Morgunblaðið - 17.07.2020, Síða 28

Morgunblaðið - 17.07.2020, Síða 28
VIÐTAL Magnús Guðmundsson magnusg@mbl.is „Ég er búin að vera að ferðast um Ís- land og spila fyrir fólkið í landinu og mér finnst það alveg æðislegt. Það er ákveðin gjöf í þessu,“ segir Hera Hjartardóttir tónlistarkona, sem fyr- ir skömmu sendi frá sér nýja plötu sem ber einfaldlega heitið Hera. Í hálfgerðu spennufalli Hera flutti til Nýja-Sjálands fyrir 24 árum og þar byggði hún upp sinn tónlistarferil. Fyrir ári flutti hún heim til Íslands og bætir því við að um þessar mundir hafi hún átt að vera að spila á tónlistarhátíðinni South by Southwest í Texas. Í ljósi ástandsins í heiminum varð þó ekki af því en það er ekki að heyra á tónlistarkonunni að henni þyki síðra að koma fram vítt og breitt um Ísland. „Þetta er búið að vera alveg yndislegt. Veðrið hefur leikið við mig og ég hef verið að spila á dásamlega fallegum stöðum fyrir frábært fólk svo ég hef ekki ástæðu til annars en að vera kát og glöð,“ bætir hún við og brosir. Það er engu að síður mikil breyt- ing fólgin í þessu frá því starfs- umhverfi sem Hera er vön, enda var nýja platan unnin víða og tók heil þrjú ár í vinnslu. „Þessi plata var tekin upp hér og tónlistarmenn á Nýja-Sjálandi og í Bandaríkjunum léku einnig inn á hana. Henni var eiginlega púslað saman yfir hnöttinn og Barði Jóhannsson stýrði upp- tökum. Samstarfið við Barða var frá- bært og svo fór mikill tími í að velja og vinna, slípa og púsla þangað til platan var komin í þetta endanlega form. Lögin eru loksins komin heim. Ég er búin að vera að vinna svo lengi að þessari plötu að í dag trúi ég því eiginlega ekki að hún sé komin út. Satt best að segja er ég búin að vera í hálfgerðu spennufalli yfir þessu.“ Þar sem ræturnar eru Tæpur aldarfjórðungur er langur tími og aðspurð hvers vegna hún hafi ákveðið að flytja heim til Íslands seg- ir Hera að það hafi eitt og annað Alltaf reynst betur að tjá mig í söng  Tónlistarkonan Hera með nýja og persónulega plötu Morgunblaði/Arnþór Birkisson heild eins og kaflar í bók. Á ákveðinn hátt má segja að þessi bók sé eins og dagbók og það afskaplega persónu- leg. Fyrir mig er mikil losun fólgin í því að geta deilt henni með öðrum.“ Það er einmitt það sem Hera er að gera um þessar mundir og í kvöld, föstudagskvöld, verður hún með tón- leika á Breiðdalsvík, á laugardags- kvöld í Neskaupstað og Þórshöfn á sunnudagskvöldið. Fimmtudagskvöldið 23. júlí er svo komið að sjálfum útgáfutónleikunum. „Það verða fyrstu tónleikarnir á Ís- landi þar sem ég er með hljómsveit með mér í rúm fimmtán ár. Auk mín eru það þeir Kristinn Snær Agn- arsson, Daníel Helgason, Ingi Björn Ingason og Stefán Örn Gunnlaugsson sem skipa hljómsveitina. Tónleikarn- ir verða í Bæjarbíói, sem er staður sem mér þykir sérstaklega vænt um svo þetta er mikið tilhlökkunarefni.“ að fólk gæti gert sjálft sína eigin and- litsmálun. Þar með var ég svona búin að láta keflið ganga ef svo má segja.