Morgunblaðið - 19.06.2020, Page 42
Björg ákvað að nota blautan eyeliner frá YSL í
brúnum lit til að ramma inn augnsvæðið og fá skarp-
ari lögun á förðunina og maskara sem þykkir, lengir
og nærir augnhárin yfir daginn.
„Þar sem ég vil leggja áherslu á húðina og augun í
brúðarförðunum þá ákvað að ég að hafa augabrúnir
og varir mjög náttúrulegar. Ég notaði litað auga-
brúnagel frá YSL til að ýfa og þykkja brúnirnar og
frekar hlutlausan, bjartan varablýant og varalit.
Volupté Rock’n Shine varalitur nr.14 gefur meiri
ljóma en lit svo mér finnst hann algjörlega toppa
förðunina.
Lokaskrefið hjá mér er All Nighter Setting
Sprey frá Urban Decay, það er leynivopnið til að
halda förðuninni allan daginn. Það gefur 16 klst
endingu, er vatnshelt og algjörlega þyngdarlaust á
húðinni.“
B
jörg segir að létt og fersk förðun þar sem áhersla er á
ljómandi húð, skarpa augnförðun og ljósar varir eigi
upp á pallborðið núna. Hún segir að við þessa förðun
megi hárið vera svolítið frjálst, annaðhvort með léttum
liðum eða „lazy bun“.
„Fyrir ljómandi, jafna og ferska húð finnst mér lykilatriði að nota
góðar húðvörur. Uppáhaldsvaran mín er Top Secrets-andlitsvatn
sem gefur húðinni raka allan daginn
og dregur saman opnar húðholur og
fínar línur. Fyrir næringu, ljóma og
jafnan húðlit notaði ég nýja YSL Pure
Shots Light up-serumið sem inniheldur
C-vítamín og Aquasource-augnkremið
frá Biotherm sem dregur úr þrota á
augnsvæðinu og gefur raka. Til að jafna
yfirborð húðar enn frekar notaði ég svo
Top Secrets Pore Refiner-farðagrunninn
frá YSL sem dregur einnig úr olíu-
myndun yfir daginn,“ segir Björg.
Til að leyfa húðinni að njóta sín sem
mest notaði Björg léttan, rakagefandi
ljómafarða og hyljara með sömu eigin-
leikum. „YSL Touche Éclat All-in-One
glow farðinn og Touche Éclat-hyljarinn
eru mínar „go to“-vörur eins og er þar
sem báðar hafa rakagefandi og róandi eig-
inleika sem sjá til þess að förðunin haldist
lýtalaus yfir daginn. Fyrir hreyfingu og
ferskleika notaði ég svo Threesome-
skyggingarpallettu frá Urban Decay en
hún inniheldur kinnalit, highlighter og
bronzer.
Mér finnst bleikir, sanseraðir tónar svo
rómantískir og klæðilegir á brúðkaupsdag-
inn og ákvað því að nota fimm skugga pal-
lettu frá Lancôme í lit nr. 09. Lykilatriði
til að láta augnförðunina endast er að nota
augnskuggagrunn, ég notaði Primer
Potion frá Urban Decay sem er vatns-
heldur og gefur allt að 24 klst. endingu.“
42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020
Björg Alfreðsdóttir, alþjóðlegur förðunar-
fræðingur YSL á Íslandi, segir að áhrifa
gæti enn frá Meghan Markle þegar kemur
að brúðarförðun. Hún farðaði Söndru
Gunnarsdóttur með sérstakri brúðarförðun.
Marta María | mm@mbl.is
Blautur eye-liner frá
YSL gerir mikið fyrir
heildarmyndina.
Það er nauð-
synlegt að
nota varalita-
blýant. Þessi
er frá YSL.
Meghan Markle-
áhrif í brúðarförðun
Þessi farði
frá YSL end-
ist lengi, það
skiptir máli.
Björg Alfreðsdóttir
farðaði Söndru
Gunnarsdóttur í
anda Meghan
Markle.
Gull-
penninn
er mesta
þarfa-
þing.
Auga-
brúnamask-
arinn frá
YSL er með-
færilegur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Augnskugga-
pallettan frá
Lancôme er
mjög brúð-
kaupsvæn.
Áhrif Meghan
Markle eru sýni-
leg í þessari
brúðarförðun.
Ljósar varir og
falleg eye-liner-
lína setja svip
sinn á förðunina.