Morgunblaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ekki tilefni til að gera mikið úr veikingu krónunnar undanfarið. Það sé engin sérstök ástæða fyrir henni enda hafi hún komið fram hægt og bítandi í nær engri veltu á gjaldeyrismarkaði. Gengið gæti hæglega styrkst aftur eftir sumar- leyfin. „Nú er júlí og lítil hreyfing á gjaldeyrismarkaði. Veikingin nú í júlí hefur komið fram í mjög litlum viðskiptum og ég myndi ekki lesa mikið út úr því,“ segir Ásgeir. Gengisstyrkingin eftir að samkomubanni var aflétt hefur gengið til baka. Gengið er því á svip- uðum slóðum og í samkomubanninu. Samtök ferðaþjónustunnar telja ákjósanlegt að gengið verði á þessu bili. Þannig megi bjarga störfum. Seðlabankastjóri hefur sagt að bankinn muni grípa inn í gjaldeyris- markað til að tryggja stöðugleika. Spurður hvort það verði gert að þessu sinni segir Ásgeir bankann hafa tryggt stöðugleika á gjaldeyris- markaði og vega á móti öfgahreyf- ingum en sé ekki beinlínis að snúa við gengisþróuninni. „Við höfum far- ið inn á markaðinn þegar stórar fjár- hæðir hafa verið að fara í gegnum hann til þess að koma í veg fyrir að gengið hnikist mikið til. Þjóðin þarf því ekki að óttast kollsteypu í geng- inu,“ segir Ásgeir. Til þess hafi bankinn um 900 millj- arða í gjaldeyrisvaraforða. Gæti styrkst með innflæðinu Spurður hvort fjölgun erlendra ferðamanna og tilheyrandi innflæði gjaldeyris muni hugsanlega toga gengið í hina áttina, til styrkingar, segir Ásgeir „að slíkt geti vel gerst“. Hann sjái ekki betur út frá tölum um greiðslujöfnuð en að utanríkis- viðskipti séu í góðu jafnvægi þrátt fyrir nær enga erlenda ferðaþjón- ustu. Þá bendir Ásgeir á að gengi krónunnar hafi jafnan styrkst við út- borgun launa um mánaðamót. Spurður hvort einhver hætta sé á því að gengisveiking síðustu vikna muni leiða til hærri verðbólgu, svo vinda þurfi of- an af vaxtalækk- unum, segir Ás- geir ekkert benda til þess. Verð- bólgan hafi verið fyrir neðan mark- mið bankans þeg- ar gengið veiktist í mars og hún hafi því verið nákvæmlega 2,5% á fyrra helmingi ársins líkt og markmið bankans segi til um. Sú staða standi óhögguð. Meðal annars muni sam- dráttur í hagkerfinu í haust halda aftur af verðhækkunum. Leiðir ekki til veikingar Meginvextir Seðlabankans hafa lækkað úr 4,5% í maí 2019 í 1% sem er sögulegt lágmark. Spurður hvort vaxtalækkanir hafi óbeint átt þátt í veikingu krónunnar, með því að leiða til fjárflæðis úr landi, segir Ásgeir ekkert benda til að sú hafi verið raunin. „Við höfum ekki séð fjármagns- flótta úr landi. Það hefur meira að segja ekki verið nettóútflæði hjá er- lendum fjárfestum undanfarið. Er- lendir fjárfestar keyptu í Heimavöll- um í mars og hafa fjárfest bæði í skuldabréfum og hlutabréfum á síð- ustu mánuðum. Það sýnir styrk krónunnar að við þurfum ekki lengur mikinn vaxtamun til að halda henni stöðugri. Við erum á allt öðrum stað en áður hvað varðar jafnvægi í utan- ríkisviðskiptum og traust á kerfinu,“ segir Ásgeir um stöðuna. Til upprifjunar sóttu erlendir fjár- festar í vaxtamun milli Íslands og annarra ríkja á árunum fyrir efna- hagshrunið og fylgdi því innstreymi gjaldeyris og styrking krónu. Með vaxtalækkunum bankans undanfarið hefur vaxtamunur minnkað. Batamerki í hagkerfinu Ferðamálastofa áætlar að 63 þús. erlendir ferðamenn komi til landsins í ágúst. Það er umfram fyrri spá. Spurður hvort ferðaþjónustan sé að braggast betur en útlit var fyrir segir Ásgeir að almennt virðist hag- kerfið vera að taka