Morgunblaðið - 08.08.2020, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 8. Á G Ú S T 2 0 2 0
Stofnað 1913 185. tölublað 108. árgangur
Volkswagen ID.3 1ST
Rafmögnuð framtíð
Pantaðu núna og
fáðu þinn í haust
www.volkswagen.is/ID · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA#NúGeturÞú
JÁKVÆTT OG
UPPBYGGJ-
ANDI Í KÓFINU FRÍMANN Á FERÐALAGI
LEIÐANGUR UM LANDIÐ 16TÓNATAL 42
Tívolí Akureyrar var loks opnað í fyrrakvöld eftir að
leyfi hafði fengist frá bæjaryfirvöldum fyrir norðan.
Áður hafði verið ráðgert að tívolíið yrði opnað um síð-
ustu helgi, en seinkun varð þar á sökum hertra sótt-
varnareglna og aukinnar smithættu. Þegar tryggt
þótti að öllum sóttvarnareglum yrði fylgt var opnun
tívolísins heimiluð. Mikil gleði ríkti meðal ungu kyn-
slóðarinnar, sem hljóp á milli á tækja á svæðinu.
Morgunblaðið/Eggert
Unga kynslóðin skemmti sér í tívolí
Í júnímánuði dróst íbúðalánasafn líf-
eyrissjóðanna saman um ríflega 300
milljónir króna. Skýringanna er fyrst
og fremst að leita í miklum upp-
greiðslum verðtryggðra lána en
óverðtryggðar lánveitingar hafa
einnig dregist verulega saman. Í júní-
mánuði í fyrra námu ný útlán sjóð-
anna til íbúðakaupa eða endurfjár-
mögnunar húsnæðis yfir sjö
milljörðum króna.
Á sama tíma og útlán sjóðanna hafa
dregist mikið saman hafa bankarnir
sótt mjög í sig veðrið á sama markaði.
Nýlegar tölur frá Seðlabanka Íslands
sýna að lánveitingar þeirra, þar sem
íbúðarhúsnæði er lagt að veði, námu
tæpum 28,5 milljörðum króna í júní-
mánuði. Í sama mánuði í fyrra námu
lánveitingarnar 4,7 milljörðum króna
umfram upp- og umframgreiðslur.
Líkt og fjallað hefur verið um í
Morgunblaðinu hafa íbúðavextir
bankanna lækkað hraðar í kjölfar
stýrivaxtalækkana Seðlabankans en
hjá lífeyrissjóðunum. Á umliðnum ár-
um hafa sjóðirnir hins vegar í flestum
tilvikum boðið hagstæðari lánakjör
en bankarnir hafa treyst sér til að
gera. »22
Bankarnir taka yfir
íbúðalánamarkaðinn
Lánasafn lífeyrissjóðanna minnkar
Jóhann Ólafsson
Ragnhildur Þrastardóttir
Einn liggur á gjörgæsludeild smitaður
af kórónuveirunni. Um er að ræða ein-
stakling á fertugsaldri sem er í önd-
unarvél. Þá er til skoðunar hvort
leggja þurfi fleiri smitaða inn á gjör-
gæsludeild en Covid-deild Landspít-
alans fylgist með nokkrum.
Þetta kom fram í máli Þórólfs
Guðnasonar sóttvarnalæknis í gær.
Sautján greindust smitaðir innan-
lands á fimmtudag og fjórir við
landamæraskimun. Svo mörg smit
hafa ekki greinst síðan í apríl. Virk
smit í samfélaginu eru því 109 talsins, í
öllum landshlutum. 914 eru í sóttkví,
langflestir á höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn Þórólfs er til alvarlegrar
skoðunar hvort herða þurfi takmark-
anir í samfélaginu vegna fjölgunar
smita. Ákvörðun hvað það varðar
verður tekin um helgina eða eftir
helgi.
Þórólfur sagðist þó ekki búast við
því að mögulegar hertar aðgerðir
muni gilda jafn lengi og takmarkanir
giltu í vor.
„Ég held að það hafi aldrei verið
sannara en núna að næstu dagar
munu skera úr um það hvort við þurf-
um að fara niður í fimmtíu eða tuttugu
eins og við gerðum í vetur,“ sagði Þór-
ólfur.
Ein tegund veirunnar er nú í gangi í
samfélaginu, sama tegund og hefur
verið að ganga manna á milli síðan
önnur bylgja faraldursins hófst hér-
lendis.
„Sú tegund hefur greinilega dreift
sér víða um samfélagið,“ sagði Þór-
ólfur.
Sóttvarnalæknir sagði að við vær-
um á svipuðum stað núna og í vetur og
veldisvöxtur veirunnar svipaður.
Þrátt fyrir það er ýmislegt öðruvísi en
í mars en þá fengum við mikið flæði af
veirunni inn í landið á sama tíma.
Núna er þetta ein veira sem farið hef-
ur víða og Þórólfur reiknar með að það
taki lengri tíma að stöðva hana.
Einn í önd-
unarvél og
109 virk smit
Sautján ný innanlandssmit greind
Hertar takmarkanir eru til skoðunar
MMesti fjöldi smita … »4