Morgunblaðið - 17.07.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
AYJA - K129
3ja sæta, 2ja sæta og stóll.
Margir litir af áklæði eða leðri.
Komið og skoðið úrvalið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Unnið er nú að slætti í borgarlandinu en þó eru víða grænir blettir sem
hafa séð betri tíma. Hlýtt veðurfar og næg væta hafa skapað góðan vaxt-
argrundvöll fyrir gróðurinn. Hafa vegfarendur orðið varir við að tún og
umferðareyjur í Reykjavík skarta nú fögrum blómum eða illgresi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Illgresi setur svip á borgarlandið
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umboðsmaður Alþingis hefur óskað
eftir því við forsætisráðherra að við
þá endurskoðun á lögum um jafna
stöðu karla og kvenna sem nú stend-
ur yfir verði hugað að gagnrýni og
tilmælum umboðsmanns vegna úr-
skurða kærunefndar jafnréttimála.
Fram kemur í bréfi umboðsmanns til
ráðherra að ekki verði annað séð en
nefndin viðhafi að mestu sömu að-
ferðir og mat og gagnrýni setts um-
boðsmanns beindist að í áliti frá
árinu 2011.
Málið frá 2011 snerist um skipan í
embætti skrifstofustjóra á skrifstofu
stjórnsýslu og samfélagsþróunar í
forsætisráðuneytinu. Fann settur
umboðsmaður að því að sá sem fékk
starfið hefði ekki talist aðili að mál-
inu. Nefndinni bæri að gæta réttar-
öryggisreglna stjórnsýslulaga gagn-
vart þeim einstaklingi við meðferð
kærumálsins.
Þá gerði settur umboðsmaður at-
hugasemdir við mat kærunefndar-
innar á umsækjendum. Taldi hann
það ekki falla undir starfssvið nefnd-
arinnar að endurskoða mat ráðu-
neytisins á því hvaða umsækjandi
félli best að sjónarmiðum er réðu úr-
slitum við ráðningu í starfið, nema
bersýnilega hefði mátt draga þá
ályktun af gögnum málsins að mat
ráðuneytisins og ályktanir þess
hefðu verið óforsvaranleg og þá í
andstöðu við réttmætisregluna.
Beindi settur umboðsmaður tilmæl-
um um bæði þessi atriði til kæru-
nefndar og hvatti hana til að leggja
þau framvegis til grundvallar.
Eins og fyrr segir telur Tryggvi
Gunnarsson, umboðsmaður Alþing-
is, að ekki hafi verið farið eftir þessu
áliti og tilmælum setts umboðs-
manns.
Erla S. Árnadóttir hæstaréttar-
lögmaður, sem var formaður kæru-
nefndarinnar á árunum 2011 til 2018,
er í fríi og sagðist ekki hafa haft tök á
að kynna sér erindi umboðsmanns.
Ekki náðist í Arnald Hjartarson hér-
aðsdómara sem verið hefur formað-
ur frá 2018.
Breytt vinnubrögð
Andri Árnason hæstaréttarlög-
maður, sem var formaður kæru-
nefndar á árunum 2000 til 2011 en
átti ekki aðild að umræddum úr-
skurði, taldi að slíkar athugasemdir
hefðu ekki verið gerðar í sinni for-
mannstíð. „Þegar ég var formaður
lögðum við mesta áherslu á að fara
yfir rökstuðning vinnuveitandans.
Settum okkur ekki í þau spor að
meta hver hefði verið hæfastur held-
ur fórum yfir þau rök sem vinnuveit-
andinn tefldi fram og mátum hvort
þau stæðust almenn viðmið,“ segir
Andri og getur þess að ef rökin stóð-
ust almenn viðmið hafi ekki verið
gerðar athugasemdir.
Spurður hvort hann teldi að breyt-
ing hefði orðið á vinnubrögðum eftir
að hann hætti sagðist Andri telja lík-
legt að svo hefði verið, meira hefði
verið farið út í samanburð á umsækj-
endum.
Ekki farið að áliti og tilmælum
Umboðsmaður Alþingis leggur til við forsætisráðherra að hugað verði að gagnrýni og tilmælum
vegna úrskurða kærunefndar jafnréttismála Fyrrverandi formaður telur vinnubrögð hafa breyst
Tryggvi
Gunnarsson
Erla S.
