Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Síða 32
SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2020
york
ligne
classico
magnifique
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI
HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR
Nótt fyrir tvo á Hilton Reykjavik Nordica,
ásamt morgunverði og aðgangi að Hilton
Reykjavik Spa, fylgir kaupum á Serta fimm
stjörnu hótelrúmi.
Verðmæti: 36.000 kr.
Kynningarverð: 296.650 kr
Verð frá: Classico 160 x 200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Fullt verð: 349.000 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.)
5STJÖRNUHÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja
ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni
óviðjafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast
að þér og þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu
heilsurúm, heima hjá þér – allar nætur – alltaf.
CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal
heilsudýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna
með góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og
mjaðmasvæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir
því hvað hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr
kaldpressuðum svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni
og dýnu.
MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu
sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með
tvískiptu gormakerfi og aukinni kantstyrkingu.
Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt
og andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem
eru mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi
fætur og einnig eru fáanleg náttborð í stíl.
FIMM STJÖRNU
LÚXUS HÓTELRÚM
– HEIM TIL ÞÍN –
Fimm stjörnu Hótel -rúmalínan frá Serta er
kominn aftur og fæst á tilboðsverði í Betra Baki
auk þess að nótt á Reykjavik Nordica ásamt
morgunverði fyrir tvo og aðgangi að Hilton Reykjavik
Spa fylgir kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
„Sýningin heitir: Það sem konan
gerði, bátsmaðurinn sagði og hund-
urinn sá,“ segir Hulda og segir
sýninguna standa fram í október.
„Ferðamenn geta slegið tvær
flugur í einu höggi; farið í Eld-
heima og skoðað sýninguna mína.
Sýningin er tvískipt; málverk og
innhverfar lágmyndir,“ segir hún,
en innhverfu lágmyndirnar eru
unnar þannig að hún í raun málar
mótið að innan. Hún segir það hafa
komið sér á óvart þegar hún vann
myndirnar að það sé líkt og höfuð-
in snúi sér í rammanum og fylgi
áhorfandanum.
„Höfuðið fylgir þér alltaf, bæði
til hliðar og upp og niður. Ef þú
horfir á mynd af stráknum og
kinkar kolli kinkar hann kolli á
móti.“
Himinn og haf
Hulda segist hafa vitað af þessari
sjónhverfingu eftir að hafa unnið í
mótagerð í 35 ár, en það var fyrst
núna sem hún fór að mála inn í
mótin. Hún segir þetta vera þekkta
aðferð í myndlist en þó þekki hún
enga sem notað hafi þessa tækni á
þennan máta.
Á sýningunni eru einnig lítil mál-
verk máluð á birkikrossvið og segir
Hulda þau án efa tengjast veru
sinni í Vestmannaeyjum og ná-
lægðinni við hafið.
„Bak við málverkin eru frásagnir
af stöðum þar sem himinn og haf
mætast.“
Hulda Hákon sýnir í Eldheimum málverk og innhverfar lágmyndir en þar málar hún inn í mótin og virðast myndirnar
hreyfast með hreyfingum áhorfandans. Á myndunum má sjá hvernig höfuð drengsins virðist hreyfast til hliðanna.
Kinkar kolli á móti
Hulda Hákon sýnir sérstakar lágmyndir
í Eldheimum í Vestmannaeyjum.
Fyrsta leikár Þjóðleikhússins var
gert upp í Morgunblaðinu 6. júlí
1950. Leikárið var stutt, hófst 20.
apríl það ár, og voru sett upp þrjú
leikrit, Nýársnóttin, Fjalla-
Eyvindur og Íslandsklukkan.
„Þetta fyrsta starfsár Þjóðleik-
hússins hefir orðið því hagstætt
langt fram yfir djörfustu vonir,“
sagði í umsögn Sigurðar Gríms-
sonar, lögfræðings, skálds og leik-
listargagnrýnanda blaðsins, og
var hann á því að samhentur hóp-
ur í leikhúsinu væri „gleðilegt
tákn og lofar vissulega góðu um
framtíð stofnunarinnar“. Kom
fram að 39.500 gestir (þá bjuggu
rétt rúmlega 140 þúsund manns í
landinu) hefðu séð sýningarnar,
sem alls voru 65. Af leikritunum
þremur var Íslandsklukkan mest
sótt og var sýningum á henni
haldið áfram um haustið.
„Allir leiklistarunnendur og
vinir Þjóðleikhússins gleðjast yfir
hinum ágæta árangri af þessu
fyrsta starfsári þess,“ skrifaði Sig-
urður. „Að vísu verður af þeim
árangri ekkert ráðið um framtíð
leikhússins, þar kemur margt til
greina, en allt bendir þó til þess
að almenningi sje ljós hinn mikli
þáttur, sem slík stofnun getur átt
í menningarlífi þjóðarinnar og
muni því láta sjer velferð leik-
hússins miklu varða.“
GAMLA FRÉTTIN
Gleðilegt
tákn
Starfsemi Þjóðleikhússins hófst fyrir 70 árum og þótti rýni Morgunblaðsins
upphafið „hagstætt langt fram yfir djörfustu vonir“.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Melissa Gilbert,
leikkona
Snæfríður Ingadóttir,
fjölmiðlakona
Halldóra Mogensen,
alþingismaður