Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Blaðsíða 18
Í borðstofu er gamalt borðstofuborð með íslenskum stólum sem sóma sér vel í húsinu. Yfir borðinu hangir eitt listaverka Hildar, en það er ofið úr silkiþráðum. Með útsýni yfir sjó, fjöll og gamla steinkirkju hefur listakonan Hildur Ásgeirsdóttir búið sér heimili á Íslandi. Fjölskyldan býr í Cleveland í Ohio, en ver öllum fríum í litla sæta húsinu í Innri-Njarðvík. Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Eldhúsið er frá áttunda áratugnum og mér finnst það æð-islegt! Það er engin uppþvottavél en svo heimilislegt. Hér hef ég eldað fyrir stórfjölskylduna og bakað ófáar pönnukökur. Eldhúsið er ekta „retró“, enda hefur því ekki verið breytt í hálfa öld. Hildur stendur við húsið sitt í Innri- Njarðvík. Hún segir það hús með sál. „Engir draugar, bara góðir andar“ Húsið, sem ber nafnið Njarðvík, stenduralveg við kirkjuna og kirkjugarðinn íInnri-Njarðvík. Það er byggt 1907 og er fyrsta húsið í Njarðvík en það var byggt á sama tíma og húsið við hliðina á sem er nú byggðasafn. Hildur og maður hennar, Brian Schriefer, festu kaup á húsinu fyrir næstum tveimur áratugum, en fjölskyldan býr að öllu jöfnu í Bandaríkjunum þar sem Hildur starfar sem listakona. Hús með sjarma og sál „Það sem heillaði okkur helst var að húsið hafði mikinn karakter og sjarma. Þetta er hús með sál. Það er mjög heimilislegt og kósí en ekki nýtískulegt og glansandi sem er ekki minn stíll. Umhverfið er líka dásamlegt. Sjór- inn er skammt frá og kirkjugarðurinn blasir við út um gluggana. Kirkjan hér er mjög fal- leg og húsið stendur langt frá öðrum húsum. Svo er frábært að vera nálægt náttúrunni en samt mjög nálægt allri þjónustu,“ segir hún og bætir við að ekki taki nema rúman hálftíma að keyra til Reykjavíkur. Fjölskyldan nýtur hverrar stundar í húsinu en þau dvelja hér bæði sumur og jól og oft í öðrum fríum þess á milli. „Á jólunum er hér alveg eins og ævintýra- jólaland með ljós við hvert einasta leiði í garð- inum. Það er gengið sérstaklega vel um þenn- an kirkjugarð og nú er til dæmis blóm við hvert einasta leiði. Það er alltaf fólk að nostra við leiðin,“ segir Hildur. Nálægðin við kirkjugarðinn hræðir þig ekki? „Nei, þvert á móti, mér finnst það mjög notalegt. Hér eru engir draugar, bara mjög góðir andar,“ segir hún og brosir. Mun aldrei selja húsið Hjónin hafa gert nokkrar endurbætur á hús- inu í gegnum árin. „Það fékk nýtt þak, þakglugga og nýja klæðningu. Svo gerðum við nýjan stofuglugga og þá birtist stórkostlegt útsýni yfir kirkju- garðinn og hafið,“ segir hún. Innréttingar innandyra hafa fengið að halda sér. „Eldhúsið er frá áttunda áratugnum og mér finnst það æðislegt! Það er engin uppþvottavél en svo heimilislegt. Hér hef ég eldað fyrir stórfjölskylduna og bakað ófáar pönnukökur,“ segir hún. Á veggjum má sjá mörg skemmtileg lista- verk. „Ég er sjálf listakona og er með nokkur af mínum verkum en einnig eftir aðra listamenn sem ég þekki.“ Hildur segist aldrei ætla að selja húsið. „Þetta er fjölskylduhúsið og krakkarnir ætla að taka við því seinna meir. Við munum sjálf enda hér í kirkjugarðinum.“ 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2020 LÍFSSTÍLL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.