Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 36
safnaði ég blómum í náttúrunni sem ég þurrkaði yfir
veturinn og notaði í allar skreytingar. Við fengum ís-
lensku ilmsturtuna frá Nordic Angan sem fyllti salinn
af notalegum skógarilmi. Ilmsturtan er mjög falleg og
bjó til skemmtilega upplifun fyrir gestina. Í stað þess
að hafa „photobooth“ gat fólk farið í sturtuna og fengið
mynd af sér í henni en við ákváðum að fara þá leið að
vera með ljósmyndara í veislunni sem tók lifandi og
skemmtilegar myndir allt kvöldið. Hann hefur ein-
stakt auga og náði að grípa stemmninguna í mynd-
unum. Þannig eigum við minningarnar ljóslifandi það
sem eftir er.“
Brúðhjónin buðu upp á fjölbreyttan mat og lögðu
mikið upp úr því að skapa
upplifun í kringum matinn. „Þannig voru smáréttir
bornir fram sem gestirnir deildu og svo vorum við með
hlaðborð þannig að fólk stóð upp reglulega, hreyfði sig
aðeins og hitti fleiri en sessunauta sína. Við röðuðum
salnum upp í langborð og reyndum að hafa auka pláss
við öll borðin og völdum síðan að sitja bara tvö við há-
borðið með lausa stóla við borðið svo að gestir gætu
heilsað upp á okkur líka. Það kom mjög vel út að mínu
mati. Veislustjórnin var í höndum góðra vina okkar
sem héldu uppi frábærri stemmningu. Í lokin var síðan
dansað með hljómsveitinni Björtum sveiflum fram á
nótt.“
Ítalskt góðgæti í eftirrétt
Magnea segir að fjölskyldan elski að ferðast saman.
„Til dæmis eyddum við fjölskyldan hluta af fæðinga-
rorlofinu okkar í fyrra saman á Sikiley á Ítalíu þar sem
við drukkum í okkur menningu, mat og upplifanir á
okkar forsendum. Brúðkaupsgestirnir okkar nutu
góðs af þeirri reynslu, þar sem við buðum upp á ítalskt
góðgæti í eftirrétt sem við sérpöntuðum frá Sikiley.“
Magnea segir að þegar hún hafi tekið að sér að ráð-
leggja konum með sérsaum fyrir brúðkaupið biðji hún
þær að hugsa um uppáhaldsflíkur sínar.
„Þó að brúðarkjóllinn sé flík sem á að standa upp úr
og þú notar jafnvel bara einu sinni mæli ég með því að
Hver einasti hlutur var listaverk í veislu þeirra Magneu og Yngva.
Lagt var upp með að veitingarnar myndu skapa upplifun. Ljósmynd/Sunday & White
Ilmsturta var í boði fyrir brúðkaupsgestina í veislunni.
Brúðhjónin hamingjusöm saman í ilmsturtunni.
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Úrval af gíturum og bössum
Fiðlur
Heyrnartól
Míkrafónar
í úrvali
Þráðlaus
míkrafónn
GÍTARINN
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S. 552 2125 • gitarinn@gitarinn.is • www.gitarinn.is
í úrvali
Brúðagjafir
Magnarar
Hljómborð
MEDELI MC37A
Trommusett
Söngkerfi
Dásamlegar veit-
ingar sem glöddu
bæði maga og
augu gesta.
Gestirnir gátu
spreyjað sig með
ilmi sem minnti á
íslenska sumarið.