Árnadóttir
Arnaldur
Hjartarson
Andri
Árnason
Samkeppniseftirlitið hefur með
bráðabirgðaákvörðun gert Pennan-
um ehf. að taka bækur Uglu útgáfu
ehf. aftur í sölu í verslunum sínum.
Penninn hafði tekið bækur Uglu
sem einnig voru gefnar út í hljóðbóka-
formi hjá Storytel úr sölu og varð það
til þess að eigandi Uglu leitaði til
Samkeppniseftirlitsins.
Í fréttatilkynningu frá Samkeppn-
iseftirlitinu vegna ákvörðunarinnar
kemur fram að stofnunin telji „senni-
legt“ að með því að taka bækur Uglu
úr sölu og synja útgáfunni um við-
skipti hafi Penninn misnotað mark-
aðsráðandi stöðu sína á smásölu-
markaði með bækur.
Talið er að nægilega hafi verið leitt
í ljós að útgáfa Uglu á bókum í hljóð-
bókarformi hafi
verið veigamikil
ástæða þeirrar
ákvörðunar Penn-
ans að neita Uglu
um viðskipti.
Þeim fyrirmæl-
um var einnig
beint til Pennans
að ákvarðanir um
að synja bóka-
útgefendum um
viðskipti skyldu vera byggðar á mál-
efnalegum forsendum.
Viðskipti í eðlilegt horf
„Ég er hæstánægður með þetta og
vona að málið sé leyst með þessu,“
sagði Jakob F. Ásgeirsson, stofnandi
og eigandi Uglu útgáfu, þegar
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins var
gerð opinber. Hann kveðst vona að nú
fari samskipti og viðskipti Pennans og
Uglu aftur í eðlilegt horf eins og áður.
Þá hafi hann einungis átt góð sam-
skipti við Pennann áður en þetta mál
kom upp.
Jakob telur að málið sýni nauðsyn
öflugs eftirlits á fákeppnismarkaði og
ákvörðunin sýni að Samkeppnis-
eftirlitið hafi haft skilning á því hvaða
þýðingu ákvörðun Pennans hafði fyr-
ir lítið fyrirtæki eins og Uglu.
„Enda kemur það fram í úrskurð-
inum að það er nánast dauðadómur
fyrir bókaútgáfu ef hún getur ekki
selt bækur sínar í bókabúðum Penn-
ans árið um kring,“ bætir hann við.
Bækur Uglu fari aftur í sölu
Sennilegt að Penninn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu
sína Eigandi Uglu er „hæstánægður“ með ákvörðun SE
Jakob F.
Ásgeirsson
Áslaug Arna Sig-
urbjörnsdóttir
dómsmálaráð-
herra hefur til-
kynnt að fangels-
inu á Akureyri
verði ekki lokað
um næstu mán-
aðamót. Kom
þetta fram í
færslu ráð-
herrans á Face-
book í gær. Þar segir að ráðherra
hafi óskað eftir því að lagt yrði mat
á hugsanlegan viðbótarkostnað lög-
reglunnar á Norðurlandi eystra ef
af lokuninni yrði. Beðið er eftir
matinu og hefur ákvörðun um lok-
un því verið frestað til 15. sept-
ember.
Lokun fangelsisins
á Akureyri frestað
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Klukkan 14:39 í gær mældist
skjálfti af stærðinni 3,0 við mynni
Eyjafjarðar og fannst hann á
Ólafsfirði. Um er að ræða stærsta
skjálfta sem mælst hefur frá 8. júlí
er mældist jarðskjálfti að stærð 4,2.
Í athugasemdum jarðvísinda-
manns á vef Veðurstofunnar segir
að frá því að jarðskjálftahrinan við
mynni Eyjafjarðar hófst 19. júní
hafi sjálfvirkt jarðskjálftakerfi
Veðurstofunnar staðsett yfir 13.000
skjálfta. Þrír skjálftar yfir 5,0 að
stærð hafa mælst í hrinunni.
Enn skjálftar við
mynni Eyjafjarðar