vel við sér. „Ferðaþjónustan virðist ætla að koma mun hraðar til baka en við þorðum að vona. En aðeins sá hluti af henni sem er úti á landi,“ segir hann. Önnur dæmi um batamerki séu aukning í kortaveltu, mikil neysla innlendra ferðamanna og „mjög já- kvæð merki á fasteignamarkaði“ eft- ir vaxtalækkanir. Þá hafi bjartsýni um betri tíð aukist. Um það vitni mælingar á væntingum neytenda. Mögulega minni samdráttur En skyldi samdrátturinn í ár verða minni en óttast var í mars, þegar samkomubannið var sett á? „Mögulega erum við að horfa fram á það. Óvissan er hins vegar mikil. Ég hef áhyggjur af slæmum fréttum frá Bandaríkjunum,“ segir Ásgeir og vísar til fjölda kórónuveirusmita. Hvað snertir sjávarútveginn hafi verð á sumum afurðum hækkað en aðrir markaðir gefið eftir. „Heilt yfir met ég stöðu sjávarútvegsins mjög góða. Hann er líka að fá lægra olíu- verð og lægra gengi. Mér heyrist hljóðið í sjávarútveginum vera til- tölulega gott,“ segir Ásgeir. Ekkert sem bendir til verðbólguskots  Seðlabankastjóri segir verðbólguna ekki munu fara af stað þótt gengi krónunnar hafi gefið eftir  Vaxtalækkanir hafi ekki leitt til útflæðis fjármagns  Efnahagsbatinn mögulega umfram spár Ásgeir Jónsson 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Ford F-350 XLT Litur: Silver/ Grár að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque 4X4 10-speed Automatic transmission 6-manna Heithúðaður pallur 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Svartur/ Svartur að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Summit white/ svartur að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. VERÐ 11.290.000 m.vsk VERÐ 12.990.000 m.vsk VERÐ 12.990.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ ATH. ekki „verð frá“ ATH. ekki „verð frá“ BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 sumarútsala al lt a ð 4 0 % a f s l á t t u r a f ú t s ö l u v ö r u m Shea flip tungusófi með færanlegri tungueiningu / Stærð 233x162 / Verð kr. 176.000 útsöluverð kr. 132.000 -25% STUTT ● Tíu manns, bæði stjórnendur og al- mennir starfsmenn, þar með talinn forstjóri félagsins Sæmundur Sæ- mundsson, hafa látið af störfum hjá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fé- laginu. Þar segir einnig að hluti þeirra stjórnenda sem áður mynduðu fram- kvæmdastjórn félagsins verði áfram í stjórnendahópi Borgunar. Ríflega 130 manns starfa hjá fyrir- tækinu eftir breytingarnar. Í tilkynningunni segir einnig að fyrirtækið, sem nú er í eigu alþjóðlega fyrirtækisins Salt Pay Co Ltd., hyggist ráða 60 nýja starfsmenn á næstu sex mánuðum hér á landi. Stór hluti nýráðninganna verður samkvæmt til- kynningunni úr hópi nýútskrifaðra há- skólanema. Þá segir að Salt Pay Co Ltd. muni leggja umtalsverða fjármuni í upp- byggingu félagsins á næstunni en fé- lagið tapaði tæpum 900 mkr. á síð- asta ári og rúmum milljarði árið á undan. „Ráðning stjórnar fyrirtækisins á Eduardo Pontes og Marcos Nunes, sem eru nýir forstjórar Borgunar, er upphafið á endurskipulagningu félags- ins.“ Tíu hættir hjá Borgun og 60 verða ráðnir 17. júlí 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 139.91 Sterlingspund 176.7 Kanadadalur 103.05 Dönsk króna 21.488 Norsk króna 15.003 Sænsk króna 15.454 Svissn. franki 148.78 Japanskt jen 1.3089 SDR 194.5 Evra 160.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.223 Hrávöruverð Gull 1809.3 ($/únsa) Ál 1640.0 ($/tonn) LME Hráolía 43.07 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.