Morgunblaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 14
FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Makrílvertíðin hófst fyrr íár en undanfarin ár.Vertíðin hefur fariðfremur hægt af stað og virðist sem makríllinn sé að mjög tak- mörkuðu leyti genginn inn í íslenska lögsögu, samkvæmt því sem fram kom á heimasíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað (svn.is) í gær. Þar var rifjað upp að veiðarnar hefðu einnig farið hægt af stað í fyrra. Í gær var bræla á miðunum sunnan við landið en horfur á betra veðri á morgun. Fyrsta löndun 12. júní Kap VE 4 hóf makrílveiðarnar á þessu ári og landaði fyrsta farminum 12. júní hjá Vinnslustöðinni í Vest- mannaeyjum (VSV) sem gerir skipið út. Sindri Viðarsson, sviðsstjóri upp- sjávarsviðs VSV, segir að Huginn VE 55 hafi einnig byrjað veiðarnar snemma og rétt á eftir Kap. Svo bættist Ísleifur VE 63 við þannig að þrjú skip VSV eru á makrílveiðum. VSV hafði tekið við 8.000 tonnum af makríl til vinnslu það sem af var ver- tíðinni í gær. Þá var verið að vinna makríl hjá VSV og átti að klára það í nótt. Aflinn er bæði heilfrystur og hausskorinn og frystur. Veiðin hefur verið gloppótt þennan rúma fyrsta mánuð, að sögn Sindra. Svolítið hefur verið um síld í aflanum í sumum túrum. Síldin fer í bræðslu enda viðkvæm á þessum árs- tíma. „Makríllinn hefur verið stór og vænn. Meðalvigtin er hærri nú en við sáum á sama tíma í fyrra,“ sagði Sindri. Meðalþyngdin var um 500 grömm í gær en þegar vertíðin byrj- aði var hún 460-470 grömm. Undanfarnir dagar hafa mikið farið í leit og skipin verið mjög dreifð, að sögn Sindra. Þau hafa verið austur um, í Breiðamerkurdýpi, Stokknes- grunni, Lónsdýpi og að Vestmanna- eyjum og svo suður úr. Mest hefur veiðst sunnan við Eyjar. Sindri segir að markaðurinn fari rólega af stað. Fyrsti makríllinn fer mikið til Afríkulanda eins og Egypta- lands, Gana og Nígeríu. Einnig til Austur-Evrópu eins og t.d. Georgíu og Aserbaídjan. Samvinna um veiðarnar Skip Síldarvinnslunnar (SVN) hafa haft samvinnu um veiðarnar. Þau sem taka þátt í því eru Beitir NK, Börkur NK, Bjarni Ólafsson AK og Margrét EA. Afla er dælt um borð í eitt skipanna, sem flytur hann í land. Þannig verða minni frátafir frá veið- um og skipin þurfa ekki öll að sigla langa leið með lítinn afla. SVN gerir ráð fyrir að þessi háttur verði hafður á meðan veiðin er treg. Börkur kom til Neskaupstaðar í fyrradag með um 800 tonn og var ein- ungis um helmingur aflans makríll. „Alls hefur tæplega 5.000 tonnum af makríl verið landað í Neskaupstað til þessa á vertíðinni og auk þess hafa tæplega 1.800 tonn af síld borist á land,“ segir í frétt SVN. Fínasti fiskur Fyrsta makríllöndun hjá Brimi hf. á þessari vertíð var 18. júní. Ingimundur Ingimundarson, út- gerðarstjóri uppsjávarskipa Brims hf., sagði í gær að Víkingur AK 100 væri að landa á Vopnafirði og Venus NS 150 á leið í land enda ekkert næði til veiða á miðunum. Heildaraflinn af makríl hjá Brimi hf. var þá orðinn rúmlega 5.000 tonn á vertíðinni. „Þetta er fínasti fiskur, kannski helst að það vanti meira smátt í hann,“ sagði Ingimundur. Makrílvertíðin hefur farið rólega af stað 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Hinn al-mennidómstóll Evrópusam- bandsins dæmdi í vikunni gegn framkvæmda- stjórn sambandsins og með Apple þegar hann komst að þeirri niðurstöðu að fyrir- tækinu bæri ekki að greiða írskum stjórnvöldum um 14,3 milljarða evra í van- goldna skatta. Fram- kvæmdastjórn sambandsins hefur nú tvær vikur til þess að áfrýja dómnum til Evr- ópudómstólsins. Almennt er litið á úrskurð- inn sem áfall fyrir