Morgunblaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 32
Hin árlega tónlistarhátíð Jazz undir fjöllum verður
haldin í fimmtánda sinn í Skógum undir Eyjafjöllum á
morgun, laugardag. Aðaltónleikar hátíðarinnar fara
fram í Fossbúð kl. 21 en þar kemur fram kvartett söng-
konunnar Andreu Gylfadóttur. Fyrr um daginn verður
boðið upp á tónlist í Skógakaffi frá kl. 14 til 17. Þar leið-
ir forsprakki hátíðarinnar, saxófónleikarinn Sigurður
Flosason, kvintett sinn í eins konar djammsessjón.
Ókeypis er þar inn og reiknað með að gestir geti komið
og farið að vild meðan á tónleikunum stendur.
Tónlistarhátíðin árlega Jazz undir
fjöllum haldin í Skógum á morgun
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 199. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Ég er spennt fyrir komandi leikjum og vonandi er
þetta það sem koma skal hjá okkur,“ segir Katrín Ás-
björnsdóttir, knattspyrnukona úr KR, sem tryggði liði
sínu fyrstu stigin á Íslandsmótinu þegar hún skoraði
tvívegis í sigri gegn Stjörnunni á þriðjudagskvöldið.
Hún er leikmaður umferðarinnar hjá Morgunblaðinu en
í blaðinu í dag er viðtal við hana og birt úrvalslið 6. um-
ferðar deildarinnar. »27
Vonandi það sem koma skal
ÍÞRÓTTIR MENNING
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Jón Gunnþórsson á Þórshöfn er
kominn á virðulegan aldur og hefur
nú loksins tíma til að sinna sínu
helsta hugðarefni, tónlistinni. Hann
gaf nýlega út geislaplötu sem nefnist
Grái fiðringurinn og eru öll lögin eft-
ir Jón.
„Það er búið að vera í gerjun hjá
mér í tæp fimm ár að gera geisladisk
með nokkrum lögum mínum,
kannski eru þetta elliglöp sem ég
þarf að ljúka,“ sagði Jón kímileitur
en engin ellimörk er þó á honum að
sjá. Hann er sístarfandi, bæði við
tónlist sína og fleira, þótt kominn sé
yfir áttrætt. Ferlið við að gera þessa
plötu var rúmt ár en Jón var strax
ákveðinn í að fá fagmenn til liðs við
sig.
Frábært samstarfsfólk
„Það er of mikið mál að brasa í
þessu öllu sjálfur, langt að keyra og
það þarf nokkra þjálfun til að fara í
stúdíó í upptökur. Ég ákvað að láta
fagfólkið um að vinna þessa tónlist
mína á sem bestan hátt,“ sagði Jón
og honum varð vel til fanga með tón-
listarfólk.
„Samstarfsfólkið í þessu verkefni
var frábært og allt ferlið búið að
vera mjög skemmtilegt,“ sagði Jón
en yfirumsjón höfðu þeir Valmar
Väljaots og Brynleifur Hallsson í
Tónræktinni á Akureyri og nótnarit-
un var í höndum Sigurðar Daníels-
sonar tónlistarkennara.
Söngvarar eru valinkunnir, þeir
Magni Ásgeirsson, Óskar Pétursson
og Friðjón Jóhannsson, en eitt lagið
syngur ung stúlka, Vilborg Anna Jó-
hannesdóttir, sem er sonardóttir
Jóns en hún syngur lagið Föður-
minning við texta Helga Seljan. Aðr-
ir textahöfundar eru Hákon Aðal-
steinsson, Friðrik Steingrímsson,
Úlfur Ragnarsson, Guðmundur
Halldórsson og Gísli á Uppsölum að
ógleymdum heimamanninum Páli
Jónassyni í Hlíð, sem á flesta text-
ana á plötu Jóns en Páll er kunnur
fyrir vísnagátur sínar.
Lögin 14 á plötunni eru aðeins
brot af lögum Jóns enda hefur hann
verið að semja í ein 20 ár. En hvern-
ig kviknar hugmyndin að öllum
þessum lögum?
„Lögin verða til í huga mínum
þegar ég les texta, kvæði eða ljóð.
Textinn sem ég les verður að tónum
og allt í einu er komið lag sem fellur
að þeim texta,“ sagði Jón sem sagð-
ist bæði grípa í harmonikkuna og
hljómborðið. Íbúðin hans er eins og
lítið stúdíó; full af hljóðfærum og
búnaði þeim tengdum þótt Jón sé
búinn að láta töluvert frá sér.
Lengi sungið í kór
„Ég á nokkrar harmonikkur og
hljómborð en er búinn að gefa ein-
hverjar, meðal annars gaf ég
Harmonikkusafni Ásgeirs Sigurðs-
sonar á Ísafirði eina nikku.“
Jón hafði í upphafi hugsað sér að
vinna með tónlist sína eingöngu hér í
heimabyggð og í samstarfi við
kirkjukórinn en ekki varð af því þar
sem organista vantaði.
Jón hefur sungið í kór frá unga
aldri og hneigðist snemma til tónlist-
ar þótt starfsævin hafi að mestu ein-
kennst af vinnu við vélar og bíla,
einnig kom sjómennska nokkuð við
sögu.
Jón er ættaður frá Seyðisfirði og
lærði þar meðal annars á bassatúbu
en harmonikkan er nú hans aðal-
hljóðfæri og gleður Jón oft samborg-
ara sína hér í byggðarlaginu með
harmonikkuleik á ýmsum sam-
komum.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Tónlistarmaður Jón Gunnþórsson á Þórshöfn með geisladiskinn sem hann
var að gefa út og nefnist Grái fiðringurinn. Á plötunni eru 14 lög eftir Jón.
Grár fiðringur á plötu
Áttræður harmonikkuleikari á Þórshöfn með geislaplötu