Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Blaðsíða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2020
Það er bæði skemmtilegt og óþægilegt aðþurfa að skrifa pistil í hverri viku.Skemmtilegt að fá frelsi til að blaðra
um öll sín hjartans mál. Segja sögur af kött-
unum og hafa vettvang til að vera smá kverúl-
ant annað slagið. En líka stundum pínu óþægi-
legt að þurfa að hafa skoðun á öllu.
Sérstaklega í ljósi þess að ég er yfirleitt sein-
þreyttur til vandræða og nenni ekki alltaf að
nöldra yfir öllu.
En nú er ég á leið í sumarfrí. Sem þýðir að
ég þarf ekki að fylgjast með neinu og ekki vita
neitt um neitt. Og ég get verið mjög góður í
því. En mér líður eins og þurfi að klára eitt og
annað fyrir frí. Eiginlega taka til á skrifborð-
inu áður en ég fer og láta í ljós skoðun mína á
þessum helstu málum sem okkur hefur tekist
að rífast um síðustu daga.
Mér finnst algjörlega galið að það sé hægt
að bjóða sig fram til forseta með 1.500 undir-
skriftum, setja af stað kosningar sem kosta
mörg hundruð milljónir og vera svo algjörlega
á trampólíninu yfir að ná ekki nema tæpum
átta prósentum atkvæða. Finnst engum það
bjánalegt að vera sigri hrósandi þegar rúm-
lega níu af hverjum tíu hafa hafnað þér? Haf-
andi verið nýbúinn að lýsa því yfir að pökkun á
búslóðinni gengi vel fyrir Bessastaði og innan
skamms kæmi í ljós að þessar kannanir væru
allar stórt samsæri og þjóðin kallaði á breyt-
ingar. Hér þyrftum við sennilega að ræða eitt-
hvað um væntingastjórnun.
Mér gæti ekki verið meira sama um hvað
Vigdísi Hauksdóttur finnst um skreytingar á
strætisvögnum. Ég verð að segja að það kem-
ur mér ekkert rosalega á óvart að hún sé ósátt
við eitthvað í stjórnun Reykjavíkurborgar. Ég
hefði líka alveg komist af án þess að fá frétt
um að Jón Viðar Jónsson væri ekki ánægður
með myndina um Eurovision. Aftur: Ekki
mjög hissa. Mér fannst hún ágæt. Bjánaleg en
ágæt.
Ég get ekki fyrir mitt litla líf náð að tengja
nýtt myndband KSÍ við nasisma, eins og virð-
ist vera mjög vinsælt núna. Þessi yfirlætisfulla
kaldhæðni getur stundum orðið pínu þreyt-
andi. Það þarf ekki að taka allt svona alvarlega
og þetta er fótboltalið. Í alvöru.
Svo bara veit ég ekki hvernig á að haga sér á
landamærum á þessum Covid-tímum. Hverja
á að skanna og hverjum á að sleppa. Hvað er
eðlilegur tími í sóttkví. Það síðasta sem ég
myndi gera væri að reyna að breyta mér í ein-
hvern sérfræðing
í Covid. Það er
fólk í því.
Já og Lauga-
vegurinn. Ég
nenni ekki einu
sinni að hugsa um
hann, hvað þá
skrifa eitthvað um
hann.
Og hvað segið
þið? Voru ekki allir sáttir á Alþingi í lok þings.
Nei hættið nú alveg! Hvernig gat það gerst?
Þá held ég að þetta sé nokkurn veginn
komið. Ég er farinn í sumarfrí, innanlands að
sjálfsögðu. Ef það koma upp einhver svona
mál sem þið teljið að ég ætti að hafa skoðun á,
þá verða þau bara að bíða þangað til eftir
verslunarmannahelgi. Það eru samt allar líkur
á að stóru mál júlímánaðar verði orðin ansi
smá þá.
Gleðlilegt sumar.
’En mér líður eins og þurfi aðklára eitt og annað fyrir frí.Eiginlega taka til á skrifborðinuáður en ég fer og láta í ljós skoð-
un mína á þessum helstu mál-
um sem okkur hefur tekist að
rífast um síðustu daga.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Ég fer í fríið
Svona spyr þingmaður í vef-miðilsgrein nýlega. Tilefniðvar frumvarp forsætisráð-
herra um leyfisveitingar vegna
jarðakaupa. Þingmaðurinn sagði
að lagasmíð sem snýr að eignar-
rétti varðaði grundvallarmannrétt-
indi og þyrfti fyrir bragðið að fá
viðhlítandi umræðu í þjóðfélaginu
og á Alþingi þannig að hún fengi að
þroskast.
Mikið rétt, nema hvað í þessu til-
viki hefur ráðrúm til að þroskast
verið nokkuð rúmt. Öll höfum við
getað fylgst með fjárfestingum
auðjöfra í landi og hafa sumir fjöl-
miðlar staðið sig vel í því að upp-
lýsa okkur þar um á liðnum árum.
Undirskriftum hefur verið safnað
og hafa þúsundir krafist þess að
þetta verði stöðvað.
Alþingismenn
hafa hins vegar
þagað flestir
hverjir og ekki
sýnt málinu þann
áhuga sem efni
eru til eins óskilj-
anlegt og það nú
er.
Og nú er um-
rætt frumvarp
orðið að lögum.
Er það til ills?
Alls ekki. Með því
er búið í haginn
fyrir gagnsærri
eignaskráningu
en verið hefur en þó á undarlega
nærfærinn hátt gagnvart stórtæk-
um fjárfestum. Hvers vegna skyldi
ekki þykja sjálfsagt að upplýsingar
liggi fyrir um allar landareignir?
