Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2020 LESBÓK SVIK Fyrrverandi eiginkona rihöfundarins Dan Brown hefur lagt fram kæru á hendur honum þar sem hún seg- ir hann hafa lifað tvöföldu lífi á meðan þau voru saman. Eiginkonan, Blythe Brown, segist hafa verið Brown mikill innblástur í skrifum hans þau 20 ár sem þau voru gift. Hún hafi meira að segja komið með hugmyndina að skáldsögunum fimm um Robert Langdon en þrjár þeirra urðu að kvikmyndum; The DaVinci Code, Angels and Demons og Inferno. Þá segir Blythe að eiginmaður hennar hafi haldið við hestatemjara á meðan hjónabandi þeirra, sem endaði í fyrra, stóð og haldið frá henni upp- lýsingum um fjárhag sinn. Brown segist hissa á þessum ásökunum; Blythe hafi fengið helming eigna hans við skilnaðinn og allt hafi verið gefið upp. Lifði tvöföldu lífi AFP Dan Brown á ekki í góðu sambandi við fyrrverandi eiginkonu sína. STÓLAR Að sögn leikkonunnar Anne Hat- haway eru engir stólar leyfðir á setti kvik- mynda Christophers Nolan. Anne hefur unn- ið með Nolan að kvikmyndunum The Dark Knight Rises og Interstellar. Í viðtali við Var- iety segir hún ástæðu stólabannsins vera ein- falda. „Ef þú ert með stóla sest fólk og ef það sest er það ekki að vinna.“ Nolan virðist ekki taka undir orð Hatha- way og gaf fjölmiðlafulltrúi hans út yfirlýs- ingu í kjölfar viðtalsins. Það eina sem bannað sé á setti hjá Nolan séu símar og reykingar. Leikkonan hafi verið að vísa til stóla leik- stjóra og framleiðenda sem hann noti ekki. Nolan leyfir enga stóla á setti Nolan og Hathaway með Christian Bale (t.v.). AFP Krasinski með hárkolluna góðu. Leynileg kolla HÁRKOLLUR John Krasinski bar hárkollu í þriðju þáttaröð af The Office. Krasinski var boðið hlutverk í kvikmynd George Clooney, Leat- herheads, en þurfti að láta klippa hár sitt stutt fyrir hlutverkið. Hann biðlaði því til framleiðanda þátt- anna, Greg Daniels, um að leyfa hon- um að notast við hárkollu í síðustu þáttum þáttaraðarinnar. Daniels tók það ekki mál en Krasinski dó ekki ráðalaus. Hann fékk hárstílista þátt- anna, Kim Ferry, til liðs við sig og fékk hún vinkonu sína til að gera fyrir hann hárkollu í óþökk Daniels. Krasinski lék í nokkrum senum með hárkolluna án þess að nokkur tæki eftir og fór svo á fund með Daniels og sannfærði hann um að leyfa sér að nota hana. Ef þú hefur einhvern tímannhorft á grínþætti í sjónvarpikannastu við að í mörgum þeirra heyrist hlátur áhorfenda í bakgrunni eftir hvern brandara. Eins og á öðru eru skiptar skoðanir á þessum hlátri. Mörgum finnst hann óþolandi enda hafa fleiri og fleiri þáttaframleiðendur hætt að nota hlátur áhorfenda í þáttum sín- um. Aðrir taka ekki eftir honum eða finnst hann jafnvel ómissandi. Ástæða þess að framleiðendur vilja láta hlátur fylgja þáttunum sín- um er einfaldlega að hann virkar. Þeir vilja skapa þau áhrif sem það hefur að horfa á grínmynd í kvik- myndasal þar sem aðrir áhorfendur hlæja saman. Fólk virðist mun gjarnara til að hlæja þegar það heyrir annað fólk hlæja. Renna rannsóknir stoðum undir þessa kenningu. Fólk hlær meira þegar hlátur er látinn fylgja þáttunum þó að vísu hafi fólk, að eigin sögn, jafn- gaman af þáttunum hvort sem um hlátur er að ræða eður ei. En hláturinn getur eyðilagt góða þætti. Í raun er verið að segja fólki hvenær það á að hlæja og það getur verið óþolandi og jafnvel svolítið niðrandi. Listamennirnir sem koma að þáttagerð eru oft alfarið á móti hlátrinum. Það sé ekki hluti listsköp- unar að segja fólki að hlæja að bröndurum sínum. Hláturinn sé í raun hækja sem fái fólk til að hlæja að lélegu gríni og skemmi gott grín á móti. Ross hættulegur glæpamaður Ef horft er á þætti þar sem áhorf- endur eru í sjónvarpssal, eins og til dæmis Friends, án þess að heyra hláturinn getur grínið snúist upp í andhverfu sína. Leikararnir taka löng hlé á milli setninga og öll tíma- setning fer úr böndunum. Hláturinn býr til stemninguna í kringum atrið- ið og oft reiða leikarar sig á hlát- urinn í leik sínum. Netverjar hafa skemmt sér við að horfa á atriði með Ross úr Friends þar sem hann virkar sem hættu- legur glæpamaður þegar hláturinn er tekinn út. Í þáttunum Big Bang Theory, einnig með áhorfendur í sjónvarpssal, virka brandararnir „ódýrir“ og lélegir án hlátursins. Hlátur búinn til frá grunni Að láta hlátur fylgja afþreyingarefni á uppruna sinn í útvarpi. Fólk var vant að mæta á samkomur þar sem fjöldi fólks kom saman og heyrði því hlátur annarra. Fyrir framan út- varpið sat fólk oft eitt eða með fáum öðrum og því var notast við hlátur á upptöku við að kitla hláturtaugarn- ar. Áhorfendur voru fengnir á upp- tökur en fólk hló oft ekki nógu mikið og því var gripið til þessa ráðs. Þegar fyrstu sjónvarpsþættirnir fóru í sýningu glímdu menn við álíka Ávallt mátti heyra hlátur áhorfenda í þáttunum Seinfeld. Hluti atriðanna var tekinn upp fyrir framan áhorfendur en í öðrum var notaður „hlátur í dós“ að öllu leyti. Niðrandi eða ómissandi? Hláturinn lengir lífið er stundum sagt og þeirri möntru hafa sjónvarpsframleiðendur tekið alvar- lega í gegnum tíðina. Hlátur sem fylgir sjónvarps- þáttum er þó, mörgum til fagnaðar, á útleið. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Þegar Charles Douglass fór að „sæta“ hlátur sjónvarpsþátta, eins og það var kallað, bjó hann til svokall- aðan „laff kassa“. Kassinn var rúm- lega hálfur metri á hæð og spilað var á hann eins og orgel þar sem skipanir frá lyklaborði, líkt og því sem er á rit- vélum, stýrðu hlátrinum. Hver takki á lyklaborðinu stóð fyrir eina tegund viðbragða áhorfenda. Oftast var það hlátur en einnig fagnaðar- og undr- undaróp. Þegar Douglass var fenginn til að laga hlátur áhorfenda, eða búa hann til frá grunni, mætti hann með kassann sinn en passaði að enginn sæi inn í hann til að viðhalda ein- okun sinni á sjónvarpshláturiðnaðnum. Enginn utan nánustu fjöl- skyldu fékk að sjá kassann að innan. Douglass hélt ávallt í uppruna- legutækni kassans og það varð honum að falli þegar Carroll Pratt, lærlingur hans, ákvað að stofna sitt eigið fyrirtæki sem lagaði hlát- ur með nýjustu tækni undir lok 8. áratugarins. Dularfullur kassi ... stærsti uppskriftarvefur landsins!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.