho en sú reynsla var al- gjörlega ómetanleg. Ég fór með lestinni í efnahverfið að sækja efni, fékk að grípa í saumavélarnar, handsauma perlur í kjóla sem kostuðu mörg hundruð þúsund en svo var ég líka mikið í því að sækja kaffi fyrir alla. Þessi reynsla gerði það að verkum að ég vissi að mig langaði að gera þetta í framtíðinni. Ég hef einnig starfað við förðun og saumaskap og vann lengi í Kjólum & konfekti. Það er einmitt vinkona mín sem á þá verslun. Ég lærði mikið af henni um rekstur og innkaup sem ég bý að í dag.“ Í Loforði er fjöldi erlendra brúðarkjólamerkja, skart- gripa og fylgihluta auk þess sem boðið er upp á breyt- ingar og sérsaum. Tækifæri til að nota brúðarkjólinn tvisvar Hvað er í tísku tengt brúðarkjólum í ár? „Brúðarkjólatískan er mjög fjölbreytt í ár. Hún er allt frá því að vera bóhem og rómantísk klassík yfir í mjög klassíska mínímalíska kjóla. Þægindi og ákveðinn léttleiki er þó áberandi í flestum kjólum, mattar pallíettur og leik- ur með mismunandi áferðir.“ Hvernig telur þú að fólk skipuleggi brúðkaupið á þessu ári? „Mér heyrist flestar sem eru að gifta sig frá og með júní vera nokkuð bjartsýnar og halda í vonina um að geta hald- ið brúðkaup á settum tíma. Þær sem voru fyrr hafa frest- 32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 er gjöf ástarinnar hafið D R A U M A B R Ú Ð K A U P S V E I S L U R V I Ð H A F I D B L A A . I S / B R U D K A U P A Ð E I N S 4 0 M Í N F R Á R E Y K J A V Í K V E I S L U R F Y R I R A L L T A Ð 1 0 0 G E S T I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.