Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2020
LÍFSSTÍLL
www.flugger.is
Facade Beton er
gæðamálning
fyrir stein
Maðurinn með bikarinn var með grímu fyrir vitumsér og hanska á höndum. Hann lagði verð-launagripinn varlega frá sér á borð og lét sig
hverfa. Skömmu síðar kom liðsmaður úr liði Þýskalands-
meistara Alba Berlín að borðinu og hóf bikarinn á loft.
Liðið fagnaði á meðan litríkir sneplar þyrluðust um loftið,
en það var enginn til að fagna aðrir en liðið og þjálf-
arateymið því salurinn var tómur.
Svona fara íþróttir fram á tímum kórónuveirunnar.
Venjulega veita framámenn í íþróttahreyfingunni verð-
launapeninga og afhenda bikara, en nú var þeim ekki
hleypt að. Þjálfarar liðanna í fyrsta og öðru sæti hengdu
verlaunapeningana um háls leikmanna og fyrirliðarnir
létu síðan þjálfarana fá sína peninga.
„Þetta er auðvitað mjög sætt,“ sagði Martin Her-
mannsson, liðsmaður Alba Berlínar, við mbl.is eftir leik-
inn, „bæði að klára þennan titil en líka að komast af þessu
hóteli! Við erum búnir að vera á þessu sama hóteli með
hinum liðunum í þrjár vikur; máttum fara út klukkutíma á
dag, en annars hef ég bara sofið, borðað og æft.“
Þegar kórónuveiran leiddi til þess að fjöldasamkomur á
borð við íþróttaviðburði voru bannaðar í Þýskalandi var
ákveðið að tímabilinu væri aflýst í handbolta, íshokkíi og
blaki. Í körfuboltanum kviknaði hins vegar sú hugmynd að
klára mótið í sóttkví. Tíu efstu liðunum var skipt í tvo riðla
og síðan myndu fjögur efstu liðin í hvorum riðli spila út-
sláttarleiki og tvisvar í hverri rimmu.
Ákveðið hefur verið að ljúka keppnistímabilinu í Banda-
ríkjunum með svipuðum hætti og fylgdust forráðamenn í
NBA því rækilega með gangi mála í Þýskalandi.
Mótið stóð í þrjár vikur og fóru allir leikirnir fram í
Audi-höllinni í München. 250 leikmenn, þjálfarar, aðstoð-
armenn og dómarar dvöldu á hóteli, sem var lokað af frá
umheiminum, og máttu ekki einu sinni fara út í búð.
Kórónuveiran hefur kostað liðin sitt. Um 30% af tekjum
þeirra eru af miðasölu. Mótinu í München var ætlað að
takmarka tjónið. Reyndar voru engir miðar seldir, en liðin
gætu varist kröfum um endurgreiðslu frá fyrirtækjum,
sem borga liðunum gegn því að fá auglýsingar á leikvang-
inum og búningum.
Þá var vonast til þess að þar sem lítið annað væri í gangi
í íþróttum en fótbolti myndi áhuginn á að fylgjast með í
sjónvarpi vera meiri en ella.
Gefnar voru út hreinlætis- og öryggisreglur fyrir mótið.
Bæklingurinn var 48 blaðsíður. Með litakerfi var skil-
greint hver mætti vera hvar og hvað lengi í íþróttahöllinni.
Hvert félag mátti í mesta lagi senda 22 leikmenn, þjálfara
og aðstoðarmenn í höllina og bjóða fjórum gestum að auki.
Þeir máttu sitja á ákveðnum stöðum í höllinni, urðu að
bera grímur fyrir vitum og hafa þrjú sæti á milli sín og
næsta manns. Skutlur ferjuðu leikmenn sjö mínútna akst-
ur á milli Leonardo Royal-hótelsins og leikvangsins og
enginn mátti fara um borð án grímu.
Við komuna á hótelið voru allir leikmenn skimaðir fyrir
veirunni og síðan var skimunin endurtekin á nokkurra
daga fresti. Niðurstöður fengust í mesta lagi 18 klukku-
stundum síðar. Einnig fengu leikmenn lítið tæki á stærð
við snjallúr ef þeir vildu sem sýndi
ferðir þeirra og annarra leikmanna
um hótelið þannig að hægt yrði að
rekja hverjir hefðu verið í návígi við
hverja ef upp kæmi smit.
Reynt var að gera leikmönnum
vistina bærilega og á myndum mátti
sjá þá taka í spil, spila borðtennis og
spreyta sig í golfhermi. Þegar ósk
barst um að fá hárskera var svarið
hins vegar þvert nei. Því þótti fylgja
of mikil smithætta.
Við innganginn að höllinni var nokkurs konar rani sem
gengið var í gegnum og þegar ýtt var á hnapp skrúfaðist
frá sótthreinsiúða. Ef boltinn fór í sætaraðirnar varð að
sótthreinsa hann áður en leikur gat hafist á ný. Ef leik-
maður stökk á eftir boltanum inn í sætaraðirnar varð upp-
nám á vellinum.
Eins og venja er voru viðtöl við leikmenn fyrir leiki, í
hálfleik og að leik loknum. Spyrillinn var hins vegar í
öruggri fjarlægð og talaði við leikmanninn með aðstoð
fjarskiptabúnaðar.
Per Günther, leikmaður körfuboltaliðsins Ratiopharm
Ulm, sagði í viðtali við Der Spiegel að í upphafi hefði and-
rúmsloftið verið eins og í bekkjarferð og allir umgengist
alla, en eftir því sem á leið og spennan jókst hafi menn orð-
ið þurrari á manninn.
Það er mikið líkamlegt álag að leika 10 leiki á 21 degi og
ofan á það bætist sálræna álagið, sem fylgir strangri
sóttkví. Berlínarliðið reyndist best undir þessa prófraun
búið. Liðið hafði sýnt hvað í því býr þegar það varð bik-
armeistari í vetur. Á mótinu í München tapaði liðið ekki
leik. Bæjarar héldu mótið og hafa ugglaust gert sér vonir
um titil, en þeir hikstuðu. Berlín lék til úrslita gegn Lud-
wigsburg og vann fyrri leikinn örugglega og þann seinni
með einu stigi. Eftir leik var áfram farið eftir ströngustu
sóttkvíarreglum, en í fjölmiðlum sagði að liðið hefði loks
sleppt fram af sér beislinu þegar komið var í hraðlestina
til Berlínar. Sagði einn leikmanna liðsins, Johannes
Thiemann, að þetta væri besta lestarferð, sem hann hefði
nokkru sinni farið í, og sáu liðsmenn Alba meira að segja
ástæðu til að þakka lestarstarfsmönnum umburðarlyndið.
Þegar til Berlínar var komið biðu nokkrir tugir stuðnings-
manna á brautarpallinum með stóran gulan borða með
áletruninni „Langbestir“.
Körfuboltatímabilið í Þýskalandi
var stöðvað í vetur vegna kórónu-
veirunnar og lauk síðan í sóttkví
fyrir viku. Alba Berlín með Martin
Hermannsson í lykilhlutverki kór-
ónaði gott tímabil með meistaratitli.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
AFP
Krýndir í sóttkví
Peyton Siva og Martin Hermannsson,
bakverðir Alba, fagna meistaratitlinum.
’„Við erum búnir aðvera á þessu samahóteli með hinum lið-unum í þrjár vikur; mátt-
um fara út klukkutíma á
dag, en annars hef ég
bara sofið, borðað og æft.“
Martin Hermanns-
son skýtur yfir Nick
Weiler-Babb í úr-
slitaleiknum um
þýska meistaratit-
ilinn í körfubolta.