Morgunblaðið - 19.06.2020, Síða 43

Morgunblaðið - 19.06.2020, Síða 43
Farðagrunnur Til að tryggja hámarksendingu förðunar- innar er gott að byrja á sértilgerðum farða- grunni. All Nighter Primer frá Urban Decay eykur endingarmátt farðans um allt að átta klukkustundir. Formúlan er létt og sílikon- laus og sléttir ásýnd húðarinnar með því að fylla upp í fínar línur og svitaholur. Við þurf- um ekki lengur steinsteypu til þess. Farði og hyljari Farði og hyljari spila stórt hlutverk þegar förðun á að endast í lengri tíma. Hinsvegar eru nokkur lög af möttum, fullþekjandi og langvarandi farða ekki að ýta undir náttúrulega fegurð hjá neinum. Slíkar formúlur gera þó kraftaverk, sé hóflegt magn notað og vel af raka- kremi borið á húðina á undan. Til eru farðar sem eru bæði langvarandi, vel þekjandi en veita húðinni náttúrulega ásýnd með nærandi og raka- gefandi innihaldsefnum. Pro Longwear Nourishing Water- proof Foundation frá MAC er frábær formúla til að prófa þegar þú vilt góða þekju án þess að fletja húðina út. Þegar kemur að hyljara er óhætt að segja að hinn nýi Forever Skin Correct Conceal- er frá Dior haggist ekki á húðinni, enda ætlað að endast í allt að 24 klukkustundir. Þetta er raka- gefandi formúla sem þornar þó í mattara lagi og má nota undir augu, til að fela roða, yfir bólur eða einfaldlega til að fá lýtalausa ásýnd. Púður Notaðu púður sparlega yfir þau svæði sem þú telur að framkalli olíumyndun yfir daginn. Nýverið kom á markað Waterproof Setting Powder frá GOSH en þetta er fislétt púður sem á ótrúlegan hátt festir farðann algjörlega í sessi, gerir hann vatnsheldan og varnar því að hann renni til. Kinnalitur og sólarpúður Líklega eru það kinnalitur og sólarpúður sem gjarnan endist skemur en annað í förðuninni. Það er þó alltaf að aukast úrvalið af langvarandi formúlum í þeim efnum en Stay Naked Threesome frá Urban Decay er ný vara. Þessi þrenna af sólarpúðri, ljómapúðri og kinnalit er hentug í öll snyrtiveski og endist á húðinni í hvorki meira né minna en 14 klukkustundir. Púðurformúlurnar eru mjúkar og auðvelt að blanda þeim á húðinni. Stay Naked Threesome kemur í þremur litasamsetningum. Augnförðun Kremaugnskuggar sem endast lengi eru okkar bestu vinir þegar planið er að sjá til hvert kvöldið leiðir okkur. Long-Wear Cream Shadow Stick frá Bobbi Brown er skotheld formúla og litatónarnir eru klassískir og fara öllum vel. Til að full- komna augnförðunina eru umhverfisvænu Woody Eye Liner-blýantarnir frá GOSH tilvaldir en þeir koma í sex litatónum og haldast á augunum allan daginn. Varir Svo varaliturinn endist lengur er best að byrja á að móta varirnar með langvarandi varalitablýanti. Það er ekkert því til fyrirstöðu að þekja varirnar alveg með varalitablýantinum og nota hann þannig sem varalit, jafnvel setja smá varasalva eða gloss yfir. LipLiner InkDuo frá Shiseido eru silkimjúkir og langvarandi varalita- blýantar sem auðvelt er að móta varirnar með en hinu megin er svo glær formúla til að mýkja og slétta varirnar. BarePro Longwear Lipstick frá BareMinerals er einnig tilvalinn að nota þegar þú vilt varalit sem endist í gegnum súrt og sætt. Formúlan er sömuleiðis hlaðin nærandi innihaldsefnum. FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 43 Íslensk hönnun fylgir þér inn í framtíðina Fullkomin gjöf fyrir fagurkerann - www.heklaislandi.is www.gilbert.is Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum við okkur í úrsmíði, hönnun og framleiðslu úra J S WA TCH CO . REYK JAVK Urban Decay Stay Naked Threesome (Rise), 6.399 kr. Óhætt er að segja að brúðkaupsdagurinn sé gjarnan tilfinningaríkur, bæði hjá brúð- hjónum og gestum. Það er gott að leyfa til- finningunum að flæða og enn betra að vita til þess að förðunin mun samt haldast á sínum stað. Tilfinningaheldar snyrtivörur eru því tilvaldar á stóra deginum. Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com Shiseido LipLiner InkDuo, 4.199 kr. Förðunarvörur sem endast lengi eru alltaf góður kostur á tilfinningaríkum viðburðum. Bobbi Brown Long-Wear Cream Shadow Stick, 6.670 kr. BareMinerals BarePro Longwear Lipstick, 4.699 kr. MAC Pro Longwear Nourishing Waterproof Foundation, 6.290 kr. Tilfinninga- heldar snyrtivörur Dior Forever Skin Correct Concealer, 6.499 kr. GOSH Waterproof Setting Powder, 1.499 kr. Urban Decay Allt Nighter Face Primer, 5.999 kr. GOSH Woody Eye Liner, 1.299 kr. Skjáskot/Instagram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.