Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.06.2020, Blaðsíða 39
Brúðhjónin tóku brúðarvalsinn að gömlum og góðum sið. FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 39 Frjals & otamin Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is ´ ´ Nýr ilmur út og hafa tjörnina á móti mér. Það var mjög há- tíðlegt. Svo er Hjörtur Magni svo skemmtilegur prestur að við völdum alveg rétt að mínu mati. Glersalurinn í Kópavogi er svo bjartur og fal- legur salur og stóra útisvæðið heillaði okkur mikið. Við buðum um 110 manns, en um 100 manns mættu, sem var bara stórkostlegt.“ Kjóllinn fékkst í Bournemouth Alexandra var ánægð með brúðarkjólinn. „Ég fann draumakjólinn minn. Ég fór í kjóla- mátun á nokkrum stöðum. Ég bauð mömmu, Söru mágkonu og Maríu vinkonu að koma til Bretlands með mér að velja kjólinn ásamt Sunnu sem var „au pair“ hjá okkur á þeim tíma. Eftir æðislegan dag duttum við inn í litla brúð- arkjólabúð í Bournemouth þar sem ég bjó og þar fann ég hann, síður, smá vintage-fílingur, með löngum slóða, opnu baki. Akkúrat það sem ég var að leita að. Ég fann mér líka flotta skó og slör og var mjög sátt við heildarútlitið.“ Þau voru með góðar veitingar og höfðu mikl- ar skoðanir á skreytingunum. „Maðurinn minn valdi borðaskreytingarnar og við settum saman okkar hugmyndir í gjafa- poka. Svo vorum við með blómaskreytt skilti, pabbi útbjó heimatilbúinn bakgrunn fyrir ljós- myndatöku og svo ljósmyndavegg með alls kon- ar myndum af okkur saman. Við vorum með skreyttar krukkur og luktir á sviðinu og á úti- svæðinu, sem settu sinn svip á salinn.“ Alexandra segir gott að byrja snemma að undirbúa brúðkaupið. Eyddu brúðkaupsnóttinni í sveitasælu „Undirbúningurinn er svo skemmtilegt ferli að ég myndi ekki tíma að bíða of lengi með hluti sem er alveg hægt að dúlla sér í snemma. Við bjuggum að vísu erlendis, svo að margt fór fram í gegnum tölvupóst og svo voru fjölskyldur okk- ar mjög hjálpsamar með allt. Ef það er eitt ráð sem ég ætti að gefa, þá er það að leyfa sér að nota pening í ljósmyndara og myndband af deg- inum. Þetta er of dýrmætt til að gleyma og ég veit ekki hversu oft ég er búin að skoða mynd- irnar frá Írisi og horfa á myndband af deginum okkar. Þetta eru svo góðar minningar og ekki síst fyrir stelpurnar okkar sem voru þriggja og fimm ára og vilja muna þennan dag með okkur.“ Alexandra segir að hún hafi alltaf séð fyrir sér augnablikið sem hún gekk niður altarið og sá tilvonandi eiginmann sinn standa þar. „Fyrir mér var það aðalmálið að við skyldum gifta okkur og fara hamingjusöm inn í framtíð- ina með stelpunum okkar tveimur. Þessi dagur var ekki síður merkilegur fyrir þær, en þær tala alltaf um brúðkaupsdaginn okkar og segja „Mamma, manstu þegar við vorum að giftast?“ Eftir veisluna keyrðum við upp í bústað foreldra minna og vorum þar um nóttina í algjörri sveita- sælu. Við erum bæði mikið fjölskyldufólk og mömmur okkar eru æskuvinkonur, svo að þau þekkjast öll mjög vel. Við nýttum því tækifærið eftir brúðkaupið og buðum báðum fjölskyldum að koma til okkar upp í bústað, grilla saman um kvöldið og opna gjafirnar,“ segir hún. Brúðguminn bakaði þessar fallegu kökur. Gestirnir tóku fallegar ljósmyndir úr veislunni sem þeir merktu #kristal19 Góðar hugmyndir eru gulls ígildi. Brúðhjónin skemmtu sér konunglega í eigin brúðkaupi. Dóttir brúðhjónanna að teygja sig í nammi í veislunni. Kleinuhringirnir voru vinsælir í veislunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.