“ Þess má geta að þeir sem eru áhugasamir um að skreyta andlitið með maorísku munstri Heru geta fundið filterinn á Instagram undir heitinu @herasings. Dagbók í tónlistarformi Nýja platan frá Heru er á mjög ljúfum og persónulegum nótum og hún segir að tónlistin hafi alltaf reynst sér vel til þess að takast á við það sem að höndum ber í lífinu. „Það hefur alltaf verið þannig með mig að ef það er eitthvað sem ég á erfitt með að tjá reynist mér betur að gera það í söng og óneitanlega er ég frekar mik- ið að vinna mig út úr ákveðnum hlut- um á þessari plötu. Það skipti mig líka miklu máli að þessi lög væru þarna saman í þessari spurð hvort hún sé með þessu að rjúfa tengslin við Nýja-Sjáland segir hún að það sé ekki beint þannig. „En þetta er búið að vera með mér eins og skjöldur í rúm sautján ár. Ég málaði þetta alltaf á mig áður en ég kom fram til þess að spila og fannst ég vera berskjölduð ef ég gerði það ekki. Núna er þetta einhvern veginn að breytast með þessari plötu. Hún heit- ir bara Hera vegna þess að hún er að mínu mati persónulegri og einlægari en ég hef áður verið. En ég verð að játa að fyrst þegar ég var að koma fram án þess að vera með málninguna í andlitinu leið mér eiginlega eins og ég væri allsber,“ bætir hún við og skellihlær við til- hugsunina. „Það er svo skrýtið að á sama tíma og ég var að kveðja þetta hafði sam- band við mig þýskur forritari til þess að fá leyfi til að nýta munstrið þannig komið til. „Það var margt að breytast í mínu lífi á þessum tíma þegar ég tók þessa ákvörðun. Við lentum í þessum svakalegu jarðskjálftum sem urðu á Nýja-Sjálandi og það var svona eitt og annað sem kom róti á mig. En svo er það auðvitað ástin sem breytir mestu og skiptir mestu máli þegar á reynir. Fyrir rúmu ári kynntist ég kærastanum mínum hérna á Íslandi, hann er frá Ítalíu, en síðan þá hefur eiginlega orðið algjör kúvending á lífi mínu. Í dag líður mér loksins eins og ég sé lent aftur heima þar sem ræt- urnar eru og þar sem mér líður vel.“ Leið eins og ég væri allsber Í mörg ár kom Hera aldrei fram öðruvísi en að vera með maoríska skreytingu í andliti en það vekur eftirtekt að svo er ekki lengur. Að- Tónlistardagbók „Á ákveðinn hátt má segja að þessi bók sé eins og dagbók og það afskaplega persónuleg,“ segir Hera Hjartardóttir um nýju plötuna sem var heil þrjú ár í vinnslu og var púslað saman víða um heiminn. 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020 445859 Opel Grandland X ‘19, ekinn 49 þús. km. Verð: 3.190.000 kr. 590684 Nissan Qashqai Tekna ‘19. ekinn 13 þús. km. Verð: 4.890.000 kr. 590717 Ísland vill sjá þig í sumar Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Opnunartímar: Virka daga 12-17 Meira úrval á notadir.benni.is Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 * Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. hevrolet Captiva ‘14, ekinn104 þús. km. erð: 1.990.000 kr. Ssangyong Rexton hlx ‘17. ekinn 68 þús. km. Verð: 4.790.000 kr. Hyundai Ionic Ev ‘18. ekinn 37 þús. km. Verð: 3.490.000 kr. Suzuki Vitara glx ‘18, ekinn 64 þ. km. Verð: 3.190.000 kr. 590486 446263 590759 590716 C V Kaupauki Eldsneytiskort að verðmæti 50.000kr. frá Orkunni. Sjönætur með morgunverði. Verðmæti 210.000 kr. Ævintýrapottur Skráðu þig til leiks á notadir.benni.is Vinnangar dregnir út á Bylgjunni með notuðum bílum! SsangYong Korando dlx ‘18, ekinn 54 þ. km. Verð: 3.590.000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.