Morgunblaðið - 19.06.2020, Qupperneq 43
Farðagrunnur
Til að tryggja hámarksendingu förðunar-
innar er gott að byrja á sértilgerðum farða-
grunni. All Nighter Primer frá Urban Decay
eykur endingarmátt farðans um allt að átta
klukkustundir. Formúlan er létt og sílikon-
laus og sléttir ásýnd húðarinnar með því að
fylla upp í fínar línur og svitaholur. Við þurf-
um ekki lengur steinsteypu til þess.
Farði og hyljari
Farði og hyljari spila
stórt hlutverk þegar förðun
á að endast í lengri tíma.
Hinsvegar eru nokkur lög af
möttum, fullþekjandi og
langvarandi farða ekki að
ýta undir náttúrulega fegurð
hjá neinum. Slíkar formúlur
gera þó kraftaverk, sé hóflegt
magn notað og vel af raka-
kremi borið á húðina á undan.
Til eru farðar sem eru bæði
langvarandi, vel þekjandi en
veita húðinni náttúrulega
ásýnd með nærandi og raka-
gefandi innihaldsefnum. Pro
Longwear Nourishing Water-
proof Foundation frá MAC er
frábær formúla til að prófa
þegar þú vilt góða þekju án
þess að fletja húðina út. Þegar
kemur að hyljara er óhætt að
segja að hinn nýi Forever Skin Correct Conceal-
er frá Dior haggist ekki á húðinni, enda ætlað að
endast í allt að 24 klukkustundir. Þetta er raka-
gefandi formúla sem þornar þó í mattara lagi og
má nota undir augu, til að fela roða, yfir bólur
eða einfaldlega til að fá lýtalausa ásýnd.
Púður
Notaðu púður sparlega yfir þau svæði sem
þú telur að framkalli olíumyndun yfir daginn.
Nýverið kom á markað Waterproof Setting
Powder frá GOSH en þetta er fislétt púður sem
á ótrúlegan hátt festir farðann algjörlega í
sessi, gerir hann vatnsheldan og varnar því að
hann renni til.
Kinnalitur og sólarpúður
Líklega eru það kinnalitur og sólarpúður sem gjarnan
endist skemur en annað í förðuninni. Það er þó alltaf að
aukast úrvalið af langvarandi formúlum í þeim efnum en
Stay Naked Threesome frá Urban Decay er ný vara.
Þessi þrenna af sólarpúðri, ljómapúðri og kinnalit er
hentug í öll snyrtiveski og endist á húðinni í hvorki meira
né minna en 14 klukkustundir. Púðurformúlurnar eru
mjúkar og auðvelt að blanda þeim á húðinni. Stay Naked
Threesome kemur í þremur litasamsetningum.
Augnförðun
Kremaugnskuggar sem endast lengi eru okkar bestu
vinir þegar planið er að sjá til hvert kvöldið leiðir okkur.
Long-Wear Cream Shadow Stick frá Bobbi
Brown er skotheld formúla og litatónarnir
eru klassískir og fara öllum vel. Til að full-
komna augnförðunina eru umhverfisvænu
Woody Eye Liner-blýantarnir frá GOSH
tilvaldir en þeir koma í sex litatónum og
haldast á augunum allan daginn.
Varir
Svo varaliturinn endist lengur er
best að byrja á að móta varirnar með
langvarandi varalitablýanti. Það er
ekkert því til fyrirstöðu að þekja varirnar alveg með
varalitablýantinum og nota hann þannig sem varalit,
jafnvel setja smá varasalva eða gloss yfir. LipLiner
InkDuo frá Shiseido eru silkimjúkir og langvarandi varalita-
blýantar sem auðvelt er að móta varirnar með en hinu megin
er svo glær formúla til að mýkja og slétta varirnar. BarePro
Longwear Lipstick frá BareMinerals er einnig tilvalinn að
nota þegar þú vilt varalit sem endist í gegnum súrt og sætt.
Formúlan er sömuleiðis hlaðin nærandi innihaldsefnum.
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 43
Íslensk hönnun
fylgir þér inn í framtíðina
Fullkomin gjöf fyrir fagurkerann - www.heklaislandi.is
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
J S
WA
TCH
CO . REYK JAVK
Urban
Decay Stay
Naked
Threesome
(Rise),
6.399 kr.
Óhætt er að segja að brúðkaupsdagurinn
sé gjarnan tilfinningaríkur, bæði hjá brúð-
hjónum og gestum. Það er gott að leyfa til-
finningunum að flæða og enn betra að vita
til þess að förðunin mun samt haldast á
sínum stað. Tilfinningaheldar snyrtivörur
eru því tilvaldar á stóra deginum.
Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com
Shiseido
LipLiner
InkDuo,
4.199 kr.
Förðunarvörur
sem endast
lengi eru alltaf
góður kostur á
tilfinningaríkum
viðburðum.
Bobbi
Brown
Long-Wear
Cream
Shadow
Stick,
6.670 kr.
BareMinerals
BarePro
Longwear
Lipstick,
4.699 kr.
MAC Pro
Longwear
Nourishing
Waterproof
Foundation,
6.290 kr.
Tilfinninga-
heldar
snyrtivörur
Dior Forever Skin
Correct Concealer,
6.499 kr.
GOSH
Waterproof
Setting
Powder,
1.499 kr.
Urban Decay Allt
Nighter Face
Primer, 5.999 kr.
GOSH
Woody Eye
Liner,
1.299 kr.
Skjáskot/Instagram.