fram- kvæmdastjórnina, og þá ekki síst Margrethe Vestager, sem sér um reglur um ríkis- aðstoð. Hún hóf málarekst- urinn gegn Apple árið 2014 og reiddi þá hátt til höggs. Málatilbúnaður Vestager var sá, að írska ríkið hefði ekki skattlagt dóttur- fyrirtæki Apple, sem þá voru með bækistöðvar á Írlandi, nægilega mikið og hélt hún því fram að í þeirri ákvörðun fælist ólögleg ríkisaðstoð írska ríkisins við Apple. Þessi rök voru þó varla meginástæða málaferlanna. Kjarni málsins var sá að framkvæmdastjórnin vildi, og vill enn, reyna að koma í veg fyrir að aðildarríki sam- bandsins geti stundað „sam- keppni“ í skattamálum hvert við annað. Þeirri tilraun að skilgreina þá samkeppni sem „ríkisaðstoð“ var hins vegar hafnað af almenna dóm- stólnum, enda tókst ekki að sýna fram á að írsk stjórn- völd hefðu boðið Apple neina slíka aðstoð, þó að þau ákvæðu að skattleggja fyrir- tækið ekki upp í rjáfur. Framkvæmdastjórnin íhugar nú hvernig hún getur sett á reglur sem neyði aðild- arríkin til þess að ganga meira í takt þegar kemur að skattlagningu fyrirtækja, en einn helsti vandinn er sá að mörg aðildarríkjanna hafa enga löngun til þess að hlíta slíkum takmörkunum, og þykir víst að sum þeirra muni beita neitunarvaldi sínu á allar tilraunir til þess að setja þær á. Afstaða aðildarríkjanna sem gegn þessari viðleitni standa er afar skiljanleg, enda er það eitt af hlut- verkum fullvalda ríkja að ákveða hvernig þau skatt- leggja fólk og fyrirtæki inn- an landamæra sinna. Það að reyna að koma í veg fyrir að þau geti hagað skött- um sínum á þann hátt sem þau kjósa er þannig enn ein tilraunin til að brjóta niður fullveldi aðildarríkja Evrópusam- bandsins, sem er orðið tak- markað eftir áralanga þróun í sömu átt. Þrátt fyrir ósigurinn er framkvæmdastjórnin ekki hætt við málareksturinn og skoðar möguleika á að áfrýja til æðsta dómstólsins þó að þeir lögfræðingar sem hafa tjáð sig um málið séu flestir þeirrar skoðunar að sú leið sé afar torsótt. Þá er framkvæmdastjórn- in að skoða möguleikann á því að sækja málið á nýjum forsendum og halda því þá fram að aðildarríki sem bjóði lægri skatta en önnur valdi truflunum á innri mark- aðnum. Með slík rök að vopni vonast framkvæmdastjórnin til þess að geta knúið í gegn lagabreytingu á sviði skatta- mála sambandsins sem krefjist aðeins meirihluta- stuðnings og fari þannig framhjá því að sérhvert ríki hafi neitunarvald þegar kemur að skattamálum. Skattamál alþjóðlegra stórfyrirtækja eru nokkuð sem sjálfsagt er að skoða og eðlilegt að ríki heims reyni að finna leiðir til að þau greiði sanngjarnan hlut eins og önnur fyrirtæki. Hvort Apple gerir það má deila um, en í þeirri umræðu þarf með- al annars að hafa í huga að Apple segist vera stærsti skattgreiðandi í heimi. Það breytir því ekki að eðlilegt er að skoða skattlagningu slíkra fyrirtækja til að tryggja að alþjóðleg fyrir- tæki búi ekki við lægri skatta þegar þau starfa í til- teknum löndum en fyrirtæki sem fyrir eru í þessum lönd- um. Mikið hefur til dæmis verið kvartað undan Face- book og slíkum fyrirtækjum í þessu sambandi og getur samkeppni við þau verið afar ósanngjörn fyrir fyrirtæki í einstökum löndum. Slík gagnrýni er hins veg- ar af allt öðrum toga en sú herferð sem framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins stendur í gagnvart Apple og snýst fyrst og fremst um að ná tökum á skattastefnu ein- stakra landa og skera enn eina sneiðina af fullveldi þeirra. Skattamál ESB gegn Apple er marg- slungnara en virðist við fyrstu sýn} Apple leggur ESB E itt af grunngildum Framsóknar- flokksins er að efla mennta- kerfið í