Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 V ið vildum gera ævintýralegt vetrarbrúð- kaup með íslenskri sumarstemningu. Við giftum okkur reyndar ári áður nánast upp á dag í febrúar og héldum því í raun upp á eins árs brúðkaupsafmælið okkar. Það voru mjög persónulegar ástæður fyrir því að við létum pússa okkur saman með litlum fyrirvara í fyrra en planið var alltaf að halda stóra veislu. Við lofuðum henni innan árs og stóðum við það,“ segir Magnea. Hannaði kjólinn sinn sjálf Hvað getur þú sagt okkur um brúðarkjólinn? „Ég ákvað að hanna kjólinn minn sjálf eftir mikla leit að rétta kjólnum. Það var viss áhætta í öllum undirbúningnum sem fylgdi brúðkaupinu að bera ábyrgð á kjólnum og ég viðurkenni að það gat alveg verið stressandi á köflum en ég sé alls ekki eftir því og var mjög ánægð með útkomuna. Ég var með ákveðnar hugmyndir sem voru samt að þróast fram á síðasta dag en fékk ómetanlega aðstoð frá góðri vin- konu sem er klæðskeri við að útfæra þær, sníða og sauma. Mig langaði að hafa pilsið sítt og með slóða og ákvað því að hafa kjólinn tvískiptan þannig að ég gæti auðveldlega skipt í styttra pils þegar leið á kvöldið. Toppurinn var hnepptur í síða pilsið með fallegri tölu en svo batt ég styttra pilsið við toppinn til að fá aðeins afslappaðra útlit. Ég lagði áherslu á að nota fallegt gæðaefni í kjólinn og valdi hvítt silki í tveimur þykkt- um sem ég vann með. Ég vildi ekki blúndur eða neitt skraut í efninu heldur bara að leyfa sniðinu og smáat- riðunum að njóta sín. Ég valdi síðan skó og fylgihluti í ljós grá/bleikum tónum sem poppuðu heildarmyndina dálítið upp.“ Magnea bjó til stakan eyrnalokk og armband sem hún hengdi í eyrað öðrum megin og á höndina hinum megin sem braut upp á „symmetríuna“ í kjólnum. Vetrarbrúðkaup sem minnti á sumarið Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður og eigandi fatamerkisins MAGNEA, og Yngvi Eiríksson, verkfræðingur, trúlof- uðu sig í París haustið 2017. Þau héldu ævintýralega fallegt brúðkaup í febrúar á þessu ári þar sem þau lögðu áherslu á upplifun í mat og drykk. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Dóttir brúðhjónanna skemmti sér konunglega í brúðkaupinu. Hjónavígslan var haldin í Dómkirkjunni. Athöfnin var einföld, stílhrein og falleg í anda brúðhjónanna. Magnea ásamt bróður sínum. Já! Persónulegar athafnir fyrir alls konar fólk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.