Uppi hafa verið kröfur í þjóð-
félaginu um að afgerandi bann yrði
sett við eignasöfnun í landi. Svo
hefur ekki verið gert og hélt for-
sætisráðherra því ranglega fram
við atkvæðagreiðslu um frum-
varpið að nú hefði kalli þjóðarinnar
verið svarað. Því fer fjarri!
Stærðarmörkin sem lögin kveða
á um eru svo ævintýraleg að engu
tali tekur. Hefðu menn þorað að
horfa með djörfung til framtíðar þá
hefði verið tekin ákvörðun um að
binda réttinn til eignar á landi því
skilyrði að eigandinn þyrfti að vera
hérlendur ríkisborgari eða hafa
lögheimili hér á landi og jafnframt
hefði verið sett afdráttarlaust bann
við fjárfestingum í landi umfram
tiltekna stærð. Hefði þetta verið
gert, þá hefði til sanns vegar mátt
færa að kalli almennings hefði ver-
ið svarað. En svo var ekki.
En þá að eignarréttinum.
Bændur sem vilja bregða búi hafa
sumir lýst áhyggjum yfir því að
hvers kyns takmarkanir, jafnvel
krafa um að kaupandinn hlíti
skipulagsákvæðum laga og reglu-
gerða ríkis og sveitarfélaga, geti
rýrt eignir þeirra. Hvort þessi
lagasetning eigi eftir að hafa slík
áhrif leyfi ég mér að efast um. Þó
skal ég ekki útiloka að bændur
sem vilja bregða búi komi til með
að eiga heldur erfiðara með að ná
sölusamningi við feimna milljarða-
mæringa sem þegar eiga tugi þús-
unda hektara lands og að það
kunni að hafa áhrif á markaðsvirði.
Spurning er hins vegar hvort
ekki megi leysa vanda bænda, sem
vilja losna við jarðir sínar í skipt-
um fyrir húsnæði í þéttbýli og
trygga afkomu, með aðkomu ríkis
og sveitarfélaga sem þá jafnframt
greiddu fyrir því að fólki sem vill
stunda landbúnaðarstörf sé gert
það kleift. Þessi hugmynd hefur
áður litið dagsins ljós og þá hjá
þeim sem áhyggjur hafa af því að
landbúnaðarland sé bútað niður til
annarra nota en landbúnaðar og
fólki þröngvað út úr atvinnugrein
þar sem það helst vildi starfa.
Jafnvel þau sem alast upp á land-
búnaðarjörðum og vilja áfram búa,
ráða iðulega ekki við að kaupa
systkini sín út vegna þess hve dýr
jörðin er að ógleymdum fram-
leiðslukvótum sem einnig hafa hátt
verðgildi.
Þetta hefði maður óskað að
ríkisstjórn og Alþingi hefðu rætt af
alvöru því þennan þátt umræðunn-
ar þarf vissulega
að þroska betur.
Hitt þarf ríkis-
stjórn og Alþingi
líka að þroska og
þá með sjálfum
sér en það er að
þora að standa
með almannahag
og hrista af sér
alla lítilþægni
gagnvart brösk-
urum og ríki-
dæmi þeirra.
Mörg trúðum
við því framan af
að ríkisstjórn og
Alþingi myndu reisa alvöru skorð-
ur við landakaupum og þá einnig
koma í veg fyrir að eignarhald á
landi og þar með auðlindum, vatni,
heitu og köldu og orku svo og öll-
um öðrum verðmætum í jörðu,
færðist út fyrir landsteinana. Í
yfirráðum yfir þessum gæðum er
fólgið efnahagslegt og pólitískt
vald sem á heima hjá samfélaginu
– hjá þjóðinni.
Milljarðamæringar og málaliðar
á þeirra vegum eru orðnir talsvert
fyrirferðarmiklir sem „innanbúðar-
menn“ í umræðu um auðlindir Ís-
lands. Samtök ferðaþjónustu eru
orðin þeirra samtök og fjárvana
stofnanir ríkisins kostaðir sam-
starfsaðilar. Hugtakið auðvald
verður sífellt skiljanlegra.
Og komum við þá aftur að eign-
arréttinum. Á heimsvísu nýtur sú
hugsun vaxandi fylgis að aðgangur
að vatni flokkist til mannréttinda
og skuli heyra okkur öllum til; á
Íslandi er það viðhorf ríkjandi að
orkan eigi að vera okkar og í lög-
um um stjórn fiskveiða segir að
sjávarauðlindin sé þjóðarinnar
allrar.
Samt fjarar undan þessari hugs-
un í lögum og dómum.
Þarna fæ ég ekki betur séð en að
verið sé að jarða eignarréttinn,
ekki eignarrétt Ratcliffes og auð-
kýfinganna í Fljótunum eða Tung-
unum; þeirra réttar gætir ríkis-
stjórn og Alþingi. Öðru máli gegnir
um almannarétt, yfirráðarétt þjóð-
arinnar yfir landi og auðlindum.
Þeim rétti er nú ógnað.
Látum ekki jarða hann.
Er verið að jarða
eignarréttinn?
Úr ólík-
um áttum
Ögmundur
Jónasson
’Uppi hafa veriðkröfur í þjóðfélaginuum að afgerandi bannyrði sett við eignasöfn-
un í landi. Svo hefur
ekki verið gert og hélt
forsætisráðherra því
ranglega fram við at-
kvæðagreiðslu um
frumvarpið að nú hefði
kalli þjóðarinnar verið
svarað. Því fer fjarri!