landinu. Menntun er hreyfiafl framfara og því brýnt að jafnræði ríki í aðgengi að menntun fyrir alla. Ný lög um Menntasjóð námsmanna tóku gildi 1. júlí. Þessi allsherjar kerfisbreyting hefur verið baráttumál áratug- um saman. Afar brýnt var að bæta kjör náms- manna, auka réttindi og jafna tækifæri til náms. Ég brenn fyrir það að ungmenni lands- ins njóti góðs aðgengis að menntun óháð efnahag og staðsetningu. Eitt af því sem hefur ætíð staðið í mér er hvernig ábyrgðarkerfi lánasjóðs námsmanna þróaðist, þ.e. að ekki var veitt námslán án þess að ábyrgðarmanna nyti við. Í þessu fólst mismunun á aðstöðu fólks í gegnum lífsleið- ina. Margar fjölskyldur hafa þurft að endurskipuleggja fjármál efri áranna vegna þessa. Margir hafa þurft að takast á við þá staðreynd að erfa gamlar ábyrgðir á námslánum, jafnvel án þess að gera sér grein fyrir því. Þetta hefur eðli málsins samkvæmt verið fólki þung- bært. Þessu hefur, sem betur fer, verið breytt með nýju lögunum þegar 35.000 ábyrgðir á námslánum féllu nið- ur. Þessi lög bera því með sér umbyltingu á náms- lánakerfi hér á landi. Ný lög kveða á um að ábyrgðir ábyrgðarmanna á námslánum, teknum í tíð eldri laga, falli niður við gildistöku laganna, enda sé lánþegi í skil- um á láni sínu. Markmiðið er að hver lánþegi skuli sjálfur vera ábyrgur fyrir endur- greiðslu eigin námslána og samræma þannig námslán sem veitt eru fyrir og eftir árið 2009. Þá er tiltekið að ábyrgðir ábyrgðar- manns falli niður við andlát hans enda sé lán- þegi í skilum. Þessi breyting er í samræmi við reglu sem lengi hefur gilt um lánþegann sjálfan, þ.e. að skuldin falli niður við andlát en erfist ekki. Þetta er gríðarlega mikilvægt enda hefur verið vakin athygli á ágöllum á þessu fyrirkomulagi í fjölda ára af hálfu þeirra sem hafa fengið lánsábyrgð í arf. Markmið mitt með þessum lagabreyt- ingum er að draga úr aðstöðumun í sam- félaginu ásamt því að tryggja jafna mögu- leika og jöfn tækifæri til náms. Þannig á möguleiki á menntun að vera án tillits til landfræðilegra aðstæðna, kyns eða efnahagslegra og félagslegra aðstæðna. Það hefur myndast góð samstaða á Alþingi um að ráðast í þessar kerfisbreytingar sem voru löngu tímabærar. Kerfisbreyting sem þessi leiðir af sér aukið réttlæti í samfélaginu ásamt því að auka verð- mætasköpun sem felst í því að fleiri hafa tækifæri á því að mennta sig án þess að reiða sig á góðvild annarra. Eitt af markmiðum nýrra laga var að námslánakerfið væri sanngjarnara og réttlátara. Þessi kerfisbreyting mun einnig greiða leiðina að áhyggjulausu ævikvöldi. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Áhyggjulaust ævikvöld Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Búið var að veiða rúm 26 þús- und tonn af makríl í gær, sam- kvæmt upplýsingum á heima- síðu Fiskistofu um afla á þessu ári. Þar af höfðu tæplega 972 tonn verði veidd í færeysku lög- sögunni, væntanlega sem með- afli með öðrum afla eins og kol- munna í vor, en 25.045 tonn höfðu veiðst í íslenskri land- helgi. Makrílkvóti Íslands á þessu ári verður rúmlega 152 þúsund tonn, samkvæmt ákvörðun Kristjáns Þórs Júlíussonar sjáv- arútvegsráðherra í vor. Í fyrra var makrílkvótinn 140 þúsund tonn. Þá voru um 20 þúsund tonn geymd á milli ára og má veiða þau nú. Aukning varð í makríl- ráðgjöf Alþjóðahafrann- sóknaráðsins í fyrra- haust. Búið að veiða 26.000 tonn MAKRÍLVERTÍÐ HAFIN Kristján Þór Júlíusson Morgunblaðið/Árni Sæberg Makríll Aflinn hefur verið frystur til manneldis, ýmist hausskorinn eða heill. Leiðindabræla hamlaði veiðum á miðunum sunnan við land í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.